Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Landbúnaður, Matvæli
Undirritunardagur
5. júní 2025
Útgáfudagur
16. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 975/2025
5. júní 2025
REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 500/2017, um gæðamat, flokkun og merkingu sláturafurða.
1. gr.
Tvær síðustu málsgreinar í töflu I í viðauka II við reglugerðina orðast svo:
Hver aðalflokkur skiptist í þrjá undirflokka með plús og mínus (efri, miðju, neðri). Matvælastofnun ákveður fjölda undirflokka í samráði við hagsmunaaðila. Við gildistöku reglugerðarinnar verða þessir 13 flokkar í notkun:
E, U+, U, U-, R+, R, R-, O+, O, O-, P+, P, P-
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 13. gr. f laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. júní 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. september 2025