Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Undirritunardagur
2. júlí 2026
Útgáfudagur
16. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 817/2026
2. júlí 2026
AUGLÝSING
um staðfestingu samnings um jörðina Laugarás í Bláskógabyggð.
Ráðuneytið hefur staðfest meðfylgjandi samning um jörðina Laugarás í Bláskógabyggð. Aðildarsveitarfélög að samningnum eru Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur.
Samningurinn er gerður á grundvelli 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og tekur Bláskógabyggð að sér umsjón með eignarhlut aðildarsveitarfélaganna í jörðinni Laugarási samkvæmt nánari ákvæðum samningsins, sem birtur er sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Innviðaráðuneytinu, 2. júlí 2026.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Ólöf Sunna Jónsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. júlí 2026
SAMNINGUR
um jörðina Laugarás í Bláskógabyggð.
1. gr. Samningsaðilar.
Aðilar samnings þessa eru eftirtalin sveitarfélög:
Hrunamannahreppur, kt. 640169-2309, Akurgerði 6, 845 Flúðum.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur, kt. 540602-4410, Árnesi, 804 Selfossi.
Grímsnes- og Grafningshreppur, kt. 590698-2109, Borg, 805 Selfossi.
Bláskógabyggð, kt. 510602-4120, Aratungu, 806 Selfossi.
Bláskógaveita, kt. 630580-0139, Aratungu, 806 Selfossi, er stofnun Bláskógabyggðar og er Bláskógaveita jafnframt skuldbundin af efni samnings þessa.
2. gr. Eignarhlutföll.
Samningsaðilar eiga jörðina Laugarás, L167138, í Bláskógabyggð, með öllu því sem henni fylgir og fylgja ber, þ.m.t. hlunnindum s.s. jarðhitaréttindum, veiðirétti o.s.frv., í óskiptri sameign. Eignarhlutföll eru eftirfarandi:
Hrunamannahreppur 30,0%
Skeiða- og Gnúpverjahreppur 24,9%
Grímsnes- og Grafningshreppur 11,9%
Bláskógabyggð 33,2%
Um er að ræða jörðina sjálfa og allar þær lóðir sem hafa verið skipt úr henni, en samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum frá fasteignaskrá eru það eftirfarandi fasteignir:
|
Landnúmer, |
Heiti | Notkun | Sveitarfélag |
| 167120, 2204756 | Hveratún | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167138, 2204884 | Laugarás | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167140, 2204897 | Skógargata 5 | Annað land | Bláskógabyggð |
| 167141, 2214555 | Ekra | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167145, 2204930 | Heiðmörk | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167147, 2204948 | Lyngás | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167173, 2205171 | Teigur | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167380, 2205516 | Hverabrekka 1 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 167381, 2205519 | Skúlagata 1 | Íbúðar- og atvinnulóð | Bláskógabyggð |
| 167382, STF1078546 | Lindartún 3 | Iðnaðar- og athafnalóð | Bláskógabyggð |
| 167384, STF1078529 | Laugarás | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 167385, 2346123 | Laugarás | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 167386, 2205534 | Launrétt 4 | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 167387, 2205535 | Laugarás | Iðnaðar- og athafnalóð | Bláskógabyggð |
| 167388, 2205537 | Laugarás | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 167390, 2205541 | Austurbyggð 15 Árós | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 167391, 2205543 | Laugarás | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 167392, STF1078535 | Laugarás | Iðnaðar- og athafnalóð | Bláskógabyggð |
| 167395, 2205551 | Kvistholt | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167396, 2214550 | Gerði | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167397, 2214549 | Kirkjuholt | Jörð | Bláskógabyggð |
| 167398, 2205558 | Laugarás | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 167399, 2233837 | Espigerði | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167400, 2217713 | Holtsgata 13a | Jörð | Bláskógabyggð |
| 167401, 2346121 | Holtagata 9 | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 167402, 2213867 | Traðir | Jörð í byggð | Bláskógabyggð |
| 167403, 2205563 | Vesturbyggð 1 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 167404, 2205565 | Vesturbyggð 6 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 167405, 2205567 | Austurbyggð 24 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 167406, 2205568 | Austurbyggð 26 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 167407, 2205569 | Laugarás | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 167409, 2205571 | Brennigerði | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 167410, 2205572 | Klettagata 18 | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 173532, 2219383 | Vesturbyggð 4 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 173790, 2218470 | Laugarás 5 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 190291, 2346245 | Skyrklettagata | Iðnaðar- og athafnalóð | Bláskógabyggð |
