Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Reykjanesbær

Undirritunardagur

17. september 2025

Útgáfudagur

1. október 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1031/2025

17. september 2025

SAMÞYKKT

um fráveitu í Reykjanesbæ.

I. KAFLI Almennt.

1. gr. Gildissvið og almenn ákvæði.

Samþykkt þessi gildir um fráveitu í Reykjanesbæ og nær til allra fasteigna, íbúðarhúsnæðis, sumarbústaða, stofnana og atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Samþykktin nær til allra fráveitna, þar með talið allra mannvirkja sem reist eru til meðhöndlunar eða flutnings á frárennsli, svo sem rotþróa, annarra hreinsivirkja, set- og sandskilja, fellitanka og olíu- og fitugildra. Jafnframt skulu uppfyllt ákvæði reglugerða nr. 982/2010, um fráveitur sveitarfélaga, nr. 798/1999, um fráveitur og skólp, nr. 799/1999, um meðhöndlun seyru, nr. 796/1999, um varnir gegn mengun vatns, og nr. 797/1999, um varnir gegn mengun grunnvatns, sem og ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009.

Umhverfis- og framkvæmdasvið heldur skrá yfir hreinsivirki, þ.m.t. rotþrær með siturlögnum, settanka, fituskiljur og olíuskiljur, og færir staðsetningu þeirra á skipulagsgögn Reykjanesbæjar. Öll þessi mannvirki eru byggingarleyfisskyld hjá sveitarfélaginu, og endurnýjun eða breytingar kunna að vera tilkynningar- eða framkvæmdaleyfisskyldar. Umhverfis- og framkvæmdasvið sinnir innra eftirliti með virkni þessa búnaðar, nema rekstraraðilar hans haldi skrá yfir innra eftirlit og viðhald eftir þörfum, í samræmi við starfsleyfi heilbrigðisnefndar fyrir fráveitu þess. Samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, annast Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HES) eftirlit með fráveitu sveitarfélagsins og mengunarvarnabúnaði tengdum fráveitu hjá starfsleyfis- og skráningarskyldri starfsemi.

2. gr. Markmið.

Markmið samþykktar þessarar er að:

  1. Afmarka skyldur Reykjanesbæjar varðandi fráveitumál og fráveituframkvæmdir, þar á meðal ábyrgð á rekstri, viðhaldi og eftirliti með fráveitum.
  2. Tryggja uppbyggingu og starfrækslu fráveitna í samræmi við gilda staðla, þannig að frá­rennsli valdi sem minnstum óæskilegum áhrifum á umhverfið, þar með talið vatns- og grunnvatns­mengun.
  3. Skýra réttindi og skyldur eigenda og notenda fráveitna, þar á meðal skyldur til að fylgja reglum og stöðlum sem gilda um fráveitur, og rétt þeirra til að fá upplýsingar og aðstoð frá sveitarfélaginu.
  4. Stuðla að hagkvæmni í uppbyggingu og starfrækslu fráveitna með því að nýta bestu aðgengilegu tækni og starfshætti til að tryggja langtímaárangur og kostnaðarhagkvæmni.

3. gr. Rekstur, stjórnun og fjármögnun fráveitna.

Reykjanesbær ber ábyrgð á uppbyggingu og rekstri fráveitna í sveitarfélaginu, sér í lagi í þéttbýli, í samræmi við 1. og 2. mgr. 4. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009.

Umhverfis- og framkvæmdasvið, í umboði bæjarstjórnar, fer með stjórn og eftirlit með fráveitumálum í sveitarfélaginu.

Fráveita Reykjanesbæjar sér um starfrækslu fráveitunnar. Fráveitan er í eigu Reykjanesbæjar og starfar í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

Rekstur og framkvæmdir tengdar fráveitu eru fjármagnaðar með fráveitugjöldum og/eða lántökum, eftir ákvörðun bæjarstjórnar í árlegri fjárhagsáætlun.

