Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Fjármálastarfsemi, Bókhald
Undirritunardagur
6. desember 2005
Útgáfudagur
16. desember 2005
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1088/2005
6. desember 2005
REGLUR
um reikningsskil og ársreikning Seðlabanka Íslands.
1. gr.
Um reikningsskil og ársreikning Seðlabanka Íslands gilda eftir því sem við getur átt ákvæði laga nr. 144/1994 um ársreikninga, laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, laga nr. 145/1994 um bókhald svo og góðar bókhalds- og reikningsskilavenjur.
2. gr.
Framlag í ríkissjóð sbr. 34. gr. laga nr. 36/2001 skal reikna af hagnaði ársins samkvæmt rekstrarreikningi að frádregnum reiknuðum tekjum og gjöldum vegna breytinga á gengi íslensku krónunnar.
3. gr.
Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur um sama efni nr. 896/2002.
Forsætisráðuneytinu, 6. desember 2005.
Halldór Ásgrímsson.
Bolli Þór Bollason.
B deild - Útgáfud.: 16. desember 2005