Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sjúkratryggingar Íslands

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar

Undirritunardagur

10. febrúar 2026

Útgáfudagur

13. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 146/2026

10. febrúar 2026

GJALDSKRÁ

Sjúkratrygginga Íslands fyrir dagdvöl aldraðra á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2026 og eru án samnings um verð við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr. Gildissvið.

Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við dagdvöl skv. gjaldskrá þessari. Gjaldskráin tekur til þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga í dagdvalarrýmum á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2026 og eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra.

2. gr. Daggjöld vegna þjónustu í dagdvalarrýmum.

Daggjald fyrir þjónustu í dagdvalarrými er greitt eftir hvern almanaksmánuð.

Tilgreindur fjöldi dagdvalarrýma ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands tekur til. Miðað er við að þjónusta í dagdvalarrými sé í boði 250 daga ársins.

Miðað er við að ein koma í dagdvalarrými vari í a.m.k. 6 klst. á dag. Innifalið í daggjöldum dagdvalarrýma er nauðsynlegur flutningskostnaður og hvers konar þjónusta sem látin er í té á stofnunum, sbr. meðal annars reglugerðir nr. 1245/2016, um dagdvöl aldraðra og nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu.

Daggjöld fyrir dagdvalarrými skulu vera sem hér segir:

Tegund dagdvalar   Fjöldi dagdvalarrýma Daggjald
A. Heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins    
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Drafnarhús, dagdvöl, Hafnarfirði 22 24.213 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Eir, Reykjavík 48 24.213 kr.
Almenn dagdvöl Hrafnista, Sléttuvegi, Reykjavík 30 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Hrafnista, Boðaþingi, Kópavogi 30 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Hrafnista, Hafnarfirði 26 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Hrafnista Ísafold, Garðabæ 16 11.021 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Hrafnista Ísafold, Garðabæ 4 24.213 kr.
Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu Hrafnista, Reykjavík 30 30.281 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Hrafnista, Reykjavík 30 24.213 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Skjól, dagdvöl Reykjavík 22 24.213 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Roðasalir, Kópavogi 20 24.213 kr.
Almenn dagdvöl Sóltún öldrunarþjónusta – Sólvangur, Hafnarfirði 14 11.021 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Sóltún öldrunarþjónusta – Sólvangur, Hafnarfirði 12 24.213 kr.
Almenn dagdvöl Vigdísarholt – Sunnuhlíð, Kópavogi 21 11.021 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Vigdísarholt – Sunnuhlíð, Kópavogi 9 24.213 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Vitatorg, dagdvöl, Reykjavík 18 24.213 kr.
Almenn dagdvöl Þorrasel, dagdvöl, Reykjavík 50 11.021 kr.
B. Heilbrigðisumdæmi Suðurnesja    
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Grindavík 5 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ 18 11.021 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ 15 24.213 kr.
C. Heilbrigðisumdæmi Vesturlands    
Almenn dagdvöl Brákarhlíð, Borgarnesi 4 11.021 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Brákarhlíð, Borgarnesi 1 24.213 kr.
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Hvammstanga 5 11.021 kr.
D. Heilbrigðisumdæmi Vestfjarða    
E. Heilbrigðisumdæmi Norðurlands    
Almenn dagdvöl Dalbær, Dalvík 14 11.021 kr.
Almenn dagdvöl  Dagdvöl aldraðra, Skagafirði 11 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Hvammur, Húsavík 23 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Naust, Þórshöfn 4 11.021 kr.
F. Heilbrigðisumdæmi Austurlands    
Almenn dagdvöl Dagdvalarheimilið Breiðdalsvík 5 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Hlymsdalir, Egilsstöðum 5 11.021 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Hlymsdalir, Egilsstöðum 3 24.213 kr.
Almenn dagdvöl Tryggvabúð, dagdvöl, Djúpavogi 4 11.021 kr.
G. Heilbrigðisumdæmi Suðurlands    
Almenn dagdvöl Ás, Hveragerði 5 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Þorlákshöfn 8 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Hjallatún, Vík 2 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Kirkjuhvoll, Hvolsvelli 2 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri 2 11.021 kr.
Almenn dagdvöl Lundur, Hellu 3 11.021 kr.
Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun Lundur, Hellu 1 24.213 kr.
Almenn dagdvöl Sveitarfélagið Hornafjörður, dagdvöl 7 11.021 kr.
    549  

3. gr. Húsnæðisgjald.

Húsnæðisdaggjald fyrir dagdvalarrými mætir viðhaldskostnaði húsnæðis sem nýtt er til reksturs þeirra. Húsnæðisdaggjald árið 2026 er kr. 564 á dag fyrir að hámarki 30 fermetra dagdvalarrými.

Húsnæðisdaggjaldið fyrir dagdvalarrými hlutfallast í samræmi við stærð rýmisins og reiknast aldrei á stærra rými en hámarkið segir til um.

4. gr. Greiðsluþátttaka.

Greiðsluþátttaka hins sjúkratryggða vegna dagdvalar fer samkvæmt 19. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra og reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra.

5. gr. Dagdvöl.