| 175560, 2346248 | Skyrklettagata 9 | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 175561, 2226716 | Skyrklettagata 10 | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 175562, 2346249 | Skyrklettagata 12 | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 175563, 2346250 | Skyrklettagata 14 | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 176855, 2230391 | Laugarás tækjahús | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 178954, 2235567 | Laugarás spennistöð | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 180798, 2240625 | Bæjarholt 13 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 189656, 2251504 | Austurbyggð 11 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 189658, 2251505 | Austurbyggð 13 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 190891, 2346074 | Langholtsvegur 5 | Iðnaðar- og athafnalóð | Bláskógabyggð |
| 190923, 2264282 | Langholt 1 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 191608, 2251505 | Bæjarholt 11 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 191790, 2256438 | Traðir 2 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 191892, 2205522 | Lindarbrekka lóð | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 192590, 2295731 | Austurbyggð 5 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 192591, 2295713 | Austurbyggð 7 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 192592, 2346126 | Austurbyggð 17 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 192593, 2346127 | Austurbyggð 19 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 192594, 2292783 | Austurbyggð 28 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 193102, 2204939 | Bjarmaland | Íbúðar- og atvinnulóð | Bláskógabyggð |
| 194817, 2265228 | Bæjarholt 2 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 195571, 2265228 | Holtagata 11 | Sumarbústaðaland | Bláskógabyggð |
| 195572, 2274337 | Laugarás 1 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 197243, 2346124 | Laugarás dælustöð | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 199544, 2318217 | Austurbyggð 1 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 199545, 2346125 | Austurbyggð 9 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 200531, 2286895 | Holtagata 15A | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 201039, 2346128 | Ferjuvegur 3 | Ræktunarland | Bláskógabyggð |
| 202313, 2318458 | Bæjarholt 1 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202314, 2318884 | Bæjarholt 3 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202315, 2346130 | Bæjarholt 4 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202316, 2316812 | Bæjarholt 5 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202317, 2346131 | Bæjarholt 6 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202318, 2316820 | Bæjarholt 7 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202319, 2310068 | Bæjarholt 8 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202320, 2316815 | Bæjarholt 9 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202321, 2346132 | Bæjarholt 10 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202322, 2346133 | Bæjarholt 12 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 202323, 2346134 | Bæjarholt 14 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 210072, 2346136 | Langholt 3 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 216488, 2314560 | Árbyggð 8 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 216606, 2346135 | Langholtsvegur 2 | Annað land | Bláskógabyggð |
| 216607, 2346137 | Langholtsvegur 4 | Annað land | Bláskógabyggð |
| 221391, 2348138 | Hverabrekka 8 | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 221901, 2205559 | Holtsgata 13b | Íbúðar- og atvinnulóð | Bláskógabyggð |
| 223184, 2355849 | Skálholtsvegur spennistöð | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 226567, 2204299 | Kirkjuholtsvegur 1 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 230748, 2512446 | Launrétt 6 | Viðskipta- og þjónustulóð | Bláskógabyggð |
| 230749, 2512445 | Launrétt 8 | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
| 239016, 2537564 | Holtagata 1B | Iðnaðar- og athafnalóð | Bláskógabyggð |
| 239310, 2538129 | Vesturbyggð 7A viðbótarlóð | Íbúðarhúsalóð | Bláskógabyggð |
Framangreind upptalning er sett fram með þeim fyrirvara að á hana kunni eftir atvikum að vanta eignir sem eru misskráðar hjá fasteignaskrá, en slíkar eignir falla jafnframt undir samning þennan með sama hætti og þær sem að framan greinir.
3. gr.Tilgangur samningsins o.fl.
Samningsaðilar eru sammála um að það sé höfuðtilgangur þessa samnings að hafa á einni hendi stjórn og umsjón jarðarinnar. Þá eru aðilar sammála um að enginn samningsaðila eigi að hafa verulegan fjárhagslegan ávinning af samningnum né bera af honum skaða.
