Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus

Undirritunardagur

16. júlí 2026

Útgáfudagur

30. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 867/2026

16. júlí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Þorlákshafnarlínu 2.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 16. júlí 2026 breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 29. janúar 2026.

Í breytingunni felast áform um lagningu 132 kV jarðstrengs, Þorlákshafnarlínu 2, meðfram Þorlákshafnarvegi frá sveitarfélagamörkum við Hveragerði að nýju tengivirki við Þorlákshöfn.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 16. júlí 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 30. júlí 2026

Tengd mál