Umsóknir um dagdvöl skulu berast til viðkomandi rekstraraðila eða heimilis sem býður upp á úrræðið. Þurfi að forgangsraða umsækjendum skulu þeir ganga fyrir sem eru í mestri þörf fyrir úrræðið. Auk þess skal taka tillit til dagsetningar umsóknar og þess hvort umsækjandi hafi áður verið í sams konar úrræði og þá hversu langt er liðið frá því að það var síðast notað.

Dagdvöl aldraðra er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Þar skal veitt hjúkrunarþjónusta og vera aðstaða til þjálfunar og læknisþjónustu. Boðið skal upp á flutningsþjónustu að og frá heimili einstaklingsins, mat á heilsufari, þjálfun, tómstundaiðju, félagslegan stuðning, fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs, sbr. lög nr. 125/1999 og reglugerð nr. 1245/2016.

A. Almenn dagdvöl.

Dagdvölin er stuðningsúrræði fyrir aldraða sem að staðaldri þurfa eftirlit, umsjá og stuðning til að geta búið heima. Notendur dagdvalar geta sótt þjónustuna daglega eða tiltekna daga í viku hverri. Tryggja þarf notendum dagdvalar heilbrigðisþjónustu og félagslegan stuðning á því þjónustustigi sem er eðlilegast miðað við þörf og ástand hvers og eins.

B. Dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun.

Dagdvölin tekur m.a. til sjúkra- og/eða iðjuþjálfunar fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm og miðar þjónustan að því að rjúfa einangrun einstaklinganna, gefa þeim kost á að umgangast jafningja, taka þátt í daglegum athöfnum og þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður. Áhersla er á að gera einstaklingnum kleift að búa heima og viðhalda sjálfhjálpargetu með því að bjóða upp á örvandi og hvetjandi starfsemi og fresta þannig þörf fyrir sólarhringsumönnun. Þjónustan skal taka mið af þörfum einstaklingsins, áhuga, getu og óskum. Leggja skal áherslu á sveigjanleika í starfseminni, fjölbreytta virkni, þjálfun og afþreyingu út frá mismunandi þörfum og áhuga. Þannig skal stuðla að umönnun sem eflir styrk og getu, stuðlar að vellíðan og eykur öryggi. Leggja skal áherslu á að skapa rólegt og öruggt umhverfi með faglegri umhyggju. Einnig skal huga að mikilvægi upplýsingagjafar til einstaklingsins og aðstandenda hans.

C. Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu.

Í dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu felst dagþjálfun þar sem áhersla er lögð á líkamlega þjálfun og félagslega virkni. Þjónustan er eingöngu fyrir aldraða þar sem endurhæfing er forsenda þess að viðkomandi geti áfram búið heima eða fyrir aldraða sem þarfnast endurhæfingar í kjölfar sjúkrahúslegu. Dagþjálfunin er 8-10 vikna úrræði 3-5 daga vikunnar og opin frá kl. 8-19 alla virka daga.

Umsókn til meðferðaraðila skal vera á þar til gerðu eyðublaði þjónustuaðila. Með henni skal fylgja lækna- og/eða hjúkrunarbréf þar sem fram kemur að þörf sé á þjálfun til dæmis sjúkra- og/eða iðjuþjálfun. Ef umsókn er samþykkt skal inntökuteymi þjónustuaðila gera mat á markmiðum og skipulagi þjálfunar í samráði við fagaðila og skal það uppfært mánaðarlega eða eftir því sem við á.

6. gr. Rafræn samskipti og reikningsupplýsingar.

Reikningar skulu uppfylla skilyrði laga og reglna á hverjum tíma. Þeir skulu vera á því formi sem Sjúkratryggingar Íslands ákveða. Reikningar er varða þjónustu sem veitt er á grundvelli gjaldskrár þessarar skulu sendir Sjúkratryggingum Íslands rafrænt mánaðarlega. Við sendingu rafrænna reikningsupplýsinga ber að fara eftir færslulýsingu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt og skulu þær berast Sjúkratryggingum Íslands í síðasta lagi 10. dag hvers mánaðar, fyrir liðinn mánuð.

Rafræn samskipti aðila og varðveisla gagna skulu fara eftir ákvæðum laga um bókhald nr. 145/1994. Rekstraraðilar bera kostnað af innskráningu upplýsinga en ekki af rekstri og viðhaldi RAI-gagnagrunns og þjónustukerfa Sjúkratrygginga Íslands.

Ef ekki reynist unnt að ákvarða rétt til greiðslu eða fjárhæð hennar vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að fresta greiðslu þar til úr því er bætt. Stofnunin skal gera viðkomandi heimili viðvart ef til frestunar kemur, leiðbeina um hvaða upplýsingar skortir og skora á það að veita þær innan viðhlítandi frests.

7. gr. Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra. Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2026 og er gildistími sá sami og kveðið er á um í 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 118/2025.

Sjúkratryggingum Íslands, 10. febrúar 2026.

Sigurður H. Helgason.

Elmar Hallgríms Hallgrímsson.

B deild — Útgáfudagur: 13. febrúar 2026

Tengd mál