Sveitarfélögin Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Grímsnes- og
Grafningshreppur fela Bláskógabyggð, með samningi þessum, umsjón með eignarhlut sínum í jörðinni Laugarási og þar með talið allra framangreindra fasteigna og allra þeirra hlunninda sem eignunum fylgja, á grundvelli 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Bláskógabyggð þarf ekki að fá sérstaka staðfestingu annarra samningsaðila vegna þeirra löggerninga sem gerðir eru á grundvelli samnings þessa. Bláskógabyggð/Bláskógaveitu ber að afhenda öðrum samningsaðilum öll gögn og upplýsingar er varða efni samnings þessa.
Oddvitar sveitarfélaganna skulu funda, eftir því sem þörf er á, vegna þeirra mála sem tengjast samningi þessum og skulu þeir leitast við að sætta þann ágreining sem kann að koma upp. Hvert sveitarfélag fyrir sig getur boðað til fundar vegna málefna sveitarfélaganna og skal fundarboð sent á almennt netfang sveitarfélaganna með a.m.k. einnar viku fyrirvara nema að annað sé samþykkt af hálfu allra sveitarfélaganna.
4. gr. Heimildir og umboð Bláskógabyggðar og tengdra aðila .
Bláskógabyggð skal hafa samráð við aðra aðila samnings þessa varðandi skipulagsmál er varða Laugarásjörðina og það land sem skipt hefur verið úr jörðinni sem sveitarfélögin eiga saman. Ekki er þó þörf á sérstakri staðfestingu samningsaðila vegna skipulagsmála er varða þær fasteignir sem samningur þessi tekur til.
Bláskógabyggð hefur heimild til að leigja út þann hluta jarðarinnar sem ekki hefur verið úthlutað undir lóðir, götur eða göngustíga samkvæmt skipulagi, gera nýja lóðarleigusamninga og endurnýja þá fyrir hönd allra samningsaðila. Lóðarleigusamningar skulu vera í samræmi við og með sömu skilmálum og almennir lóðarleigusamningar Bláskógabyggðar. Þá skal Bláskógabyggð innheimta lóðarleigu samkvæmt lóðarleigusamningum fyrir hönd allra samningsaðila. Lóðarleiga reiknast samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar um lóðarleigu hverju sinni, nú 1% af fasteignamati.
Bláskógabyggð hefur heimild til að úthluta lóðum samkvæmt skipulagi í umboði annarra samningsaðila og fer þá um úthlutunina samkvæmt þeim reglum sem gilda hjá Bláskógabyggð hverju sinni.
Bláskógabyggð hefur jafnframt heimild til þess að leigja út þann hluta jarðarinnar sem ekki hefur verið úthlutað undir mannvirki, til annarrar nýtingar sem samræmist skipulagi.
Bláskógabyggð fer með jarðhitaréttindi sem tilheyra jörðinni Laugarási og hefur rétt til nýtingar á jarðhitanum. Bláskógabyggð er jafnframt heimilt að fela Bláskógaveitu, kt. 630580-0139, jarðhitaleit og nýtingu jarðhitaréttinda sem tilheyra jörðinni. Bláskógaveita annast rekstur hitaveitu í Laugarási og um hitaveituna gildir reglugerð fyrir Bláskógaveitu nr. 505/2008. Um gjald fyrir notkun á heitu vatni fer samkvæmt gjaldskrá Bláskógaveitu, eins og hún er á hverjum tíma. Bláskógabyggð er ekki heimilt að semja við einkaaðila um tiltekin verkefni samkvæmt samningi þessum, sbr. 100. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nema samþykki annarra samningsaðila liggi fyrir.
5. gr. Leigugjald vegna landa og lóða.
Bláskógabyggð skal innheimta leigu af löndum og lóðum samkvæmt gildandi samningum hverju sinni. Bláskógabyggð heldur eftir 40% af heildarupphæð innheimtrar leigu á ári hverju og er það endurgjald vegna kostnaðar Bláskógabyggðar/Bláskógaveitu við öflun á heitu vatni og fyrir umsýslu sveitarfélagsins samkvæmt þessum samningi þ.m.t. innheimtu gjalda.
