Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Reykjavík, Byggingarmál, Mannvirki

Undirritunardagur

1. desember 2025

Útgáfudagur

16. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1375/2025

1. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar.

Fyrir þjónustu sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík innir af hendi skal innheimta gjöld sem hér segir:

1. gr. Úttektir samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012.

Áfangaúttekt 17.200 kr.
Stöðuúttekt 30.200 kr.
Öryggis- og lokaúttekt:  
a) Lítið umfang, s.s. minniháttar breytingar á mannvirki og lóð með breytingum á útliti eða fyrirkomulagi, svalaskýli, kvistir, bílskúr, klæðingar húss o.þ.h. 34.400 kr.
b) Meðal umfang, s.s. minni viðbygging eða nýbygging einbýlis, par- og raðhúss og minni fjölbýlishúss eða breytingar á fyrirkomulagi 60.200 kr.
c) Mikið umfang, s.s. nýbygging stærri mannvirkja, umfangsmeiri breytingar á fyrirkomulagi 86.000 kr.
Úrtaksskoðun vegna áfangaúttekta 17.200 kr.
Úttekt byggingarstjóraskipta 34.400 kr.
Húsaskoðun 34.400 kr.
Staðfesting á leyfis- eða skráningarskyldri starfsemi 17.200 kr.

2. gr. Útgáfa vottorða.

Útgáfa byggingarleyfis 13.000 kr.
Fokheldisvottorð 43.000 kr.
Vottorð um stöðuúttekt 30.200 kr.
Öryggis- og lokaúttektarvottorð 30.200 kr.
Stöðuleyfi 27.600 kr.

3. gr. Skoðunargjöld vegna umsóknar og yfirferðar aðaluppdrátta.

Lágmarksgjald við móttöku umsóknar 17.200 kr.
Hver aðaluppdráttur með umsókn:
a) Lítið umfang, s.s. minniháttar breytingar á mannvirki og lóð með breytingum á útliti eða fyrirkomulagi, svalaskýli, svalir, kvistir, klæðningar húss o.þ.h. 4.300 kr.
b) Meðal umfang, s.s. minni viðbygging eða nýbygging einbýlis, par- og raðhúss og minni fjölbýlishúss ásamt skráningartöflu eða breytingar á fyrirkomulagi 8.600 kr.
c) Mikið umfang, s.s. nýbygging stærri mannvirkja, umfangsmeiri breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsa eða stærri framkvæmdir sem krefjast einnig skoðunar skipulagsfulltrúa enda falli framkvæmd ekki undir a- eða b-lið 17.200 kr.
Endurumsókn útrunnins byggingarleyfis 17.200 kr.
Aukagjald fyrir hverja þriðju umfjöllun 17.200 kr.

4. gr. Skoðunargjöld vegna yfirferðar séruppdrátta.

Einbýlis, par- og raðhús og fjölbýlishús allt að 2.000 m³ 129.000 kr.
Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahúsi allt að 2.000 m³ 180.600 kr.
Af hverjum 1.000 m³ byggingar umfram 2.000 m³:  
a) Einföld bygging, s.s. skemmur, skýli, lager, íþróttahús, gripahús o.þ.h. 25.800 kr.
b) Hefðbundin bygging, s.s. verslun og skrifstofur, fjölbýlishús, hótel o.þ.h. 43.000 kr.
c) Sérhæfð bygging s.s. heilsuverndarhús, menningar- eða rannsóknarhús o.þ.h. 60.200 kr.
Aðrar minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa o.fl. 43.000 kr.
Umfangslitlar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis 68.800 kr.
Umfangsmiklar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis 137.600 kr.
Breytingar á innra skipulagi sérhúss, klæðning húss, svalaskýli, lóð o.fl. 25.800 kr.

5. gr. Skoðunargjöld vegna yfirlesturs eignaskiptayfirlýsingar.

Eignaskiptayfirlýsing:

a) 2–5 eignir 51.600 kr.
b) 5–15 eignir 68.800 kr.
c) 15–50 eignir 86.000 kr.
d) 50 eignir og fleiri 103.200 kr.
e) Aukagjald fyrir hvern þriðja yfirlestur 17.200 kr.

6. gr. Skoðunargjöld vegna yfirferðar raflagnauppdrátta.

Íbúðarhúsnæði:  
Einbýlis, par- og raðhús 1 x 63 A 23.300 kr.
Fjölbýlishús með allt að 10 íbúðum:  
Heimtaug 3 x 63 A, grunngjald 23.300 kr.
Á hverja íbúð 1.300 kr.
Stærri fjölbýlishús:  
Heimtaug 3 x 100-200 A, grunngjald 23.300 kr.
Á hverja íbúð 2.950 kr.
Atvinnuhúsnæði:  
Heimtaug 3 x 63 A 34.400 kr.
Heimtaug 3 x 100-200 A 92.200 kr.
Heimtaug 3 x 315 A og stærri 153.600 kr.

7. gr.

Sé hönnun mannvirkis sérstaklega vandasöm og/eða umfangsmikil getur byggingarfulltrúi við meðferð byggingarleyfisumsóknar ákveðið að skoðunarstofa annist yfirferð hönnunargagna og úttektir á kostnað eiganda vegna framkvæmdar í heild eða að hluta, sbr. ákvæði í gr. 3.3.1 og 3.3.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

8. gr.

Gjaldskrá þessi sem er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 var staðfest í borgarstjórn Reykjavíkur 4. nóvember 2025 öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1382/2024.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 1. desember 2025.

Heiða Björg Hilmisdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025

Tengd mál