Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjarðabyggð
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Fjarðabyggð
Undirritunardagur
27. nóvember 2025
Útgáfudagur
12. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1354/2025
27. nóvember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir fráveitu Fjarðabyggðar.
1. gr. Álagningarstuðull.
Álagningarstuðull fyrir fráveitugjald er 0,3232% af húsmati fasteigna. Fráveitugjald er innheimt bæði af húsmati heimila og fyrirtækja. Fráveitugjald er innheimt með fasteignagjöldum.
2. gr. Þjónustugjald.
Fyrir hverja fasteign innan marka Fjarðabyggðar með eigin fráveitu, eða fráveitu sem ekki er tengd holræsakerfi í eigu Fjarðabyggðar, skal greiða árlegt þjónustugjald, sbr. 22. gr. samþykktar um fráveitu í Fjarðabyggð. Greiða skal sérstakt gjald fyrir hverja rotþró, ef fleiri en ein rotþró er á sömu fasteign.
Undanþegnir frá gjaldskyldu eru aðilar sem framvísa samningi um tæmingu rotþróa við þjónustuaðila með gilt starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, sbr. 18. gr. samþykktar um fráveitur í Fjarðabyggð.
Ef fleiri en ein húseign er tengd rotþró skal þjónustugjaldi deilt með jöfnum hætti á fasteignir, nema ef sýnt er fram á aðra eignar- eða notkunarskiptingu á þrónni.
3. gr. Gjaldskrá.
Þjónustugjald samkvæmt 1. gr. skal vera árlegt gjald sem hér segir:
| Stærð rotþróar í lítrum – þjónustugjald | kr. |
| < 3.500 lítrar | 25.607 |
| 3.500 – 5.500 lítrar | 38.410 |
| 5.500 – 8.000 lítrar | 49.612 |
| > 8.000 lítrar | 49.612 |
| Fyrir hvern viðbótarrúmmetra | 8.000 |
| Tímagjald hreinsibíls á klst. | 20.534 |
Förgunargjald er samkvæmt verðskrá Sorpstöðvar Fjarðabyggðar.
Fjárhæð árgjalds miðast við að tæming og skoðun rotþróar eigi sér stað annað hvert ár. Komi fram beiðni um eða ef nauðsynlegt er að tæma rotþró sérstaklega, skal greiða sérstakt gjald sem er 70% álag á árlega greiðslu.
Fjárhæð árgjalds miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að nota lengri barka en 30 metra. Ef leggja þarf lengri barka þá bætast við 3.201 kr. að 50 metrum, en 10.043 kr. eftir það.
Ef fleiri en ein húseign nýtir rotþró og um er að ræða íbúðarhúsnæði eða sumarbústaði sérmetna í fasteignamati, skal aldrei innheimta hærra gjald skv. 1. mgr. en 24.004 kr. af hverri húseign.
Sveitarstjórn er heimilt að innheimta sérstakt aukagjald þar sem þannig háttar til að um óvenjumikinn kostnað er að ræða við hreinsun og tæmingu rotþróa eða þegar sérstakar aðstæður krefjast aukinnar þjónustu. Gjaldið skal nema tímagjaldi fyrir hreinsibíl, skv. 2. gr., fyrir tíma umfram 2ja klst. vinnu- og aksturstíma, sem sérstaklega er tilkominn vegna viðkomandi rotþróar.
4. gr. Gjalddagi og innheimta.
Gjalddagi og innheimta þjónustugjalds skv. 2. gr. fer fram með sama hætti og á sama tíma og álagning fasteignaskatts. Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari er heimilt að innheimta með fjárnámi í fasteign sem rotþró tengist án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
5. gr. Stofngjald fráveitu.
Stofngjald fráveitu skal innheimta af öllum fasteignum sem tengdar eru fráveitu Fjarðabyggðar og skráðar eru í fasteignamat. Gjaldið skal innheimt við útgáfu byggingarleyfis. Verð miðast við skólplögn og regnvatnslögn (100-150 mm) sem lögð er að lóðamörkum.
Tengigjald vegna nýtengingar fráveitu við einstaka fasteign er 293.542 kr.
Gert er ráð fyrir að fjölbýlishús, par- og raðhús o.s.frv. sé með óskipta lóð og einungis ein tenging er fyrir hverja lóð. Sé óskað eftir fleiri tengingum inn á lóð greiðist það samkvæmt raunkostnaði.
Sé sótt um stærri heimlögn en getið er um hér að ofan þarf að snúa sér til veitna Fjarðabyggðar með fyrirspurn um verð. Sama á við t.d. í þéttingu byggðar í grónum hverfum þar sem tenging er ekki til staðar eða ef aðstæður eru óvenju erfiðar þannig að ætla má að tengikostnaður sé úr takti við almennar tengingar
6. gr. Einingarverð og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, og öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis, nr. 1434/2024.
Fjarðabyggð, 27. nóvember 2025.
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 12. desember 2025