Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
5. október 2026
Útgáfudagur
20. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1107/2026
5. október 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliður bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
2.47 Reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2025/2041 frá 23. október 2025 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.47.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 5. október 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2025/2041
frá 23. október 2025
um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir
í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús
í árásum Rússa gegn Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/2040 frá 23. október 2025 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 18. maí 2006 samþykkti ráðið reglugerð (EB) nr. 765/2006 (2).
2) Með reglugerð (EB) nr. 765/2006 koma til framkvæmda þær ráðstafanir sem kveðið er á um í ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ (3).
3) Hinn 23. október 2025 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 sem breytir ákvörðun 2012/642/SSUÖ.
4) Samkvæmt ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 er talið rétt að auka við skrána yfir hluti, sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála, með því að bæta við hlutum sem Rússland hefur notað í árásarstríði sínu gegn Úkraínu og hlutum sem stuðla að þróun eða framleiðslu hernaðarkerfa Belarús, þ.m.t. rafeindaíhluti, fjarlægðarmæla, fleiri íðefni sem notuð eru við gerð drifefna, og fleiri málmar, oxíð og málmblöndur sem eru notuð við framleiðslu hernaðarkerfa.
5) Með ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 er talið rétt að auka við skrána yfir vörur sem falla undir útflutningstakmarkanir og gætu stuðlað að því að auka getu Belarús á sviði iðnaðar, s.s. sölt og málmgrýti, vörur úr gúmmíi, pípur, dekk, kvarnarsteinar og byggingarefni.
6) Með ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 eru settar frekari takmarkanir á útvegun hugbúnaðar til ákveðinnar notkunar í banka- og fjármálageiranum til Lýðveldisins Belarús, stjórnar þess, opinberra stofnana, fyrirtækja eða skrifstofa, eða til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar, sem kemur fram fyrir þeirra hönd eða starfar eftir fyrirmælum þeirra, og þjónustu sem stuðlar að því að efla tæknigetu Belarús, þ.e. veitingu tiltekinnar viðskiptalegrar þjónustu í geimnum (e. commercial space-based services), tiltekinnar gervigreindarþjónustu og stórvirkrar tölvuvinnslu- og skammtatölvunarþjónustu. Enn fremur víkkar ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 út gildissvið núgildandi takmarkana þannig að þær nái ekki einungis yfir tæknilegar prófanir og greiningu, samkvæmt flokkuninni í flokki 8676 í aðalvöruflokkuninni, eins og hún er sett fram hjá Hagstofu Sameinuðu þjóðanna, Statistical Papers, Series M, No 77, CPC prov., 1991, heldur einnig aðra þjónustu sem myndar flokk 867 í aðalvöruflokkuninni. Þessi þjónusta felur einkum í sér, samkvæmt flokkuninni í flokki 8675, eftirfarandi vísindalega og tæknilega ráðgjafarþjónustu í tengslum við verkfræði: jarðfræðilega, jarðeðlisfræðilega og aðra vísindalega jarðefnaleit, kannanir undir yfirborði, yfirborðsmælingar og kortagerð.
7) Í ljósi áframhaldandi árásarstríðs Rússlands gegn Úkraínu, sem Belarús tekur þátt í, ætti lögbært stjórnvald að meta fyrir fram frekari veitingu þjónustu við Lýðveldið Belarús, stjórn þess, opinberar stofnanir, fyrirtæki eða skrifstofur, til að draga úr þeirri áhættu að þjónusta efli hernaðarlega, tæknilega eða iðnaðarlega getu Belarús. Með ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 eru því settar fram kröfur um fyrirframheimild lögbærs stjórnvalds fyrir hvers kyns þjónustu sem veitt er Lýðveldinu Belarús, stjórn þess, opinberum stofnunum, fyrirtækjum eða skrifstofum sem fellur ekki þegar undir þvingunaraðgerðirnar sem settar eru fram í reglugerð (EB) nr. 765/2006.