Fráveita Reykjanesbæjar heyrir undir umhverfis- og framkvæmdasvið sem fer með umsjón, hönnun, framkvæmdir og rekstur fráveitunnar í umboði bæjarstjórnar. Þetta felur í sér að tryggja að fráveitan starfi á skilvirkan og umhverfisvænan hátt.

4. gr. Tegundir fráveitna.

Í þéttbýli skulu öll hús tengd sameiginlegri fráveitu sem rekin er af fráveitu Reykjanesbæjar. Fyrir stök hús í þéttbýli, þar sem landfræðilega er ómögulegt að tengja við sameiginlega fráveitu, getur HES veitt leyfi til að setja upp sérstakt hreinsivirki, svo sem rotþró með siturlögn eða annan hreinsibúnað.

Í dreifbýli, þar sem fjöldi húsa er um það bil 20 á hverja 10 hektara, skal umhverfis- og framkvæmdasvið sjá til þess að skólpi sé safnað á kerfisbundinn hátt með safnkerfi, stofnlögnum og sameiginlegu hreinsikerfi. Þar sem húsaþyrpingar eru með færri húsum en tilgreint er í 3. mgr. 4. gr. laga nr. 9/2009 skal leitast við að samnýta fráveitur til hreinsunar skólps. Fyrir stök hús skal fráveita leidd í sérstakt hreinsivirki, svo sem rotþró með siturlögn, sem hefur fengið samþykki HES.

Fráveita frá salernum í gripahúsum skal leidd í hreinsivirki, svo sem rotþró með siturlögn, ásamt sigvatni frá haughúsum og skolvatni frá þvottastöðum. Þar sem við á skal leiða fituríkt fráveituvatn um fituskilju, til dæmis frá hótelum, veitingastöðum eða annarri starfsemi eða athöfnum þar sem fita getur haft slæm áhrif á fráveitu sveitarfélagsins, skal það þá gert í samráði við HES.

Atvinnustarfsemi í dreifbýli, sem ekki getur tengst safnkerfi og sameiginlegu hreinsikerfi en losar meira en 50 pe, skal reka eigið hreinsivirki, svo sem rotþró með siturlögn, sem hefur fengið samþykki HES.

5. gr. Tegundir frárennsla.

Fráveita Reykjanesbæjar veitir frárennsli, sem getur verið húsaskólp, iðnaðarskólp, ofanvatn, kælivatn og ræsisvatn, um fráveitulagnir frá byggð til viðeigandi hreinsivirkis og þaðan til viðtaka.

Einföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni saman í einni fráveitulögn.

Tvöföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni í tveimur aðskildum samliggjandi fráveitulögnum.

Reykjanesbær á allar skólp-, regn- og blandaðar lagnir sem og útrásir, holræsi, ofanvatnsrásir í götum og opnum svæðum, og heimtaug að frárennsli húseigna við lóðamörk. Enn fremur á hún alla fráveitubúnað, þar á meðal brunna, niðurföll, rotþrær, dælustöðvar og hreinsistöðvar.

Þar sem fráveita Reykjanesbæjar nær til skal húseigendum séð fyrir tengingum frá fráveitukerfi að heimtaug húseigna. Þar sem fráveitan liggur um lóðir skal séð fyrir tengigreinum á holræsalögnum. Umhverfis- og framkvæmdasvið ákveður legu götuholræsa og tengigreina, og sér um að tryggja að tengingar séu gerðar í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla. Húseigandi eða byggingaraðili skal leggja inn lagnateikningar til umhverfis- og framkvæmdasviðs Reykjanesbæjar til samþykktar áður en framkvæmd við tengingu við fráveitukerfi hefst.

Þar sem áformað er að koma fyrir mengunarvarnabúnaði á fráveitu, rotþró eða annars konar sértengingar innan lóðar, skal það gert í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HES). Byggingar- eða skipulagsfulltrúi, eða aðili í þeirra umboði, óskar þá eftir umsögn eða samþykki HES fyrir slíkum lausnum.

