Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
30. nóvember 2006
Útgáfudagur
21. desember 2006
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1057/2006
30. nóvember 2006
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1042/2003, um inntöku nýnema í læknisfræðiskor og sjúkraþjálfunarskor í læknadeild Háskóla Íslands.
1. gr.
Ákvæði 1. gr. breytast og verða svohljóðandi:
Læknadeild leggur árlega fyrir háskólaráð rökstuddar tillögur um fjölda stúdenta sem unnt er að taka til náms í læknisfræði og sjúkraþjálfun. Skal beiðni frá læknadeild, þar að lútandi, send háskólaráði fyrir lok nóvember. Háskólaráð afgreiðir tillögur læknadeildar eigi síðar en í janúar.
Ákvörðun um fjölda nýnema, sem teknir eru inn ár hvert, gildir í eitt ár.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar „1. júní“ í 1. mgr. 3. gr. (sbr. 1. gr. reglna nr. 277/2006) kemur: 20. maí.
3. gr.
Í stað tilvísunarinnar „Aðalnámskrá framhaldsskóla – almennum hluta, 1999“ í 4. mgr. 5. gr. kemur: gildandi aðalnámskrá framhaldskóla.
4. gr.
Í stað orðanna „Í fyrsta sinn (árið 2003) verður einkum“ í upphafi 5. mgr. 5. gr. kemur: Einkum er.
5. gr.
Reglur þessar hefur háskólaráð sett á grundvelli tillögu læknadeildar og með vísan til 2. mgr. 13. gr. laga nr. 41/1999, um Háskóla Íslands, sbr. 2. mgr. 89. gr. reglna nr. 458/2000, fyrir Háskóla Íslands.
Breyttar reglur öðlast þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku stúdenta í læknadeild frá og með háskólaárinu 2007 – 2008.
Háskóla Íslands, 30. nóvember 2006.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 21. desember 2006