8) Með ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 eru settar takmarkanir á veitingu þjónustu á sviði sýndareigna veitingu greiðsluþjónustu sem um getur í 5. og 7. lið I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 (4) og á útgáfu rafeyris til ríkisborgara Belarús, einstaklinga sem búsettir eru í Belarús og lögaðila, rekstrareininga eða stofnana með staðfestu í Belarús, með tilliti til mikilvægis þessarar þjónustu fyrir þróun fjártækni og rafrænnar verslunar í Belarús og mögulegrar notkunar þjónustu á sviði sýndareigna til að sniðganga þvingunaraðgerðir. Þessar takmarkanir ná ekki til framkvæmdar greiðslna, eins og um getur í 3. og 4. lið I. viðauka við tilskipun (ESB) 2015/2366. Ekki ætti að líta svo á að þessar takmarkanir á veitingu greiðsluþjónustu skyldi þjónustuveitendur sem virkja greiðslur (e. payment initiation service providers) til að ákvarða ríkisfang, búsetu eða staðfestustað notenda greiðsluþjónustu í hverju einstöku tilviki eða móttakendur greiðslna (e. acquirers of payment transactions) til að beita refsiaðgerðum við skimun einstakra greiðslukortafærslna. Meginábyrgð á því að fylgja eftir refsiaðgerðum í tengslum við framkvæmd greiðslna hvílir á þeim greiðsluþjónustuveitanda sem þjónustar viðkomandi reikning. Þessar takmarkanir á veitingu þjónustu á sviði sýndareigna eru einnig bindandi fyrir þjónustuveitendur sýndareigna sem starfa samkvæmt umbreytingarfyrirkomulaginu sem sett er fram í 3. mgr. 143. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 (5).
9) Með ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 er bætt við undanþágum sem eru nauðsynlegar í mannúðarskyni, vegna útflutnings, sölu, afhendingar, tilflutnings eða flutnings á lyfjum, lækninga- eða landbúnaðarafurðum og matvælum, til að tryggja aðgang að dóms-, stjórnsýslu- eða gerðardómsmeðferðum í aðildarríki, og vegna viðurkenningar á eða fullnustu dóms eða gerðardóms sem fellur í aðildarríki. Þessar undanþágur og frávik hafa ekki áhrif á bannið við því að rekstraraðilar í Sambandinu veiti rekstrareiningum, sem eru á skrá í XV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 765/2006, sendingarþjónustu á sviði fjármála.
10) Til að draga enn frekar úr tekjum Belarús er með ákvörðun (SSUÖ) 2025/2040 talið viðeigandi að víkka út bannið við kaupum, innflutningi eða tilflutningi tiltekinna hluta, sem gerir Belarús kleift að auka fjölbreytni tekjulinda sinna, þannig að það nái yfir öll keðjulaga vetniskolefni.
11) Loks þykir rétt að gera tilteknar tæknilegar breytingar á megintexta og viðaukum til að bæta nákvæmni og skýrleika tiltekinna ákvæða reglugerðar (EB) nr. 765/2006.
12) Þessar aðgerðir falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er
lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg, einkum til að tryggt sé að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
13) Því ætti að breyta reglugerð (EB) nr. 765/2006 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Reglugerð (EB) nr. 765/2006 er breytt sem hér segir:
1) Eftirfarandi liðir bætast við í 1. gr.:
„28. „sýndareignir“: sýndareignir eins og þær eru skilgreindar í 5. lið 1. mgr. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 (6).“
29. „greiðsluþjónusta“: þjónusta eins og hún er skilgreind í 3. lið 4. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 (7).
2) Ákvæðum 1. gr. bb er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„3c. Bönnin í 1. og 3. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á vörum sem falla undir SN-númer 2501, 2505, 2507, 2513, 2516, 2517, 2528, 2606, 6804, 6815 og 6903, sem skráð eru í XVIII. viðauka, sem eru nauðsynlegar vegna efnda, til 25. janúar 2026, á samningum sem gerðir voru fyrir 24. október 2025 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.