Við hönnun og rekstur fráveitukerfa í Reykjanesbæ skal ávallt vera fyrsta val að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir (BGO) þar sem því verður við komið. Markmið slíkra lausna er að draga úr álagi á fráveitukerfið, bæta vatnsnýtingu og stuðla að sjálfbærari vatnsstjórnun.

BGO fela í sér aðferðafræði sem stuðlar að náttúrulegri fráveitu og uppgufun regn- og yfirborðsvatns í stað þess að beina því eingöngu í einfaldar eða tvöfaldar fráveitulagnir. Dæmi um slíkar lausnir eru græn þök, regngarðar, gegndræp yfirborðsefni, ofanvatnsgeymar og önnur kerfi sem miða að því að hægja á, dreifa og nýta ofanvatn á skilvirkan hátt.

Við skipulag og þróun nýrra hverfa, sem og við endurnýjun gatna og fráveitulagna í eldri hverfum, skal kanna möguleika á að nýta BGO í samræmi við staðbundnar aðstæður og umhverfiskröfur. Með því er unnið að minnkun flóðahættu, hreinsun yfirborðsvatns og aukinni endurhleðslu grunnvatns, sem styður við vistvæna þróun byggðar í Reykjanesbæ.

6. gr. Mengunarvarnir.

Húseigendum, þar sem fráveitulagnir liggja, ber að leggja og viðhalda heimæðum frá húseign sinni að tengistað við fráveitu Reykjanesbæjar á eigin kostnað. Við byggingu nýrra iðnaðar- eða atvinnuhúsa skal aðgreina fráveitulagnir hússins og setja upp viðeigandi mengunarvarnabúnað þar sem þörf er á, eða gera ráð fyrir honum ef hugsanlega þarf á honum að halda síðar. Sama gildir um gripahús.

Ef þvottaplön eða búnaður, sem getur valdið mengun í fráveitu, eru á iðnaðar- eða athafnalóðum skal gera ráð fyrir viðeigandi mengunarvörnum á fráveitukerfinu. Þar sem aðstæður og byggingarskilmálar leyfa, má leiða ofanvatn frá húseignum og lóðum í sérstakar grjótþrær í jörðu innan lóðarmarka viðkomandi húseigna. Slíkar útfærslur þurfa samþykki byggingarfulltrúa. Þegar lögð er tvöföld fráveita, ber húseigendum að aðskilja skólp frá ofanvatni. Að öðru leyti gilda ákvæði reglugerðar nr. 798/1999 um fráveitur og skólp.

7. gr. Atvinnustarfsemi.

Frá atvinnustarfsemi skal forhreinsa fráveituvatn áður en því er hleypt inn á fráveitukerfi Reykjanesbæjar eða í viðtaka um eigin lagnakerfi. Atvinnustarfsemi sem ber að hafa starfsleyfi í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit eða samþykkta skráningu í samræmi við reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, ber að uppfylla skilyrði um hámarksmagn mengandi efna sem sleppt er um fráveitu til viðtaka, s.s. magn lífrænna efna, svifagna, málma, leiðni, sýrustig o.s.frv. sem fram koma í starfsleyfum þeirra. Rekstraraðilar fyrirtækja bera fulla ábyrgð á eftirliti með hreinsivirkjum og skulu láta tæma þau og hreinsa reglulega.

Við skipulag iðnaðarsvæða og atvinnuhúsnæðis er gerð krafa um að fráveita frá gólfum og vinnslusölum sé aðskilin frá fráveitu salerna, þannig að auðvelt sé að koma fyrir hreinsivirkjum fyrir fráveitu frá vinnslu, jafnvel þótt starfsemin breytist.

