Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
5. júní 2026
Útgáfudagur
23. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 708/2026
5. júní 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.
1. gr.Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
3.79 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/504 frá 23. apríl 2026 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.79.
4.87 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/511 frá 23. apríl 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.87.
2. gr.Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 5. júní 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild — Útgáfudagur: 23. júní 2026
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2026/504
frá 23. apríl 2026
um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir
með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi,
fullveldi og sjálfstæði Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 17. mars 2014 samþykkti ráðið ákvörðun 2014/145/SSUÖ (1).
2) Í ályktunum sínum frá 19. desember 2024 ítrekaði leiðtogaráðið einbeitta fordæmingu sína á árásarstríði Rússlands gegn Úkraínu, sem er augljóst brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna, og áréttaði áframhaldandi stuðning sinn við sjálfstæði, fullveldi og landamærahelgi Úkraínu innan alþjóðlega viðurkenndra landamæra hennar. Leiðtogaráðið lýsti því yfir að viðleitni til að takmarka enn frekar getu Rússlands til að heyja stríð yrði að halda áfram. Það lét einnig í ljós að Sambandið væri tilbúið að auka þrýsting á Rússland, þ.m.t. með frekari refsiaðgerðum.
3) Í ljósi áframhaldandi og stigvaxandi árása Rússlands á Úkraínu, einkum nýlegrar hrottalegrar hernaðaraðgerðar þess sem beinist vísvitandi gegn borgaralegum innviðum, þ.m.t. orkuverum, vatnsveitum og heilbrigðisstofnunum, sem hefur valdið almennum borgurum miklum þjáningum og hefur það að markmiði að grafa undan viðnámsþrótti Úkraínu, telur ráðið nauðsynlegt að samþykkja frekari þvingunaraðgerðir.
4) Rétt þykir að breyta viðmiðununum fyrir færslu einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana, sem eiga, stjórna, hafa umsjón með eða starfrækja skip sem taka þátt í tiltekinni starfsemi eða sem á annan hátt útvega efnislegan, tæknilegan eða fjárhagslegan stuðning við starfsemi slíkra skipa, á skrá.
5) Einnig þykir rétt að rýmka gildandi undanþágu varðandi greiðslur sem teljast skaðleysisbætur eða bætur, sem veittar eru eftir framkomna áhættu, þannig að hún taki til nýlega skráðs vátryggingafélags.
6) Rétt þykir að innleiða viðbótarundanþágur frá frystingu eigna og banninu við að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilegan tilgreindum aðilum og rekstrareiningum vegna starfsemi ríkisfjármagnaðra aðila sem miðla menningarstefnu aðildarríkjanna á erlendri grundu í Rússlandi, s.s. menningarstofnana, skóla eða samtaka sem styðja þjóðernisminnihlutahópa aðildarríkjanna.
7) Til að letja einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir, sem eru á skrá í viðaukanum við ákvörðun 2014/145/SSUÖ, til að hefja gerðardómsmeðferðir eftir að þvingunaraðgerðir hafa verið samþykktar, sem gætu leitt til þess að farið yrði á svig við þvingunaraðgerðir eða framkvæmd þeirra torvelduð, einkum þegar gerðardómsmeðferð er hafin í þriðja landi, þykir rétt að kveða á um undanþágu sem heimilar, með ákveðnum skilyrðum, affrystingu frystra fjármuna eða efnahagslegs auðs eingöngu til greiðslu málskostnaðar við gerðardómsmeðferð sem slíkum aðilum á skrá hefur verið gert að greiða aðila sem eru ekki á skrá í viðaukanum við ákvörðun 2014/145/SSUÖ og ekki í eigu eða undir stjórn skráðra aðila sem falla undir þvingunaraðgerðirnar sem settar eru fram í þeirri ákvörðun, eða sem eru ekki rússneskir ríkisborgarar eða með staðfestu í Rússlandi og falla ekki undir þær þvingunaraðgerðir sem settar eru fram í ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ (2) eða reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 (3).