3d. Bönnin í 1. og 3. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á vörum sem falla undir SN-númer 6902 og 6909 19, sem skráð eru í VIII. viðauka, sem eru nauðsynlegar vegna efnda, til 25. apríl 2026, á samningum sem gerðir voru fyrir 24. október 2025 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“
b) Ákvæði 9. mgr. falla brott.
3) Í 1. gr. ga fellur 5. mgr. brott.
4) Ákvæðum 1. gr. jc er breytt sem hér segir:
a) Í stað inngangsorðanna í 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„1. Lagt er bann við því að veita, með beinum eða óbeinum hætti, reikningshaldsþjónustu, endurskoðunarþjónustu, þ.m.t. lögboðna endurskoðunarþjónustu, bókhaldsþjónustu, skattaráðgjöf og viðskipta- og rekstrarráðgjöf eða almannatengslaþjónustu:“.
b) Í stað inngangsorðanna í 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. Lagt er bann við því að veita, beint eða óbeint, þjónustu á sviði byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar, arkitektaþjónustu, verkfræðiþjónustu, þjónustu á sviði samþættrar verkfræði, borgarskipulags, vísindalegrar og tæknilegrar ráðgjafar sem tengist verkfræði og þjónustu tengda tæknilegum prófunum og greiningu, lögfræðiráðgjöf eða ráðgjafarþjónustu á sviði upplýsingatækni:“.
c) Í stað inngangsorðanna í 3. mgr. kemur eftirfarandi:
„3. Lagt er bann við því að veita, beint eða óbeint, þjónustu á sviði auglýsinga, markaðsrannsókna eða skoðanakannana:“
d) Í stað inngangsorðanna í 4. mgr. kemur eftirfarandi:
„4. Lagt er bann við því að selja, afhenda, flytja til, flytja út eða útvega, beint eða óbeint, hugbúnað til fyrirtækjastjórnunar og hugbúnað til hönnunar og framleiðslu á sviði iðnaðar eða hugbúnað til ákveðinnar notkunar í banka- og fjármálageiranum, eins og skráð er í XXVI. viðauka:“
e) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„4a. Lagt er bann við því, frá og með 25. nóvember 2025, að veita, með beinum eða óbeinum hætti, viðskiptalega þjónustu í geimnum sem felur í sér jarðfjarkönnun eða gervihnattaleiðsögu, gervigreindarþjónustu sem felur í sér aðgang að líkönum eða vettvöngum fyrir þjálfun þeirra, fínstillingu og ályktanir eða stórvirka tölvuvinnslu, þ.m.t. aðgang að hraðari tölvuvinnslu með myndvinnslueiningu (e. graphic processing unit accelerated computing) eða skammtatölvunarþjónustu:
a) Lýðveldisins Belarús, stjórn þess, opinberum stofnunum, fyrirtækjum eða skrifstofum eða
b) einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem kemur fram fyrir hönd eða starfar eftir fyrirmælum Lýðveldisins Belarús, stjórnar þess, opinberra stofnana, fyrirtækja eða skrifstofa.“ ;
f) Í stað 5. mgr. kemur eftirfarandi:
„5. Lagt er bann við því að:
a) veita tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu, sem tengist þjónustu og hugbúnaði sem um getur í 1. mgr. til 4. mgr. a, með beinum eða óbeinum hætti, til Lýðveldisins Belarús, stjórnar þess, opinberra stofnana, fyrirtækja eða skrifstofa, eða til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem kemur fram fyrir hönd eða starfar eftir fyrirmælum slíks lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar,
b) veita fjármögnun eða fjárhagsaðstoð sem tengist þjónustu og hugbúnaði sem um getur í 1. til 4. mgr. a, vegna veitingar tengdrar tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, til Lýðveldisins Belarús, stjórnar þess, opinberra stofnana, fyrirtækja eða skrifstofa, eða til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar, sem kemur fram fyrir hönd eða starfar eftir fyrirmælum slíks lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar eða
c) selja, veita leyfi fyrir eða framselja með öðrum hætti hugverkarétt eða viðskiptaleyndarmál, sem og að veita rétt til aðgangs að eða endurnotkunar á hvers kyns efni eða upplýsingum sem njóta verndar hugverkaréttar eða sem fela í sér viðskiptaleyndarmál, sem tengjast hugbúnaði sem um getur í 4. mgr. og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þann hugbúnað, beint eða óbeint, til handa Lýðveldinu Belarús, stjórn þess, opinberum stofnunum, fyrirtækjum eða skrifstofum eða einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem kemur fram fyrir hönd eða starfar eftir fyrirmælum slíks lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar.“ .
g) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„5a. Krefjast skal fyrirframleyfis til að veita Lýðveldinu Belarús, stjórn þess, opinberum stofnunum, fyrirtækjum eða skrifstofum, beint eða óbeint, þjónustu sem ekki fellur undir 1., 2., eða 3. mgr. eða 4. mgr. a. Lögbær stjórnvöld geta, á grundvelli sérstaks mats sem byggist á hverju tilviki fyrir sig, heimilað veitingu slíkrar þjónustu samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að það sé í samræmi við markmið þessarar reglugerðar.“
h) Í stað 10. mgr. kemur eftirfarandi:
„10. Bönnin í 2. og 4. mgr. og bönnin, sem tengjast viðskiptalegri þjónustu í geimnum, í 4. mgr. a gilda ekki um veitingu þjónustu eða útvegun hugbúnaðar sem er nauðsynlegur vegna neyðarástands í heilbrigðismálum, til að koma án tafar í veg fyrir eða milda atburð sem líklegt má telja að hafi alvarleg og veruleg áhrif á heilbrigði og öryggi manna eða umhverfið eða til að bregðast við náttúruhamförum.“
i) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„10a. Bönnin í 4. mgr. gilda ekki um útvegun hugbúnaðar til ákveðinnar notkunar í banka- og fjármálageiranum, eins og skráð er í XXVI. viðauka, sem er nauðsynlegur vegna efnda samninga, sem gerðir eru fyrir 24. október 2025, fram til 25. janúar 2026 eða fylgisamninga sem eru nauðsynlegir vegna efnda slíkra samninga.
10b. Ákvæði 5. mgr. a skulu ekki gilda fyrr en 1. janúar 2026 um efndir samninga sem gerðir voru fyrir 24. október 2025 eða fylgisamninga sem nauðsynlegir eru vegna framkvæmdar slíks samnings.“
j) Í stað 12. mgr. kemur eftirfarandi:
„12. Þrátt fyrir bönnin er varða hugbúnað í 4. mgr. og bönnin er varða veitingu gervigreindarþjónustu og stórvirka tölvuvinnslu- eða skammtatölvunarþjónustu í 4. mgr. a geta lögbær stjórnvöld heimilað útvegun hugbúnaðar og þjónustu sem þar um getur, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að hugbúnaðurinn eða þjónustan sé bráðnauðsynleg til að ríkisborgarar Belarús geti lagt sitt af mörkum til alþjóðlegra verkefna um opinn aðgang.“
k) Í stað inngangsorðanna í 13. mgr. kemur eftirfarandi:
„13. Þrátt fyrir ákvæði 1.–5. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað þá þjónustu og hugbúnað sem um getur í þeim, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að þetta sé nauðsynlegt:“
l) Í stað 15. mgr. kemur eftirfarandi:
„15. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 5. mgr. a og 11. til 14. mgr. innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“
5) Eftirfarandi málsgrein er bætt við 1. gr. ra:
„9b. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númer 2901 10 00 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki fyrr en 25. janúar 2026 um efndir samninga sem gerðir voru fyrir 24. október 2025 eða fylgisamninga sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.
