Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Flóahreppur
Undirritunardagur
10. júlí 2026
Útgáfudagur
10. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 797/2026
10. júlí 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Flóahreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulag, Langholt 1, L166247, 3 landbúnaðarlóðir.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag, sem tekur til Langholts 1, L166247. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindar eru þrjár nýjar lóðir sem teknar eru úr landi Langholts. Gert er ráð fyrir einum byggingarreit innan hverrar lóðar þar sem heimilt er að byggja íbúðarhúsnæði, bílageymslu, gestahús, skemmu og gróðurhús. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Samþykkt í sveitarstjórn 9. júlí 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 10. júlí 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 10. júlí 2026