Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Landskjörstjórn
Málaflokkur
Kosningar, Þjóðaratkvæðagreiðslur
Undirritunardagur
19. mars 2026
Útgáfudagur
24. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 282/2026
19. mars 2026
REGLUR
um fyrirkomulag kynningar á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæðagreiðslu skv. 2. mgr. 2. gr. kosningalaga.
1. gr.
Landskjörstjórn skal standa fyrir víðtækri kynningu á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæðagreiðslu skv. 2. mgr. 2. gr. kosningalaga og ber landskjörstjórn jafnframt ábyrgð á að kynningarefnið sé tiltækt og aðgengilegt kjósendum.
2. gr.
Kynningarefnið skal sett fram á hlutlægan hátt þar sem andstæðum sjónarmiðum eru gerð skil þannig að kjósandi geti tekið upplýsta afstöðu til þeirra spurninga sem bornar eru fram.
3. gr.
Landskjörstjórn getur í því skyni að uppfylla skyldu sína skv. 1. gr. falið hlutlausum aðila eða aðilum að vinna kynningarefni um það málefni sem borið er undir þjóðaratkvæðagreiðslu.
4. gr.
Landskjörstjórn tekur ákvörðun um hvernig kynningarefnið skuli kynnt kjósendum og getur í því skyni leitað til sérfræðinga um útgáfuhátt, miðlun efnis o.fl. Tryggt skal að kynningarefnið sé kjósendum aðgengilegt t.d. á sérstöku vefsvæði landskjörstjórnar.
5. gr.
Reglur þessar eru settar skv. 1. mgr. 52. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og taka þegar gildi.
Landskjörstjórn, 19. mars 2026.
Kristín Edwald.
Arnar Kristinsson.
Indriði Ingi Stefánsson.
Ebba Schram.
Magnús Karel Hannesson.
Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 24. mars 2026