Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

3. janúar 2023

Útgáfudagur

17. janúar 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 10/2023

3. janúar 2023

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2023.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2023, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1424/2022, er til 31. maí 2023 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@skatturinn.is fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2022 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. á tekjuárinu 2021, og að álögð gjöld 2023 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en var við álagningu 2022.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2023 ásamt lögboðnum fylgiskjölum, þ.m.t. ársreikningi. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2023 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1424/2022 og tekur þegar gildi.

Reykjavík, 3. janúar 2023.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 17. janúar 2023

Tengd mál