8) Rétt þykir að innleiða undanþágu frá þvingunaraðgerðum Sambandsins sem gerir það kleift að affrysta frysta fjármuni rekstrareiningar á skrá eða afhenda henni fjármuni ef það er nauðsynlegt til að auðvelda rekstrareiningunni að draga úr eða reiða sig minna á innflutning á rússneskri hráolíu. Einnig þykir rétt að rýmka gildandi undanþágu vegna afhendingar á tilteknum vörum og þjónustu sem eru nauðsynlegar fyrir neðanjarðarlestakerfið í Sofíu.
9) Sem stendur geta aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, önnur en eru á skrá í viðaukanum við ákvörðun 2014/145/SSUÖ, eða aðilar aðrir en þeir sem koma fram fyrir þeirra hönd eða starfa eftir fyrirmælum þeirra, lagt fram kröfur gegn aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í Sambandinu sem fara að þvingunaraðgerðum, s.s. þegar aðilar í Sambandinu hætta að afhenda fjármuni eða efnahagslegan auð sem hægt væri að gera aðgengilegan aðilum sem eru á skrá samkvæmt ákvörðun 2014/145/SSUÖ. Því er rétt, í því skyni að vernda betur rekstraraðila í Sambandinu, að efla þvingunaraðgerðarramma Sambandsins með því að víkka út gildissvið bannsins við því að efna slíkar kröfur í tengslum við samning eða viðskipti sem þvingunaraðgerðir Sambandsins hafa haft áhrif á með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta. Því ætti einnig að víkka út gildissvið bannsins við því að efna slíkar kröfur þannig að það nái yfir kröfur sem einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í þriðju löndum, öðrum en aðildarríkjum eða samstarfslöndum sem eru á skrá í VII. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ, leggja fram.
10) Ráðið telur að bæta ætti 37 aðilum og 80 rekstrareiningum, sem bera ábyrgð á aðgerðum sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, á skrána yfir aðila, rekstrareiningar og stofnanir sem falla undir þvingunaraðgerðir sem sett er fram í viðaukanum við ákvörðun 2014/145/SSUÖ.
11) Því ætti að breyta ákvörðun 2014/145/SSUÖ til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun 2014/145/SSUÖ er breytt sem hér segir:
1) Í stað h-liðar 1. mgr. 1. gr. kemur eftirfarandi:
„h) einstaklingar sem eiga, stjórna, hafa umsjón með eða starfrækja skip sem flytja hráolíu eða jarðolíuafurðir eða jarðefni sem eru upprunnin í Rússlandi eða flutt út frá Rússlandi, og stunda ólögmæta og áhættusama sjóflutninga eins og fram kemur í ályktun allsherjarþings Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar A.1192(33), eða útvega á annan hátt starfsemi slíkra skipa efnislegan, tæknilegan eða fjárhagslegan stuðning eða“.
2) Ákvæðum 2. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað k-liðar 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„k) einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem eiga, stjórna, hafa umsjón með eða starfrækja skip sem flytja hráolíu eða jarðolíuafurðir eða jarðefni sem eru upprunnin í Rússlandi eða flutt út frá Rússlandi, og stunda ólögmæta og áhættusama sjóflutninga eins og fram kemur í ályktun allsherjarþings Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar A.1192(33), eða útvega á annan hátt starfsemi slíkra skipa efnislegan, tæknilegan eða fjárhagslegan stuðning eða“.
