Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húnaþing vestra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Húnaþing vestra
Undirritunardagur
24. júní 2026
Útgáfudagur
1. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 743/2026
24. júní 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Húnaþingi vestra.
Víðihlíð, ferðaþjónustusvæði.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti 9. apríl 2026 deiliskipulag fyrir Víðihlíð, ferðaþjónustusvæði. Deiliskipulagið er sett fram á uppdrætti og í greinargerð í mælikvarða 1:1000, dags. 20. mars 2026, síðast breytt 19. maí 2026.
Málsmeðferð var samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Húnaþingi vestra, 24. júní 2026.
Bogi Kristinsson Magnusen, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 1. júlí 2026