9c. Frá og með 26. janúar 2026 til 25. júlí 2026 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um kaup eða innflutning til Ungverjalands á vörum sem falla undir SN-númer 2901 10 00 og eru upprunnar í eða fluttar út frá Belarús, að því tilskildu að vörurnar séu ætlaðar eingöngu til nota í Ungverjalandi.
9d. Vörur sem falla undir SN-númer 2901 10 00, sem fluttar eru inn til Ungverjalands samkvæmt undanþágunni í 9. mgr. c, skulu ekki seldar áfram til kaupenda sem staðsettir eru í öðru aðildarríki eða í þriðja landi.“
6) Ákvæðum 1. gr. s er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„4b. Þrátt fyrir 1. mgr. a geta lögbær stjórnvöld heimilað umflutning um yfirráðasvæði Belarús á vörum og tækni sem eru á skrá í XIV. viðauka a, eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur eða tækni séu nauðsynlegar:
a) vegna lækninga eða lyfja eða í mannúðarskyni, s.s. til að veita, eða greiða fyrir því að veitt sé, aðstoð, þ.m.t. sjúkragögn, matvæli eða tilflutningur starfsmanna hjálparstofnana og tengd aðstoð, eða vegna brottflutnings,
b) til einkanota og undir fullu eftirliti aðildarríkisins sem veitir heimildina og til að uppfylla viðhaldsskyldur sínar á svæðum sem falla undir langtímaleigusamning milli þess aðildarríkis og Belarús eða
c) til að koma á fót kjarnorkugetu til borgaralegra nota, til reksturs hennar, viðhalds, eldsneytisafhendingar og -endurmeðhöndlunar og öryggis hennar, og til að halda áfram hönnun, byggingu og gangsetningu sem þarf til að ljúka við kjarnorkustöðvar til borgaralegra nota, til afhendingar forefna til framleiðslu á geislavirkum samsætum til lækninga og svipaðrar læknisfræðilegrar notkunar, eða mikilvægrar tækni til vöktunar á geislun í umhverfinu, sem og til samstarfs um kjarnorku til borgaralegra nota, einkum á sviði rannsókna og þróunar.“ ;
7) Ákvæðum 1. gr. u er breytt sem hér segir:
a) Í stað 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. Lagt er bann við því að veita ríkisborgurum Belarús eða einstaklingum sem eru búsettir í Belarús, eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum með staðfestu í Belarús, eftirfarandi þjónustu:
a) þjónustu á sviði sýndareigna, eins og hún er skilgreind í reglugerð (ESB) 2023/1114,
b) útgáfu greiðslumiðla, færsluhirðingu greiðslna eða greiðsluvirkjunarþjónustu, eins og skilgreint er í tilskipun (ESB) 2015/2366,
c) útgáfa rafeyris, eins og skilgreint er í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/110/EB (8).“
b) Í stað 3. mgr. kemur eftirfarandi:
„3. Lagt er bann við því, frá og með 26. mars 2025, að heimila ríkisborgurum Belarús eða einstaklingum með búsetu í Belarús að eiga eða stjórna, með beinum eða óbeinum hætti, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis og veitir þjónustu tengda sýndareignaveski, sýndareignareikningi eða fjárvörslu sýndareigna, eða gegna störfum í stjórnum þeirra.“
8) Ákvæðum 1. gr. v er breytt sem hér segir:
a) Í stað inngangsorðanna í 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„1. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. 1. gr. u geta lögbær stjórnvöld heimilað viðtöku slíks innláns eða veitingu slíkrar þjónustu, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að viðtaka slíks innláns eða veiting slíkrar þjónustu sé:“.
b) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„1a. Bannið í b- og c-lið 2. mgr. 1. gr. u gildir ekki um afhendingu persónusniðinna öryggisskilríkja sem eru nauðsynleg til að fá aðgang að reikningi hjá lánastofnun eða rafeyrisfyrirtæki sem hefur staðfestu í aðildarríki eða landi sem er á skrá í V. viðauka ba.
