Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
6. mars 2008
Útgáfudagur
9. apríl 2008
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 345/2008
6. mars 2008
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1055/2006, um alþjóðlegt meistaranám í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti (LL.M. in Natural Resources Law and International and Environmental Law) við lagadeild Háskóla Íslands.
1. gr.
Við 2. mgr. 3. gr. bætist nýr málsliður svohljóðandi:
D. Lokaritgerð 60 e (ECTS).
2. gr.
Á eftir 3. mgr. 5. gr. kemur nýr málsliður svohljóðandi:
Í sérstökum tilvikum er meistaranema heimilt að skrifa 60 e (ECTS) lokaritgerð enda hafi hann sýnt framúrskarandi árangur í meistaranáminu. Lengd ritgerðarinnar skal vera á bilinu 180-200 bls. (72.000-90.000 orð). Að öðru leyti gilda reglur þessar og almennar reglur lagadeildar um ritgerðir.
3. gr.
Gildistaka og lagastoð.
Ákvæði reglna þessara, sem háskólaráð hefur sett, á grundvelli laga um Háskóla Íslands nr. 41/1999, og 91. gr. reglna nr. 458/2000 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 6. mars 2008.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.