Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Borgarbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Borgarbyggð
Undirritunardagur
8. maí 2026
Útgáfudagur
26. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 549/2026
8. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Borgarbyggð.
Hraunsás III, nýtt deiliskipulag.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti nýtt deiliskipulag í landi Hraunsáss III, á fundi sínum 12. mars 2026. Deiliskipulagið tekur til um 19 ha landsvæðis en innan þess er skilgreint svæði verslunar og þjónustu um 10,3 ha. Heimilt er að byggja 25 gistihús ásamt þjónustuhúsi. Gistihúsin verða á fjórum lóðum, samtals 50.772 m². Heimilað byggingarmagn er 1.950 m².
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Borgarbyggð, 8. maí 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Ásgerður Hafsteinsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild — Útgáfudagur: 26. maí 2026