Í hvers konar starfsemi þar sem unnið er með olíur eða tekið á móti úrgangsolíu skal leiða fráveitu frá gólfum og vöskum í vinnslusal. Þar sem við á skal fráveituvatni frá niðurföllum í plönum leitt í olíuskilju í samráði við HES. Olíuskiljur skulu hannaðar samkvæmt stöðlum um olíuskiljur nr. ÍST EN 1825-1:2004 og ÍST EN 858-2:2003. Miða skal við að hámark olíu í fráveituvatni frá olíuskiljum sé samkvæmt reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi nr. 884/2017 og fylgja skal leiðbeiningum Umhverfis- og orkustofnunar (UOS) um olíuskiljur með síðari breytingum eða uppfærslum.

Í matvælafyrirtækjum og öðrum fyrirtækjum þar sem unnið er með fitu skal leiða fráveitu frá gólfi, vöskum í vinnslusal og niðurföllum á plönum, ef við á, um fituskilju. Fituskiljur skal hanna samkvæmt ÍST EN 1825-2. Þá skal höfð hliðsjón af leiðbeiningum UOS þannig að hámarksmagn fitu í fráveituvatni eftir hreinsun sé eftirfarandi:

  1. 100 mg/l þar sem viðtaki fráveitunnar flokkast sem síður viðkvæmur.
  2. 50 mg/l þar sem viðtaki flokkast sem viðkvæmur.

Veitingastaðir, skyndibitastaðir og sambærilegur rekstur skulu koma sér upp fituskilju af viðeigandi stærð í samráði við HES. Allur nýr rekstur þar sem fita er meðhöndluð skal frá upphafi starfsemi hafa uppsettan viðurkenndan vöktunarbúnað sem mælir virkni fituskilju og gerir viðvart um bilun eða ófullnægjandi hreinsun. Vöktunarbúnaði skal einnig komið fyrir á öllum núverandi niðurgröfnum fituskiljum. HES mun hafa eftirlit með innleiðingu og virkni búnaðarins í samræmi við bestu aðgengilegu tækni.

Til viðbótar við efnisþætti sem tilgreindir eru í starfsleyfisskilyrðum einstakra fyrirtækja, gilda losunarmörk samkvæmt töflu 1.1 um allt frárennsli sem leitt er inn á fráveitu Reykjanesbæjar eða beint í viðtaka. Einnig skal fylgja ákvæðum reglugerða nr. 798/1999 um fráveitur og skólp og nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Það er á ábyrgð rekstraraðila að sýna fram á að frárennsli þeirra uppfylli þessi mörk, og skulu mælingar ávallt vera á kostnað rekstraraðila. Þar sem ekki er um skráningarskylda eða starfsleyfisskylda starfsemi að ræða getur sveitarfélagið farið fram á að mælingar verði framkvæmdar til að tryggja að losun sé innan marka.

Tafla 1.1: Mæliþættir fyrir fráveitu í síður viðkvæmum og viðkvæmum viðtökum

Mæliþáttur Síður viðkvæmur viðtaki Viðkvæmur viðtaki
Lífræn efni sem COD (mg/l O2) 1.000 125
BOD (mg/l O2) - 25
Svifagnir (mg/l) 500 35
Olía (mg/l) 5 5
Fita (mg/l) 100 50
Hitastig að hámarki (°C) 35 35
Sýrustig, pH (meðaltal fyrir vinnsludag) 6,5–10 6,5–10

II. KAFLI Um fráveitur.

8. gr. Frárennsli.

Þegar ekki er hægt að tryggja nægilegan halla á frárennsli húseignar að fráveitukerfi Reykjanesbæjar, eða þegar grunnkerfi húsa er undir rennsliskóta fráveitukerfis, ber húseiganda að tryggja að fráveituvatni sé veitt í dælubrunn sem staðsettur er á þann hátt að unnt sé að koma fráveitu á fullnægjandi og öruggan hátt í fráveitukerfi Reykjanesbæjar. Hafi fráveita ekki verið komin þegar húseign var byggð skal húseigandi kosta og tengja fráveitu húseignar sinnar við fráveitu sveitarfélagsins eftir að hún hefur verið lögð.

9. gr. Hönnun og efni.