Eftirstöðvar leigugjalds þ.e. 60% af innheimtu leigugjaldi skal renna til allra landeigendanna fjögurra í sama hlutfalli og tilgreint er í 2. gr. samnings þessa. Gjalddagi leigugjaldsins er 1. febrúar ár hvert vegna ársins á undan og reiknast dráttarvextir eftir almennum reglum hafi leigan fyrir árið á undan ekki verið greidd þann 20. febrúar.
6. gr. Endurgjald vegna sölu á heitu vatni.
Sem endurgjald fyrir sölu Bláskógaveitu á heitu vatni í Laugarási greiðir Bláskógaveita öllum fjórum eigendum jarðarinnar 8,5% af brúttótekjum hvers árs fyrir sölu á heitu vatni samkvæmt gjaldskrá Bláskógaveitu hverju sinni. Greiðslan skiptist niður á sveitarfélögin í sama hlutfalli og tilgreint er í 2. gr. samnings þessa.
Gjalddagi endurgjaldsins fyrir sölu á heitu vatni er 1. febrúar ár hvert vegna ársins á undan. Á endurgjaldið reiknast dráttarvextir eftir almennum reglum ef endurgjaldið fyrir árið á undan hefur ekki verið greitt þann 20. febrúar.
7. gr. Uppbygging innviða og innheimta á gatnagerðar- og heimæðagjöldum.
Bláskógabyggð annast uppbyggingu innviða í Laugarási og rekstur þeirra, þ.e. gatna- og stígakerfis og lagningu vatns- og fráveitukerfa. Bláskógabyggð innheimtir gatnagerðargjöld og heimæðagjöld viðkomandi veitna.
Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Grímsnes- og Grafningshreppur fá enga hlutdeild í innheimtum gatnagerðargjöldum eða heimæðagjöldum enda eru slík gjöld ætluð til þess að standa straum af kostnaði Bláskógabyggðar af uppbyggingu innviða. Hin sveitarfélögin bera jafnframt engan kostnað af uppbyggingu innviða þótt tap verði á tilteknum framkvæmdum við innviðauppbyggingu hjá Bláskógabyggð.
8. gr. Samningstími.
Samningur þessi er ótímabundinn en uppsegjanlegur af hálfu allra samningsaðila með eins árs fyrirvara og byrjar uppsagnarfrestur að líða næstu áramót eftir að uppsögn berst. Uppsögn skal vera skrifleg og skal henni fylgja bókun af fundi viðkomandi sveitarstjórnar þar sem ákvörðun um uppsögn er tekin af sveitarstjórn. Á uppsagnarfresti skuldbinda aðilar sig til þess að semja um lok samningssambandsins og eftir atvikum áframhaldandi samningssamband annarra samningsaðila. Samning þennan skal endurskoða að jafnaði á 5 ára fresti eða oftar ef samningsaðilar óska þess.
Komi til uppsagnar einhvers af samningsaðilum halda þeir löggerningar sem Bláskógabyggð kann að hafa gert á grundvelli samnings þessa gildi sínu gagnvart þriðja aðila enda hefur Bláskógabyggð umboð til þess að fara með og ráðstafa eignarhluta annarra samningsaðila samkvæmt samningi þessum.
Komi til þess að einhver samningsaðila taki ákvörðun um að selja eignarhluta sinn í þeim eignum sem samningur þessi tekur til skal hann tilkynna hinum samningsaðilunum um þá ákvörðun eins fljótt og kostur er. Samningsaðili sem selur eignarhluta sinn er bundinn af eins árs uppsagnarfresti á samningi þessum.
9. gr. Ágreiningur.
Rísi mál út af samningi þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands en samningsaðilar skulu leita allra leiða til þess að jafna ágreining sem kann að koma upp í samningssambandinu.
10. gr. Undirritun samnings o.fl.
Til staðfestu undirrita sveitarstjórar sveitarfélaganna sem eru aðilar að samningi þessum fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarstjóri Bláskógabyggðar undirritar samninginn jafnframt fyrir hönd Bláskógaveitu. Samningur þessi er undirritaður rafrænt.