Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar, Atvinnustarfsemi, Nýsköpunarverkefni, Fjárfestingar
Undirritunardagur
16. júní 2016
Útgáfudagur
30. júní 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 79/2016
16. júní 2016
LÖG
um breytingu á ýmsum lögum til að styðja við fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í vexti.
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
1. gr.
Á eftir 2. málsl. 9. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Skattlagningu samkvæmt þessari grein skal frestað þar til bréfin eru seld.
2. gr.
Við 1. mgr. 18. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hagnaður einstaklings utan atvinnurekstrar vegna viðskipta með breytanleg skuldabréf sem breytt hefur verið í hlutabréf á lægra verði en nemur markaðsverði bréfanna, sbr. 47.–49. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, og 31.–32. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994, telst til skattskyldra fjármagnstekna þegar hlutabréfin eru seld.
3. gr.
Við A-lið 1. mgr. 30. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: 25% tekna skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. þeirra erlendu sérfræðinga sem skattskyldir eru skv. 1. eða 3. gr., fyrstu þrjú árin frá ráðningu í starf, enda séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
- Erlendur sérfræðingur sé ráðinn til starfa hjá lögaðila sem hefur lögheimili eða fasta starfsstöð hér á landi og er sá sem greiðir hinum erlenda starfsmanni tekjur sem sérfræðingi.
- Erlendur sérfræðingur hafi ekki verið búsettur eða heimilisfastur hér á landi á fimm ára tímabili næst á undan því almanaksári er hann hóf störf hér á landi.
- Erlendur sérfræðingur búi yfir þekkingu sem ekki sé fyrir hendi hér á landi nema í litlum mæli.
Skrifleg
umsókn
um
staðfestingu
á
því
að
tiltekinn
erlendur
sérfræðingur
uppfylli
skilyrði
ákvæðisins
skal
send
nefnd,
sbr.
3.
mgr.
Umsókn
um
staðfestingu
ásamt
fylgigögnum
skal
berast
eigi
síðar
en
þremur
mánuðum
eftir
að
erlendur
sérfræðingur
hóf
störf
hér
á
landi.
Vinnuveitandi
og/eða
starfsmaður
skulu
senda
nefndinni
umsókn
og
skal
hún
innihalda
þær
upplýsingar
sem
nauðsynlegar
eru
hlutlægu
mati
nefndarinnar,
sbr.
a–c-lið
1.
mgr.
og
4.
mgr.
Ráðherra
skipar
nefndina
sem
meta
skal
hvort
skilyrði
1.
mgr.
fyrir
frádrætti
frá
tekjuskattsstofni
séu
uppfyllt.
Skulu
ráðherra
sem
fer
með
fjárreiður
ríkisins
og
fjármál
og
ráðherra
sem
fer
með
fræðslumál
tilnefna
sinn
fulltrúa
hvor,
en
sá
þriðji
skal
skipaður
án
tilnefningar
og
vera
formaður
nefndarinnar.
Varamenn
skulu
skipaðir
með
sama
hætti.
Nefnd
skv.
3.
mgr.
skal
fara
yfir
þær
umsóknir
sem
berast
og
meta
þær
m.a.
með
tilliti
til
menntunarstigs,
sérþekkingar,
reynslu
og
fjárhæðar
launa.
Telji
nefndin
umsækjanda
uppfylla
skilyrði
ákvæðisins
skal
hún
veita
umsækjanda
staðfestingu
á
því
en
hafna
umsókn
ella.
Afrit
af
staðfestingu
umsóknar
skal
senda
ríkisskattstjóra.
Ákvörðun
nefndar
skv.
4.
mgr.
er
endanleg
á
stjórnsýslustigi.
Ráðherra
er
heimilt
að
setja
reglugerð
sem
kveður
nánar
á
um
framkvæmd
þessa
ákvæðis,
m.a.
um
form
og
skilyrði
umsókna,
þær
kröfur
sem
erlendir
sérfræðingar
þurfa
að
uppfylla,
svo
sem
varðandi
menntun,
reynslu
og
fyrri
störf,
auk
ráðningarsamninga,
ásamt
starfsháttum
nefndarinnar
og
nefndarskipan.
4. gr.
1.
tölul.
B-liðar
1.
mgr.
30.
gr.
laganna
orðast
svo:
Allt
að
50%
frá
tekjuskattsstofni
einstaklings,
sbr.
1.
og
3.
gr.,
að
viðbættum
fjármagnstekjum,
af
fjárhæð
sem
hann
sýnir
fram
á
að
sé
til
komin
vegna
fjárfestinga
í
hlutafélagi
eða
einkahlutafélagi
sem
uppfyllir
skilyrði
2.
og
3.
mgr.,
við
álagningu
opinberra
gjalda
á
árunum
2017,
2018
og
2019
vegna
fjárfestinga
á
árunum
2016,
2017
og
2018.