Teikningar skulu fylgja almennum reglum um hönnun fráveitulagna í húsum í samræmi við gildandi byggingarreglugerð og byggingarskilmála. Allt efni skal uppfylla kröfur um gæði og vinnubrögð sem gilda á hverjum tíma.

10. gr. Eftirlit og samþykki.

Byggingarstjóri framkvæmda ber ábyrgð á því að hafa eftirlit með því að fráveitulagnir frá húseignum séu lagðar samkvæmt samþykktum teikningum. Eigandi eða byggingarstjóri ber ábyrgð á að boða til úttektar hjá fráveitu Reykjanesbæjar og fulltrúa HES áður en lagnir eru huldar og fá samþykkt frárennsli frá húseignum og tengingar þeirra við fráveitukerfi bæjarins eða rotþrær.

11. gr. Réttindi og skyldur fasteignaeigenda.

Eigendum fasteigna er skylt að heimila lagningu fráveitulagna Reykjanesbæjar um lóðir sínar og lönd, sem og að þola nauðsynlegt viðhald, enda sé haft samráð við lóðarhafa. Reykjanesbæ ber að halda raski í lágmarki, ganga snyrtilega um og koma öllu í fyrra horf eins og kostur er.

12. gr. Viðhald og notkun fráveitulagna.

Húseigendum ber skylda til að viðhalda fráveitulögnum húseigna sinna og sjá til þess að þær séu reglulega hreinsaðar og lausar við stíflur. Óheimilt er að losa fitu, olíur, bensín, lyf, lífræn leysiefni, önnur spilliefni, föst efni eða önnur efni í fráveitukerfið sem geta valdið skemmdum eða truflað rekstur fráveitukerfisins.

Mengunarvarnir skulu fylgja ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, auk viðeigandi reglugerða og starfsleyfa, ef við á. Til að draga úr magni lífræns og fasts úrgangs í fráveitukerfinu skal eftir föngum nota ristar á niðurföllum, sandskiljur eða slógbrunna.

13. gr. Varnir gegn flóði.

Þar sem hætta er á bakflæði frá fráveitukerfi Reykjanesbæjar um fráveitulagnir húseigna vegna vatnsborðsriss af völdum ofanvatns eða hárrar sjávarstöðu, skulu húseigendur setja upp sjálfvirka flóðloka við gólfniðurföll.

III. KAFLI Um minni hreinsivirki.

14. gr. Kröfur og reglur um rotþrær og hreinsivirki.

Rotþrær skulu uppfylla kröfur og leiðbeiningar UOS um stærð og siturlagnir og vera samþykktar af HES. Hreinsivirki, önnur en rotþrær, sem veita sambærilega eða betri hreinsun á fráveituvatni, skulu einnig hljóta samþykki frá UOS eða HES, eftir því sem við á. Ef fleiri en eitt hús eða húsaþyrping eru tengd við sama rotþróarkerfi eða önnur hreinsivirki, skal staðsetning þeirra vera í samræmi við deiliskipulag og háð leyfi samkvæmt því. Fylgja skal leiðbeiningum UOS um litlar fráveitur með síðari uppfærslum eða breytingum.

Aðgengi fyrir stóra tæmingarbíla að rotþróm og hreinsivirkjum skal vera gott til að tryggja reglulega tæmingu og viðhald. Staðsetningu rotþróa, siturlagna og annarra hreinsivirkja skal sýna á afstöðuteikningum og lagnateikningum húsa.

Í rotþró og önnur stök hreinsivirki skal leiða skólp, baðvatn og þvottavatn frá öllum niðurföllum innanhúss. Hins vegar er óheimilt að tengja afrennsli frá ofnum eða afbræðslukerfum, heitum pottum, þakvatn eða yfirborðsvatn við rotþrær eða önnur stök hreinsivirki. Heimilt er að leiða sturtuvatn í gegnum síur í aftasta hólf rotþróar.