b) Eftirfarandi liðum er bætt við í 3. mgr.:
„f) nauðsynlegur vegna þarfa ríkisfjármagnaðra aðila sem miðla menningarstefnu aðildarríkjanna á erlendri grundu í Rússlandi,
g) nauðsynlegur vegna áætlana aðildarríkjanna um sögulega ábyrgð eða stuðning við þjóðernisminnihlutahópa aðildarríkjanna í Rússlandi.“
c) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„4c. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. þessarar greinar geta lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur ef slíkir fjármunir eða efnahagslegur auður er andlag ákvörðunar gerðardóms, sem tekin er eftir þann dag þegar viðkomandi einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun, sem um getur í þessari grein, var færð inn í viðaukann, að því tilskildu að sá einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun hafi sett af stað gerðardómsmeðferðina sem leiddi til þeirrar ákvörðunar. Veita má slíka heimild að því marki sem ákvörðun gerðardómsins fjallar um ákvörðun málskostnaðar vegna gerðardómsmeðferðar og ákvörðunin úrskurðar slíkan kostnað málsaðila í vil, sem er einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun sem er ekki á skrá, í eigu eða undir stjórn aðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er á skrá og sætir þvingunaraðgerðum samkvæmt þessari ákvörðun, eða sem er ekki rússneskur ríkisborgari eða með staðfestu í Rússlandi og fellur ekki undir þvingunaraðgerðir sem settar eru fram í ákvörðun 2014/512/SSUÖ eða í reglugerð (ESB) nr. 833/2014.
Slík heimild skal takmarkast við greiðslu málskostnaðar vegna gerðardómsmeðferðarinnar, þ.m.t., eftir því sem við á, þóknun og kostnaður gerðardómsins, umsýsluþóknun gerðardómsstofnunarinnar og sanngjarn lögfræðikostnaður og annar málskostnaður gagnaðila, eins og gerðardómurinn úrskurðar í tengslum við framkvæmd gerðardómsmeðferðarinnar. Hún skal ekki taka til greiðslu á höfuðstól, skaðabótum, vöxtum eða öðrum efnislegum kröfum sem dæmdar eru, svo lengi sem þvingunaraðgerðir eru í gildi.“
d) Ákvæðum 28. mgr. er breytt sem hér segir:
i. Í inngangsorðunum koma orðin „rekstrareiningum sem skráðar eru undir færslunúmer 56, 270, 579 og 726“ í stað orðanna „rekstrareiningum sem skráðar eru undir færslunúmer 56, 270 og 579“.
ii. Í a-lið koma orðin „rekstrareiningum sem skráðar eru undir færslunúmer 56, 270, 579 og 726“ í stað orðanna „rekstrareiningum sem skráðar eru undir færslunúmer 56, 270 og 579“.
e) Í stað 34. mgr. kemur eftirfarandi:
„34. Þrátt fyrir 2. mgr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, greiðslur til rekstrareiningar sem skráð er undir færslunúmerinu 265 undir fyrirsögninni „B. Rekstrareiningar“ í viðaukanum, fyrir vörur og þjónustu sem einungis sú rekstrareining getur veitt og sem eru nauðsynlegar vegna rekstrar, viðhalds eða viðgerða á lestarvögnum á línu 3 í neðanjarðarlestakerfi Búdapest, sem Metrowagonmash afhenti 2018, og á lestarvögnum á línum 1, 2 og 4 í neðanjarðarlestarkerfi Sofíu, sem Metrowagonmash afhenti fyrir 2017.“
f) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„35. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. þessarar greinar geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað að tilteknir frystir fjármunir, sem tilheyra rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmer 639 undir fyrirsögninni „Rekstrareiningar“ í viðaukanum við þessa ákvörðun, verði affrystur eða tiltekinn efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur þessari rekstrareiningu, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að slíkir fjármunir og efnahagslegur auður séu algerlega nauðsynleg til að auðvelda það að draga verulega úr eða reiða sig minna á innflutning á rússneskri hráolíu og að því tilskildu að lokið hafi verið við að affrysta fjármunina eða gera efnahagslega auðinn aðgengilegan fyrir 24. október 2026.“
3) Eftirfarandi lið er bætt við í 1. mgr. 4. gr. b:
„c) einstaklingi frá þriðja landi eða lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun með staðfestu í þriðja landi, að undanskildum samstarfslöndunum sem eru á skrá í VII. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ, sem gerir fjármuni eða efnahagslegan auð, sem bannað er að gera aðgengilegan samkvæmt þessari ákvörðun og reglugerð (ESB) nr. 269/2014, aðgengilegan aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a- eða b-lið þessarar málsgreinar.“
4) Viðaukanum er breytt í samræmi við viðaukann við þessa ákvörðun.
