Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Siglingar - skip

Undirritunardagur

10. apríl 2026

Útgáfudagur

13. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 362/2026

10. apríl 2026

REGLUGERÐ

um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðarinnar er að ákveða hvaða ráðstafanir stofnanir eiga að gera sem falið er að skoða, hafa eftirlit með og annast skírteinisútgáfu til skipa í því skyni að fara að alþjóðasamningum um öryggi á hafi úti og varnir gegn mengun sjávar og að stuðla að því að ná markmiðinu um frelsi til að veita þjónustu. Þetta ferli felur í sér þróun og framkvæmd öryggiskrafna sem gilda um bol, vél-, raf- og stjórnbúnað skipa sem falla undir gildissvið alþjóðasamninganna.

2. gr. Stjórnvald og framkvæmd.

Samgöngustofa telst stjórnvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um framkvæmd hennar.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar gerðir sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 326/2023 frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 410-422.
  2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/492 frá 25. mars 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 391/2009 að því er varðar útgöngu Bretlands úr Sambandinu. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 326/2023 frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 436-437.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 788/2014 frá 18. júlí 2014 um ítarlegar reglur um álagningu sekta og févíta og um afturköllun viðurkenninga stofnana sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit skv. 6. og 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 326/2023 frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 423-435.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1355/2014 frá 17. desember 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 391/2009 að því er varðar samþykkt Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar á tilteknum kóðum og tilheyrandi breytingum á tilteknum samningum og bókunum. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 326/2023 frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 438-442.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 30. gr. og 45. gr. a skipalaga, nr. 66/2021, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 10. apríl 2026.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 13. apríl 2026

Tengd mál