Reykjanesbær ber ábyrgð á að halda skrá yfir öll stök hreinsivirki í sveitarfélaginu, þar á meðal rotþrær og siturlagnir þeirra, og skal tryggja að þau séu tæmd reglulega í samræmi við notkun. Þá skal fylgja leiðbeiningum UOS um litlar fráveitur eða eftir atvikum að mati HES. Ef bilun eða stíflur eiga sér stað milli reglulegra tæminga, bera eigendur viðkomandi hreinsivirkja ábyrgð á að láta tæma þrærnar og gera við á eigin kostnað.

15. gr. Meðhöndlun seyru.

Reykjanesbær eða aðili á vegum sveitarfélagsins annast alla meðhöndlun seyru í sveitarfélaginu, þ.e. hreinsun minni hreinsivirkja, svo sem rotþróa, frá öllu húsnæði sem greiðir fráveitugjald í sveitarfélaginu, ásamt flutningi, endurnýtingu eða förgun í samræmi við ákvæði samþykktar þessarar. Eingöngu þeir aðilar sem hafa starfsleyfi samkvæmt ákvæðum reglugerðar um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, nr. 550/2018, hafa heimild til að tæma rotþrær og önnur hreinsivirki og meðhöndla seyru.

16. gr. Skólphreinsun utan fráveitukerfis.

Skólp frá sérhverri húseign í Reykjanesbæ, sem ekki er unnt að tengja við fráveitukerfi sveitarfélagsins, skal leiða gegnum minna hreinsivirki, svo sem rotþró og siturlögn eða aðra sambærilega hreinsilausn. Eigendur fasteigna skulu sækja um leyfi til sveitarfélagsins fyrir niðursetningu rotþróar eða safntanks. Umsókninni skal fylgja sérteikning sem sýnir gerð og staðsetningu hreinsivirkisins.

Óheimilt er að koma fyrir rotþró án samþykkis eða umsagnar HES. Reykjanesbær skal ávallt óska eftir umsögn HES þegar honum berast teikningar eða gögn þar sem áformað er að koma fyrir rotþró. Rotþrær og lagnir tengdar þeim eru eign húseiganda, sem ber ábyrgð á viðhaldi og rekstri þeirra.

17. gr. Staðsetning hreinsivirkja.

Minna hreinsivirki, svo sem rotþró, og tilheyrandi siturlögn og/eða sandsía skal staðsett innan lóðar viðkomandi húseignar og að jafnaði ekki nær húseigninni en 10 metra. Fjarlægð í mörk aðliggjandi lóðar skal aldrei vera minni en 5 metrar. Ef ekki er hægt að koma siturlögn eða sandsíu fyrir innan lóðar viðkomandi húseignar, getur umhverfis- og framkvæmdasvið í samráði við HES samþykkt annað fyrirkomulag, að fengnu samþykki hlutaðeigandi lóðarhafa. Að öðru leyti skal farið eftir leiðbeiningum UOS um niðursetningu rotþróa og siturlagna.

18. gr. Lagning fráveitulagna.

Allar lagnir vegna hreinsivirkja, þ.m.t. rotþróa, skulu lagðar nægilega djúpt í jörðu til að tryggja að þær séu ætíð frostfríar og virki án truflana.

19. gr. Fráveituvatn og afrennsli.

Fráveituvatni úr rotþró skal veitt í útloftaða siturlögn og/eða sandsíu. Heimilt er, að fenginni umsögn HES, að leyfa að afrennsli rotþróar fari í grjótpúkk ef ekki er unnt að koma siturlögn eða sandsíu fyrir og ekki er ástæða til að krefjast safntanks.

20. gr. Hreinsun og aðgengi.

Rotþrær og önnur minni hreinsivirki skulu hreinsuð í samræmi við ákvæði samþykktar þessarar. Húseigandi ber ábyrgð á að greiður aðgangur sé að hreinsivirkjunum með hreinsitæki, þar með talið að rotþróm og safntanki.

IV. KAFLI Um fráveitugjald.

21. gr. Fráveitugjald.