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 23. apríl 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. RAOUNA
(1) Ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 16, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/145(1)/oj).
(2) Ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 13, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/512/oj).
(3) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/833/oj).
VIÐAUKI
[Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: https://data.europa.eu/eli/dec/2025/2036/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/511
frá 23. apríl 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða
sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Með reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 (2) koma þær þvingunaraðgerðir til framkvæmda sem kveðið er á um í ákvörðun 2014/145/SSUÖ.
2) Hinn 23. apríl 2026 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2026/504 (3), um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ. Einnig ætti að breyta reglugerð (ESB) nr. 269/2014 til samræmis við það.
3) Ákvörðun (SSUÖ) 2026/504 breytir viðmiðuninni fyrir færslu einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana, sem eiga, stjórna, hafa umsjón með eða starfrækja skip sem taka þátt í tiltekinni starfsemi eða sem á annan hátt útvega efnislegan, tæknilegan eða fjárhagslegan stuðning við starfsemi slíkra skipa, á skrá.
4) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/504 er gildandi undanþága varðandi greiðslur sem teljast skaðleysisbætur eða bætur sem veittar eru eftir framkomna áhættu rýmkuð þannig að hún taki til nýlega skráðs vátryggingafélags.
5) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/504 eru innleiddar viðbótarundanþágur frá frystingu eigna og banninu við að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilegan tilgreindum aðilum og rekstrareiningum vegna starfsemi ríkisfjármagnaðra aðila sem miðla menningarstefnu aðildarríkjanna á erlendri grundu í Rússlandi, s.s. menningarstofnana, skóla eða samtaka sem styðja þjóðernisminnihlutahópa aðildarríkjanna.
6) Ekki er hægt að efna kröfur sem aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, sem eru á skrá í I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 269/2014, eða rekstrareiningar í eigu slíkra aðila, rekstrareininga eða stofnana hafa lagt fram ef þær tengjast samningum eða viðskiptum sem þvingunaraðgerðir hafa áhrif á. Þetta bann nær einnig til krafna sem farið er með fyrir gerðardóma á grundvelli gerðardómsákvæða í samningum, í andstöðu við markmið 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 eða 11. gr. reglugerðar ráðsins (ESB) nr. 833/2014 (4). Til að letja einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir, sem eru á skrá í I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 269/2014, til þess að hefja gerðardómsmeðferðir eftir að þvingunaraðgerðir hafa verið samþykktar, sem gætu leitt til þess að farið sé á svig við þvingunaraðgerðir eða framkvæmd þeirra torvelduð, einkum þegar gerðardómsmeðferð er hafin í þriðja landi, er í ákvörðun (SSUÖ) 2026/504 kveðið á um undanþágu sem heimilar, með ákveðnum skilyrðum, affrystingu frystra fjármuna eða efnahagslegs auðs eingöngu til greiðslu kostnaðar vegna gerðardómsmeðferðar sem slíkum aðilum á skrá hefur verið gert að greiða til handa málsaðilum sem eru hvorki aðilar á skrá í I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 269/2014 né í eigu eða undir stjórn skráðra aðila sem sæta þvingunaraðgerðunum sem settar eru fram í þeirri reglugerð, eða sem eru ekki rússneskir ríkisborgarar né með staðfestu í Rússlandi og heyra ekki undir þvingunaraðgerðirnar sem settar eru fram í reglugerð (ESB) nr. 833/2014.
7) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/504 er innleidd ný undanþága sem gerir það kleift að affrysta frysta fjármuni rekstrareiningar á skrá eða afhenda henni fjármuni ef það er nauðsynlegt til að auðvelda rekstrareiningunni að draga úr eða reiða sig minna á innflutning á rússneskri hráolíu. Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/504 er einnig rýmkuð gildandi undanþága vegna afhendingar á tilteknum vörum og þjónustu sem er nauðsynleg fyrir neðanjarðarlestakerfið í Sofíu.
8) Sem stendur geta aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, önnur en eru á skrá í reglugerð (ESB) nr. 269/2014, eða aðrir aðilar en þeir sem koma fram fyrir fyrir þeirra hönd eða starfa eftir fyrirmælum þeirra, lagt fram kröfur gegn aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í Sambandinu sem fara að þvingunaraðgerðum, s.s. þegar aðilar í Sambandinu hætta að afhenda fjármuni eða efnahagslegan auð sem hægt væri að gera aðgengilegan aðilum sem eru á skrá samkvæmt þessari reglugerð. Þannig er með ákvörðun (SSUÖ) 2026/504 þvingunaraðgerðarammi Sambandsins efldur með því að víkka út gildissvið bannsins við að efna slíkar kröfur í tengslum við samning eða viðskipti sem þvingunaraðgerðir Sambandsins hafa haft áhrif, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, í því skyni að vernda betur rekstraraðila í Sambandinu. Gildissvið bannsins í reglugerð (ESB) nr. 269/2014 við því að efna slíkar kröfur ætti því að ná til krafna sem einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í þriðju löndum, öðrum en samstarfslöndunum sem skráð eru í VIII. viðauka við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014, leggja fram.
9) Rússneskir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, eða aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir í þeirra eigu eða undir þeirra stjórn, gætu leitað fullnustu dóms- og stjórnsýsluákvarðana í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi. Slíkar tilraunir má byggja á kröfum í tengslum við samninga sem verða fyrir áhrifum af þvingunaraðgerðum. Því er viðeigandi að auka möguleika einstaklinga eða lögaðila í Sambandinu á því að fara fram á skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum og stofnunum sem leita, eða hafa samstarf um, fullnustu þessara ákvarðana í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi, sem og frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í þeirra eigu eða undir þeirra stjórn.
10) Þessar ráðstafanir falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg, einkum til að tryggt sé að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
11) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) nr. 269/2014 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Reglugerð (ESB) nr. 269/2014 er breytt sem hér segir:
1) Í stað k-liðar 1. mgr. 3. gr. kemur eftirfarandi:
„k) einstaklingar eða lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem eiga, stjórna, hafa umsjón með eða starfrækja skip sem flytja hráolíu eða jarðolíuafurðir eða jarðefni sem eru upprunnin í Rússlandi eða flutt út frá Rússlandi, og stunda ólögmæta og áhættusama sjóflutninga eins og fram kemur í ályktun allsherjarþings Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar A.1192(33), eða útvega á annan hátt starfsemi slíkra skipa efnislegan, tæknilegan eða fjárhagslegan stuðning eða“.
