Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskólinn á Akureyri
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
23. mars 2026
Útgáfudagur
26. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 297/2026
23. mars 2026
REGLUR
um breytingu á reglum fyrir Háskólann á Akureyri, nr. 694/2022.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglnanna:
- Í stað „háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið“ í 1. mgr. kemur: menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
- Í stað 1. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir svohljóðandi: Háskólinn starfar sem tvö fræðasvið, samkvæmt ákvörðun háskólaráðs. Skipulag stoðþjónustu og stjórnsýslu háskólans ræðst af skipuriti háskólans, einnig samkvæmt ákvörðun háskólaráðs.
- 5. mgr. orðast svo: Umsjón með sameiginlegri stjórnsýslu háskólans og ábyrgð á að starfsemi háskólans sé í samræmi við gildandi lög og góða stjórnsýsluhætti liggur hjá stoðþjónustu og stjórnsýslu háskólans.
- 1. málsl. 6. mgr. fellur brott.
2. gr.
Í stað orðanna „framkvæmdastjóri háskólaskrifstofu, gæða- og mannauðsstjóri, forstöðumenn eininga háskólaskrifstofu, forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og rannsókna og skrifstofustjóri rektorsskrifstofu“ í 4. mgr. 4. gr. reglnanna kemur: og sviðsstjórar stoðþjónustu og stjórnsýslu háskólans.
3. gr.
Í stað orðanna „framkvæmdastjóri háskólaskrifstofu og gæða- og mannauðsstjóri“ í 2. mgr. 8. gr. reglnanna kemur: sviðsstjórar í stoðþjónustu og stjórnsýslu.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglnanna:
- 2. mgr. orðast svo: Rektor ræður sviðsstjóra stoðþjónustu og stjórnsýslu. Fjöldi sviðsstjóra ræðst af skipuriti háskólans samkvæmt ákvörðun háskólaráðs. Rektor setur sviðsstjórum starfslýsingu. Í starfslýsingu a.m.k. eins sviðsstjóra skal kveðið á um ábyrgð viðkomandi á að undirbúa árlega fjárhagsáætlun og hafa eftirlit með því að rekstur háskólans sé til samræmis við gildandi heimildir hverju sinni ásamt því að hafa samvinnu við forseta fræðasviða um fjárreiður þeirra.
- Orðin „og forstöðumann Miðstöðvar doktorsnáms og rannsókna“ og „Forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og rannsókna hefur yfirumsjón með starfi og stjórnsýslu miðstöðvarinnar“ í 3. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „háskólaskrifstofu og rektorsskrifstofu um sameiginleg málefni og miðlæga stjórnsýslu“ í 4. mgr. kemur: annars vegar og stoðþjónustu og stjórnsýslu hins vegar.
- 3. og 4. málsl. 5. mgr. orðast svo: Rektor ræður starfsfólk stoðþjónustu og stjórnsýslu háskólans. Rektor getur veitt sviðsstjórum í stoðþjónustu og stjórnsýslu umboð til að annast ráðningar starfsfólks sem undir þá heyra.
- 5. málsl. 5. mgr. fellur brott.
- 1. málsl. 7. mgr. orðast svo: Rektor skipuleggur útgáfu ársskýrslu háskólans í samráði við starfsfólk stoðþjónustu og stjórnsýslu, forseta fræðasviða, deildarforseta og stofnana, eftir því sem henta þykir.
5. gr.
11. gr. reglnanna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Stoðþjónusta og stjórnsýsla.
Hlutverk stoðþjónustu og stjórnsýslu Háskólans á Akureyri er að framfylgja lögbundnu hlutverki rektors og gæta heildarhagsmuna háskólans. Hlutverk stoðþjónustu og stjórnsýslu er jafnframt að skapa fræðasviðum, deildum, stofnunum og starfsfólki háskólans skilyrði til að vinna störf sín í samræmi við lög og reglur háskólans.
Stoðþjónusta og stjórnsýsla háskólans annast almenna stjórnsýslu og stoðþjónustu fyrir háskólann, fræðasvið og háskólastofnanir eftir nánara samkomulagi.
Skipulagi stoðþjónustu og stjórnsýslu er háttað eins og fram kemur í skipuriti háskólans hverju sinni samkvæmt ákvörðun háskólaráðs.
6. gr.
12. gr. reglnanna fellur brott, ásamt fyrirsögn.
7. gr.
Í stað „háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis“ í 1. mgr. 13. gr. reglnanna kemur: menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.
8. gr.
Í stað orðanna „háskólaskrifstofu og skrifstofu rektors“ í 3. mgr. 14. gr. reglnanna kemur: stoðþjónustu og stjórnsýslu háskólans.
9. gr.
Í stað orðanna „, framkvæmdastjóra og gæða- og mannauðsstjóra“ í 6. mgr. 17. gr. reglnanna kemur: ásamt sviðsstjórum stoðþjónustu og stjórnsýslu.
10. gr.
2. mgr. 33. gr. reglnanna orðast svo: Stoðþjónusta og stjórnsýsla háskólans annast allar auglýsingar bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Allar upplýsingar um laus störf hjá háskólanum skulu vera aðgengilegar á vef háskólans.
11. gr.
Í stað orðanna „skrifstofu rektors“ í 35. gr. reglnanna kemur: stoðþjónustu og stjórnsýslu.
12. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast gildi 1. ágúst 2026.
Háskólanum á Akureyri, 23. mars 2026.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor.
B deild — Útgáfudagur: 26. mars 2026