Fyrst
skal
dregið
frá
stofni
til
tekjuskatts
og
síðan
fjármagnstekjuskattsstofni,
að
teknu
tilliti
til
frítekjumarks
vegna
vaxta-
og
leigutekna.
Til
þess
að
einstaklingur
geti
nýtt
sér
heimild
til
frádráttar
skv.
1.
mgr.
þurfa
öll
eftirfarandi
skilyrði
að
vera
uppfyllt:
- Fjárfesting einstaklings í félagi nemi að lágmarki 300 þús. kr. á almanaksári.
- Hver einstaklingur getur nýtt frádráttarheimild vegna heildarfjárfestinga sem nemi að hámarki 10 millj. kr. á almanaksári.
- Einstaklingur geti sýnt fram á að fjárfesting hafi verið að fullu greidd.
- Fjárfesting einstaklings sé til komin vegna hlutafjáraukningar í félagi.
- Félagið skili lista til ríkisskattstjóra yfir þátttakendur hlutafjáraukningarinnar og aukningin sé skráð í hlutafélagaskrá.
-
Einstaklingur sé hvorki tengdur félaginu né félagasamstæðum þess, tveimur árum fyrir og þremur árum eftir skráða hlutafjáraukningu, á eftirfarandi hátt:
- Á grundvelli fjárhagslegra hagsmuna tengdra félaginu eða ef einstaklingur á eða mun eiga rétt á, með beinum eða óbeinum hætti, meira en 30% eignarhlutdeild í félaginu eða atkvæðarétti þess. Einstaklingur telst jafnframt vera tengdur félaginu ef viðskipti hans við félagið vegna hlutafjáraukningarinnar eru ekki sambærileg því sem almennt gerist í viðskiptum milli ótengdra aðila.
- Sem beinn eða óbeinn stjórnarmeðlimur eða starfsmaður félagsins, eða annars félags sem á beint eða óbeint eignarhlutdeild í félaginu. Einstaklingur telst jafnframt vera tengdur félaginu ef hann er tengdur einstaklingi skv. 1. málsl. þessa stafliðar eða a- lið á grundvelli sifjaréttarlegra tengsla, t.d. með hjónabandi eða staðfestri samvist, þeir eru systkini eða skyldir í beinan legg. Það sama á við um viðskiptaleg bönd.
Félag skv. 1. mgr. þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Félagið sé stofnsett á Íslandi eða innan annars EES-ríkis, aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum og með fasta starfsstöð á Íslandi.
- Hjá félaginu starfi ekki fleiri en 25 starfsmenn og félagið sé með árlega veltu undir 650 millj. kr. og/eða efnahagsreikning undir 650 millj. kr. Ef félag er hluti af félagasamstæðu skal miða við samstæðuna í heild á grundvelli samstæðureiknings.
- Félagið hafi lokið greiðslu á öllu lágmarkshlutafé vegna stofnunar þess.
- Félagið hafi ekki verið skráð á skipulegan verðbréfamarkað.
- Félagið hafi ekki, þegar hlutafjáraukning á sér stað, verið starfandi á markaði lengur en sjö ár frá fyrstu sölu þess í viðskiptalegum tilgangi.
- Félagið sé rekið í hagnaðarskyni.
- Félagið eigi ekki í fjárhagsvanda.
- Íslenska ríkið eigi ekki útistandandi endurgreiðslukröfu á félagið vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar.
- Félagið hafi sent ríkisskattstjóra ársreikning sinn fyrir næstliðið reikningsár sem gerður hefur verið í samræmi við lög um ársreikninga.
- Félagið sýni fram á að andvirði hlutafjáraukningarinnar verði ráðstafað í þágu viðskiptastarfsemi þess. Ef félagið hefur ekki hafið viðskiptastarfsemi ber að nota að lágmarki 30% af andvirðinu til rannsókna eða þróunar á viðskiptastarfsemi sem hefjast skal innan tveggja ára frá skráningardegi hlutafjáraukningarinnar.
- Hlutafjáraukning í félagi geti að hámarki numið 2.000 millj. kr. í heild. Ef félag er hluti af félagasamstæðu nær hámarkið til samstæðunnar.
- Áður en hlutafjáraukning fer fram og árlega eftir það skal félag fá staðfestingu ríkisskattstjóra á því að öll skilyrði þessarar málsgreinar séu uppfyllt. Sækja skal um staðfestinguna á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður og getur hann krafið félagið um öll nauðsynleg gögn vegna hennar. Ríkisskattstjóri skal halda sérstaka skrá yfir þau félög sem hljóta staðfestingu samkvæmt ákvæði þessu og skal hún birt á vefsvæði ríkisskattstjóra. Ákvörðun ríkisskattstjóra má skjóta til yfirskattanefndar eftir ákvæðum laga um yfirskattanefnd.
