Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli

Undirritunardagur

18. maí 2026

Útgáfudagur

20. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 519/2026

18. maí 2026

REGLUGERÐ

um (1.) breytingu á reglugerð nr. 359/2019 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/782 um að koma á aðferðarfræðilegum meginreglum fyrir áhættumat og tilmæli um áhættustjórnun sem um getur í reglugerð (EB) nr. 470/2009.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XIII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameignlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/782 frá 29. maí 2018 um að koma á aðferðarfræðilegum meginreglum fyrir áhættumat og tilmæli um áhættustjórnun sem um getur í reglugerð (EB) nr. 470/2009. Reglugerðin er felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 28. mars 2019, bls. 193.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1101 frá 3. júní 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/782 að því er varðar mat Lyfjastofnunar Evrópu á hámarksgildum leifa fyrir líffræðileg efni sem eru ólík íðefnum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 270/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 477.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um slátrun og sláturafurðir, nr. 96/1997, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, lögum um matvæli, nr. 93/1995, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica

B deild — Útgáfudagur: 20. maí 2026

Tengd mál