Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Garðabær

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Garðabær

Undirritunardagur

4. desember 2025

Útgáfudagur

9. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1653/2025

4. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir fráveitugjald í Garðabæ.

1. gr.

Af öllum húseignum í Garðabæ skal greiða árlega fráveitugjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem skal varið til þess að standa straum af kostnaði við fráveitu sveitarfélagsins, sbr. 15. gr. samþykktar um fráveitu í Garðabæ.

2. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001.

Fráveitugjald skal nema 0,074% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð, greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

3. gr.

Fráveitugjald greiðist af skráðum eiganda fasteignar ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Fráveitugjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Nýtur fráveitugjaldið lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

4. gr.

Við álagningu árlegs fráveitugjalds getur sveitarstjórn með einfaldri samþykkt sinni nýtt sér heimild í 7. mgr. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna, um niðurfellingu eða lækkun til tekjulítilla elli- og örorkulífeyrisþega.

5. gr.

Í þeim tilvikum sem Garðabær nýtir heimild samkvæmt 14. gr. samþykktar um fráveitu sveitarfélagsins til að innheimta stofngjald skal það nema kr. 300.000. Gjaldið skal breytast í janúar ár hvert miðað við byggingarvísitölu og skal grunnvísitala vera byggingarvísitala í desember 2025, 126,5 stig.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af bæjarstjórn Garðabæjar 4. desember 2025, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005, staðfestist hér með skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna og skv. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, til þess að öðlast gildi við álagningu gjalda á árinu 2026.

Garðabæ 4. desember 2025.

Lúðvík Örn Steinarsson,

sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

B deild — Útgáfudagur: 9. janúar 2026

Tengd mál