Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Ölfus

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus

Undirritunardagur

2. júní 2022

Útgáfudagur

20. júní 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 726/2022

2. júní 2022

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Deiliskipulag fyrir lóðina Riftún í Ölfusi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss þann 25. maí 2022, deiliskipulag fyrir Riftún í Ölfusi.
Skipulagið markar byggingarreiti og setur skilmála og skilgreinir breytingu á landbúnaðarlandi í verslunar- og þjónustusvæði. Svæðið er um 9,3 hektarar og gert er ráð fyrir uppbyggingu tengdri ferðaþjónustu, uppbyggingu veitingareksturs, hestaleigu, ylræktar og baðlóns.
Deiliskipulag þetta hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Þorlákshöfn, 2. júní 2022.

Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 20. júní 2022

Tengd mál