Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Málaflokkur

Ríkisstofnanir, Atvinnustarfsemi

Undirritunardagur

11. október 2024

Útgáfudagur

29. október 2024

Leiðréttingar

12. nóvember 2024

HTML-texti og PDF-skjal: Í stað „laga um faggildingu o.fl., nr. 64/2006“ í 1. mgr. 6. gr. kemur: laga um faggildingu o.fl., nr. 24/2006.

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1201/2024

11. október 2024

GJALDSKRÁ

faggildingarsviðs Hugverkastofunnar.

1. gr. Umsóknargjald.

Umsóknargjald stendur undir upplýsingagjöf og leiðbeiningum vegna umsóknar, móttöku, skráningar og yfirferðar umsóknar og fylgiskjala og álitsgerðar um niðurstöður fyrstu yfirferðar.

Þegar um útibú prófunarstofu, vottunarstofu eða skoðunarstofu er að ræða, þar sem fram fer sams konar starfsemi og í aðalstöðvum sem áður hafa hlotið faggildingu, skal greiða 75% af umsóknargjaldi fyrir sérhvert útibú.

Prófunarstofa Grunngjald 400.000 kr.
Fyrir hverja prófunaraðferð 160.000 kr.
Vottunarstofa Grunngjald 560.000 kr.
Fyrir hvert vottunarsvið 160.000 kr.
Skoðunarstofa Grunngjald 400.000 kr.
Fyrir hverja skoðunaraðferð 160.000 kr.

2. gr. Faggildingargjald.

Faggildingargjald stendur undir vali á matsmönnum, gerð verk- og tímaáætlunar, mati á gæðakerfi, skýrslugerð, gerð faggildingarskírteinis og stjórn faggildingarinnar.

Fyrir verkþætti skv. 1. mgr. við framkvæmd faggildingar skal greiða tímagjald í samræmi við fjölda unninna vinnustunda. Þó er heimilt að semja um fast gjald, sbr. 4. mgr.

Tímagjald er 20.000 kr.

Þegar yfirferð umsóknar er lokið getur faggildingarsvið gert fast tilboð í framkvæmd faggildingar.

Allur ferðakostnaður greiðist samkvæmt framlögðum reikningi.

Kostnaður vegna sérfræðivinnu við tæknilegt mat greiðist samkvæmt framlögðum reikningi.

3. gr. Eftirlitsgjald.

Eftirlitsgjald greiðist árlega og stendur undir umsýslu með faggiltum aðila, vali á matsmönnum, gerð verk- og tímaáætlunar, skýrslugerð, stjórn eftirlitsins og álitsgerð um niðurstöður. Þegar um útibú prófunarstofu, vottunarstofu eða skoðunarstofu er að ræða, þar sem fram fer sams konar starfsemi og í aðalstöðvum, skal greiða 30% af eftirlitsgjaldi fyrir sérhvert útibú sem eftirlitsúttekt er gerð á það árið.

Prófunarstofa Grunngjald fyrir eitt tæknisvið 560.000 kr.
Fyrir hvert tæknisvið umfram eitt 84.000 kr.
Fyrir hverja prófunaraðferð sem tekin er út á árinu 160.000 kr.
Vottunarstofa Grunngjald 800.000 kr.
Fyrir hvert vottunarsvið 200.000 kr.
Skoðunarstofa Grunngjald fyrir eitt tæknisvið 560.000 kr.
Fyrir hvert tæknisvið umfram eitt 84.000 kr.
Fyrir hverja skoðunaraðferð sem tekin er út á árinu 160.000 kr.

Faggildingarsvið getur gert fast tilboð í framkvæmd eftirlits með faggildingu.

Allur ferðakostnaður greiðist samkvæmt framlögðum reikningi.

Kostnaður vegna sérfræðivinnu við tæknilegt mat greiðist samkvæmt framlögðum reikningi.

4. gr. Úttektir utan úttektaráætlunar.

Fyrir nauðsynlegar úttektir utan reglubundinnar úttektaráætlunar, svo sem vegna eftirfylgni með úrvinnslu frávika eða vegna ófyrirsjáanlegra atvika, skal greiða tímagjald skv. 2. gr. í samræmi við fjölda unninna tíma, sé ekki um annað samið.

Þegar um er að ræða mat eða úttektir þar sem ekki er um faggildingu að ræða skal samið sérstaklega um þóknun.

5. gr. Verðlagsuppfærsla.

Upphæðir í gjaldskrá þessari skulu breytast í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs frá útgáfudegi. Breyting skal gerð 1. janúar ár hvert. Faggildingarsvið skal á hverjum tíma birta nýjustu uppfærslu gjaldskrárinnar á vef sínum.

6. gr. Lagastoð og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 12. gr. laga um faggildingu o.fl., nr. 64/2006, og samþykkt af ráðherra.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur brott gjaldskrá löggildingarstofunnar fyrir faggildingu og eftirlit frá 20. febrúar 1995.

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 11. október 2024.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Steindór Dan Jensen.

B deild - Útgáfud.: 29. október 2024

Tengd mál