Eftirtalin starfsemi félags fellur ekki undir ákvæði þetta:
- starfsemi sem felst í viðskiptum með fasteignir,
- starfsemi sem felst í útleigu fasteigna eða lausafjár,
- starfsemi eignarhaldsfélaga,
- starfsemi fjárfestingarfélaga,
- starfsemi eftirlitsskyldra aðila skv. 5. gr. laga um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 99/1999,
- starfsemi sem felst í útseldri þjónustu og ráðgjöf sérfræðinga,
- starfsemi sem felst í kvikmyndaframleiðslu,
- starfsemi sem felst í mannvirkjagerð og hvers kyns viðhaldi og endurbótum á mannvirkjum,
- starfsemi tengd fjárfestingu og/eða rekstri hótela, gistiheimila og veitingastaða,
- starfsemi sem felst í útflutningi og innflutningi vara sem framleiddar eru og þróaðar af öðrum,
- starfsemi sem felst í hvers kyns námuvinnslu.
Ef
einstaklingur
sem
notið
hefur
frádráttar
skv.
1.
mgr.
selur
þau
hlutabréf
sem
voru
grundvöllur
frádráttarins
innan
þriggja
ára
frá
því
að
fjárfesting
fer
fram
skal
bakfæra
upphaflega
frádráttinn.
Jafnframt
skal
bakfæra
upphaflega
frádráttinn
ef
einstaklingur
tekur
upp
tengsl
við
félagið
skv.
6.
tölul.
2.
mgr,
eða
ef
félagið
eða
starfsemi
þess
uppfyllir
ekki
lengur
skilyrði
3.
mgr.
eða
fellur
undir
4.
mgr.
Bakfærður
frádráttur
samkvæmt
þessari
málsgrein
skal
færast
til
tekna
á
söluári
viðkomandi
hlutabréfa.
Auk
bakfærslu
skal
einstaklingur
sem
notið
hefur
frádráttar
skv.
1.
mgr.
greiða
15%
álag
af
fjárhæð
ofnýtts
frádráttar.
Ef
frádráttur
samkvæmt
ákvæði
þessu
er
hærri
en
tekjuskattsstofn
skattaðila
að
viðbættum
fjármagnstekjum
á
almanaksári
færist
það
sem
umfram
er
milli
ára
þar
til
hann
er
fullnýttur,
en
þó
ekki
lengur
en
næstu
þrjú
ár.
Það
sem
ónýtt
er
af
frádráttarheimildinni
að
þremur
árum
liðnum
fellur
niður.
Ráðherra
er
heimilt
að
setja
reglugerð
sem
kveður
nánar
á
um
framkvæmd
þessa
ákvæðis,
m.a.
um
þær
kröfur
sem
félög
þurfa
að
uppfylla
skv.
3.
mgr.,
gagnsæiskröfur
og
skilgreiningu
á
hugtakinu
félag
í
fjárhagsvanda.
II. KAFLI Breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda,
nr. 45/1987, með síðari breytingum.
5. gr.
Í stað orðanna „2.–5. tölul.“ í 1. málsl. A-liðar 2. gr. laganna kemur: 2.–6. tölul.
III. KAFLI Breyting á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki,
nr. 152/2009, með síðari breytingum.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
- Í stað „2 milljónum“ tvisvar í 1. tölul. kemur: 10 milljónum.
- Í stað „(EB) nr. 800/2008 frá 6. ágúst 2008“ í 1. tölul. kemur: (ESB) nr. 651/2014 frá 17. júní 2014.
- Í stað „(EB) nr. 800/2008“ í 2. og 8. tölul. kemur: (ESB) nr. 651/2014.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. laganna:
- Í stað „100.000.000 kr.“ í 2. málsl. kemur: 300.000.000 kr.
- Í stað „150.000.000 kr.“ í 3. málsl. kemur: 450.000.000 kr.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi, nr. 41/2015.
8. gr.
Í stað „2 milljónum“ í 6. tölul. 3. gr. laganna kemur: 10 milljónum.
9. gr.
Lög þessi öðlast gildi og koma til framkvæmda sem hér segir:
Ákvæði
1.,
2.
og
7.
gr.
öðlast
þegar
gildi
og
koma
til
framkvæmda
við
álagningu
á
árinu
2017
vegna
tekjuársins
2016.
Ákvæði
3.
og
5.
gr.
öðlast
gildi
1.
janúar
2017
og
koma
til
framkvæmda
við
álagningu
2018
og
staðgreiðslu
opinberra
gjalda
2017.
Ákvæði
4.
gr.
öðlast
gildi
nú
þegar
og
kemur
til
framkvæmda
við
álagningu
opinberra
gjalda
2017
vegna
fjárfestinga
á
árinu
2016.
Ákvæði
6.
og
8.
gr.
öðlast
gildi
og
koma
til
framkvæmda
nú
þegar.
Gjört á Bessastöðum, 16. júní 2016.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Kristján Þór Júlíusson.
A deild - Útgáfud.: 30. júní 2016