Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

1. september 2026

Útgáfudagur

16. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 999/2026

1. september 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr.

Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/24 frá 19. desember 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur fyrir flugrekendur varðandi starfsemi á sviði flugafgreiðslu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 288.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 152. og 200. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 1. september 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. september 2026

Tengd mál