Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

1. desember 2025

Útgáfudagur

15. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1367/2025

1. desember 2025

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2026.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2025, álagningarárið 2026, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

  kr.
Mjólkurkýr 167.000
Holdakýr og naut 178.000
Kvígur, 1½ árs og eldri 148.000
Geldneyti 87.000
Kálfar, yngri en ½ árs 17.000
Ær og sauðir 9.800
Hrútar 23.000
Gemlingar 14.500
Geitur 12.000
Hross á 14. vetri og eldri 28.000
Hross á 5. – 13. vetri 68.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 290.000
Önnur nýtanleg reiðhross 155.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 470.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 630.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 780.000
Trippi á 2. – 4. vetri 22.000
Folöld 16.000
Hænsni, eldri en 6 mánaða 1.310
Varphænsni 6 mánaða og yngri 890
Kjúklingar 365
Endur 1.290
Gæsir 2.580
Kalkúnar 3.870
Gyltur 55.000
Geltir 80.000
Grísir 15.000
Kanínur 6.000
Minkar: Karldýr 5.400
  Kvendýr 3.600
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

Reykjavík, 1. desember 2025.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 15. desember 2025

Tengd mál