Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli
Undirritunardagur
27. september 2024
Útgáfudagur
18. október 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1155/2024
27. september 2024
REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 204/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2325 um að fastsetja, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848, skrána yfir þriðju lönd og skrána yfir eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðila sem hafa verið viðurkennd að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 8. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2785 frá 14. desember 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2325 er varðar viðurkenningu á tilteknum eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum að því er varðar innflutning á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2024, frá 5. júlí 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 19. september 2024, bls. 518.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 27. september 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Svava Pétursdóttir.
B deild - Útgáfud.: 18. október 2024