Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Hornafjörður
Málaflokkur
Gæludýr, Sveitarfélagið Hornafjörður
Undirritunardagur
8. apríl 2026
Útgáfudagur
24. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 397/2026
8. apríl 2026
GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Sveitarfélaginu Hornafirði.
1. gr.
Af hundum í Sveitarfélaginu Hornafirði skal innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis, nr. 933/2015.
2. gr.
Árlegt leyfisgjald er 15.400 kr.
Innifalið í leyfisgjaldi er heilbrigðisskoðun dýralæknis, ormahreinsun og trygging auk umsýslugjalda sveitarfélagsins.
3. gr.
Handsömunargjald hunda skal vera skv. 12. gr. samþykktar nr. 933/2015. Við afhendingu handsamaðs hunds skal greiða 17.600 kr. Þurfi að vista hund yfir nótt skal greiða vörslugjald að fjárhæð 7.150 kr. fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhring.
Ef til aflífunar hunds kemur, greiðir skráður eigandi dýrs allan útlagðan aflífunarkostnað.
4. gr.
Gjalddagi skv. 3. gr. er 31. janúar og eindagi er 28. febrúar ár hvert, og greiðslan gildir fyrir það almanaksár sem hún er innt af hendi. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd fyrir eindaga. Innheimta gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Eigandi hunds sem hefur lokið hlýðninámskeiði hjá viðurkenndum hundaþjálfara getur, gegn framvísun staðfestingar, fengið 50% afslátt af árlegu hundaleyfisgjaldi. Hundar sem eru notaðir við björgunarstörf eða til aðstoðar fötluðu fólki samkvæmt læknisráði eru undanþegnir árlegu leyfisgjaldi, gegn framvísun staðfestingar frá viðeigandi aðila. Afsláttur eða undanþága gildir meðan skráning hundsins er í gildi hjá sveitarfélaginu og skilyrði eru uppfyllt.
Við afskráningu hunds á árinu skal árlegt skráningargjald endurgreitt hlutfallslega miðað við fjölda heilla mánaða sem eftir eru af árinu.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er sett með vísun til heimilda í samþykkt um hundahald í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis, nr. 933/2015, og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 11. desember 2025.
Gjaldskráin tekur þegar gildi. Jafnframt fellur gjaldskrá sama efnis, nr. 680/2017, úr gildi.
Sveitarfélaginu Hornafirði, 8. apríl 2026.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 24. apríl 2026