Af öllum fasteignum í Reykjanesbæ, sem liggja við vegi, götur eða opin svæði þar sem holræsalagnir fráveitu sveitarfélagsins liggja, skal greiða árlegt fráveitugjald. Tekjum af fráveitugjaldi skal varið til að standa straum af kostnaði við fráveitukerfi Reykjanesbæjar. Fráveitugjald skiptist eftirfarandi:

Fráveitugjald/holræsagjald, íbúðarhúsnæði.

Fráveitugjald/holræsagjald, atvinnuhúsnæði.

Gjaldið skal ákveðið í gjaldskrá sem bæjarstjórn setur og birtir í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Heimilt er að skipta starfssvæði fráveitu í sérstök fráveitusvæði og setja sérstaka gjaldskrá fyrir hvert veitusvæði. Slíka skiptingu skal auglýsa með gjaldskránni.

Fráveitugjald skal ákveðið með sérstakri gjaldskrá sem bæjarstjórn setur og birtir í B-deild Stjórnartíðinda, í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. 14. og 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, og að fenginni umsögn HES. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og fyrir fasteignagjöld, og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignagjalda.

Fráveitugjald greiðist af:

Skráðum eiganda fasteignar, ef um eignarlóð er að ræða.

Leigutaka, ef um leigulóð er að ræða. Viðkomandi aðilar bera ábyrgð á greiðslu gjaldsins.

Fráveitugjaldið nýtur lögveðsréttar í viðkomandi fasteign næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

22. gr. Gjaldskrá fyrir hreinsun og tæmingu.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er heimilt að setja gjaldskrá á grundvelli samþykktar þessarar, að fenginni umsögn HES, til að standa undir kostnaði við:

Hreinsun og tæmingu á rotþróm og öðrum minni hreinsivirkjum.

Söfnun og förgun seyru.

Gjald þetta skal ákveðið með sérstakri gjaldskrá í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sem og ákvæði 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Gjaldtakan skal byggjast á rökstuddum kostnaði við veitta þjónustu og framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum. Gjaldið má aldrei vera hærra en sem nemur þessum kostnaði. Gjaldskráin skal samþykkt að fenginni umsögn HES og skal birt í B-deild Stjórnartíðinda.

23. gr. Undanþágur og lækkun gjalda.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er heimilt að nýta sér heimild samkvæmt 7. mgr. 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, til að lækka eða fella niður gjöld samkvæmt þessari samþykkt hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum. Slíkar undanþágur skulu byggjast á reglum sem bæjarstjórn setur og birtar eru opinberlega.

V. KAFLI Málsmeðferð og gildistaka.

24. gr. Refsiákvæði.

Brot gegn samþykkt þessari varða sektum, að því gefnu að þau rúmist innan refsiákvæða hlutaðeigandi heimildarlaga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Slík brot skulu sæta þeirri málsmeðferð sem kveðið er á um í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

Heimilt er að innheimta aukagjald vegna kostnaðar við hreinsun og tæmingu rotþróa ef útlögð vinna fer fram yfir hefðbundna losun eða aðrar ástæður gefa tilefni til. Þá er einnig heimilt að innheimta aukagjald þegar grípa þarf til hreinsunaraðgerða, sýnatöku og rannsókna vegna brota á samþykkt þessari.

Gjöld samkvæmt samþykkt þessari njóta lögveðsréttar í viðkomandi fasteign sem gildir næstu tvö ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði, sbr. 3. mgr. 16. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjöld má innheimta með fjárnámi.

Um valdsvið og þvingunarúrræði fer samkvæmt XVII. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Um viðurlög fer samkvæmt XIX. kafla sömu laga. Stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru samkvæmt samþykkt þessari er heimilt að kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

25. gr. Gildistaka.

Samþykkt þessi staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. einnig 2. mgr. 8. gr. lagaum meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og 10. mgr. 4. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 17. september 2025.

F. h. r.

Erla Arnardóttir.

Trausti Ágúst Hermannsson.

B deild — Útgáfudagur: 1. október 2025

Tengd mál