1b. Þrátt fyrir b- og c-lið 2. mgr. 1. gr. u geta lögbær stjórnvöld heimilað veitingu slíkrar þjónustu samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að það að gera slíkt sé nauðsynlegt vegna einkanota lögaðila, rekstrareininga eða stofnana með staðfestu í Belarús sem eru í eigu eða lúta einvörðungu eða sameiginlegri stjórn lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis eða lands sem er á skrá í V. viðauka ba.“
c) Í stað 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. „Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. a-, b-, d-, e- eða f-lið og 1. mgr. b innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“
9) Í stað inngangsorðanna í 1. gr. w kemur eftirfarandi:
„1. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. 1. gr. u geta lögbær stjórnvöld heimilað viðtöku slíks innláns eða veitingu slíkrar þjónustu, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að viðtaka slíks innláns eða veiting slíkrar þjónustu sé nauðsynleg:“.
10) Eftirfarandi liðir bætast við 1. mgr. a í 1. gr. zb:
„c) nauðsynleg vegna útflutnings, sölu, afhendingar, tilflutnings eða flutnings á lyfjum, lækningavörum, landbúnaðarafurðum og matvælum, þ.m.t. hveiti og áburði, sem heimilt er að flytja út, selja, afhenda, færa til eða flytja til Belarús samkvæmt þessari reglugerð,
d) algerlega nauðsynleg til að tryggja aðgang að dóms-, stjórnsýslu- eða gerðardómsmeðferðum í aðildarríki og viðurkenningu á eða fullnustu dómsúrskurða eða úrskurða gerðardóms sem falla í aðildarríki, að því tilskildu að þau viðskipti séu í samræmi við markmið þessarar reglugerðar eða
e) nauðsynleg í mannúðarskyni, s.s. til að veita, eða greiða fyrir því að veitt sé aðstoð, þ.m.t. sjúkragögn, matvæli, eða tilflutningur starfsmanna hjálparstofnana og tengd aðstoð eða vegna brottflutnings.“ ;
11) Viðaukunum er breytt í samræmi við viðaukann við þessa reglugerð.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 23. október 2025.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. BJERRE
(1) Stjtíð. ESB L, 2025/2040, 23.10.2025, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2025/2040/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 frá 18. maí 2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 134, 20.5.2006, bls. 1, ELI: http://data.europa.eu/eli/reg/2006/765/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ frá 15. október 2012 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 285, 17.10.2012, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2012/642/oj).
(4) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 25. nóvember 2015 um greiðsluþjónustu á innri markaðnum, um breytingu á tilskipunum 2002/65/EB, 2009/110/EB og 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 og niðurfellingu á tilskipun 2007/64/EB ((Stjtíð. ESB L 337, 23.12.2015, bls. 35, ELI: https://data.europa.eu/eli/dir/2015/2366/oj).
(5) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (Stjtíð. ESB L 150, 9.6.2023, bls. 40, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2023/1114/oj).
(6) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (Stjtíð. ESB L 150, 9.6.2023, bls. 40, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2023/1114/oj).
(7) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 frá 25. nóvember 2015 um greiðsluþjónustu á innri markaðnum, um breytingu á tilskipunum 2002/65/EB, 2009/110/EB og 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 og niðurfellingu á tilskipun 2007/64/EB (Stjtíð. ESB L 337, 23.12.2015, bls. 35, ELI: https://data.europa.eu/eli/dir/2015/2366/oj).
(8) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 16. september 2009 um stofnun og rekstur rafeyrisfyrirtækja og varfærniseftirlit með þeim, breytingu á tilskipunum 2005/60/EB og 2006/48/EB og niðurfellingu á tilskipun 2000/46/EB (Stjtíð. ESB L 267, 10.10.2009, bls. 7, ELI: http://data.europa.eu/eli/dir/2009/110/oj).
VIÐAUKI
Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: https://data.europa.eu/eli/reg/2025/2041/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.
B deild — Útgáfudagur: 20. október 2026