2) Eftirfarandi liðir bætast við í 1. mgr. 4. gr.:
„f) nauðsynlegur vegna þarfa ríkisfjármagnaðra aðila sem miðla menningarstefnu aðildarríkjanna á erlendri grundu í Rússlandi,
g) nauðsynlegur vegna áætlana aðildarríkjanna um sögulega ábyrgð eða stuðning við þjóðernisminnihlutahópa aðildarríkjanna í Rússlandi.“
3) Eftirfarandi grein er bætt við:
„5. gr. c
1. Þrátt fyrir 2. gr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur ef slíkir fjármunir eða efnahagslegur auður er andlag ákvörðunar gerðardóms, sem tekin er eftir þann dag þegar viðkomandi einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun, sem um getur í 2. gr., var færð í I. viðauka, að því tilskildu að sá einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun hafi sett af stað gerðardómsmeðferðina sem leiddi til þeirrar ákvörðunar. Veita má slíka heimild að því marki sem ákvörðun gerðardómsins fjallar um greiðslu kostnaðar vegna gerðardómsmeðferðar og ákvörðunin úrskurðar slíkan kostnað málsaðila í vil, sem er einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun sem er ekki á skrá, í eigu eða undir stjórn aðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er á skrá og sætir þvingunaraðgerðum samkvæmt þessari reglugerð, eða sem er ekki rússneskur ríkisborgari né með staðfestu í Rússlandi og fellur ekki undir þvingunaraðgerðir sem settar eru fram í reglugerð (ESB) nr. 833/2014.
2. Slík heimild skal takmarkast við greiðslu málskostnaðar vegna gerðardómsmeðferðarinnar, þ.m.t., eftir því sem við á, þóknun og kostnaður gerðardómsins, umsýsluþóknun gerðardómsstofnunarinnar og sanngjarn lögfræðikostnaður og annar málskostnaður gagnaðila, eins og gerðardómurinn úrskurðar í tengslum við framkvæmd gerðardómsmeðferðarinnar. Hún skal ekki taka til greiðslu á höfuðstól, skaðabótum, vöxtum eða öðrum efnislegum kröfum sem dæmdar eru, svo lengi sem refsiaðgerðir eru í gildi.“
4) Í stað 1. mgr. a í 6. gr. a kemur eftirfarandi:
„1a. Þrátt fyrir 2. mgr. 2. gr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, greiðslur til rekstrareiningar sem skráð er undir færslunúmerinu 265 undir fyrirsögninni „B. Rekstrareiningar“ í I. viðauka, fyrir vörur og þjónustu sem einungis sú rekstrareining getur veitt og sem eru nauðsynlegar vegna rekstrar, viðhalds eða viðgerða á lestarvögnum á línu 3 í neðanjarðarlestakerfi Búdapest, sem Metrowagonmash afhenti 2018, og á lestarvögnum á línum 1, 2 og 4 í neðanjarðarlestarkerfi Sofíu, sem Metrowagonmash afhenti fyrir 2017.“
5) Ákvæðum 6. gr. b er breytt sem hér segir:
1) Ákvæðum 5. mgr. e er breytt sem hér segir:
a) Í inngangsorðunum koma orðin „rekstrareiningum sem skráðar eru undir færslunúmer 56, 270, 579 og 726“ í stað orðanna „rekstrareiningum sem skráðar eru undir færslunúmer 56, 270 og 579“.
b) Í a-lið koma orðin „rekstrareiningum sem skráðar eru undir færslunúmer 56, 270, 579 og 726“ í stað orðanna „rekstrareiningum sem skráðar eru undir færslunúmer 56, 270 og 579“.
2) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„5k. Þrátt fyrir 2. gr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað að tilteknir frystir fjármunir, sem tilheyra rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmer 639 undir fyrirsögninni „Rekstrareiningar“ í I. viðauka við þessa reglugerð, verði affrystur eða tiltekinn efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur þessari rekstrareiningu, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að slíkir fjármunir og efnahagslegur auður séu algerlega nauðsynleg til að auðvelda það að draga verulega úr eða reiða sig minna á innflutning á rússneskri hráolíu og að því tilskildu að lokið hafi verið við að affrysta fjármunina eða gera efnahagslega auðinn aðgengilegan fyrir 24. október 2026.“
6) Eftirfarandi liður bætist við í 1. mgr. 11. gr.:
„c) einstaklingi frá þriðja landi eða lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun með staðfestu í þriðja landi, að undanskildum samstarfslöndunum sem eru á skrá í VIII. viðauka við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014, sem gerir fjármuni eða efnahagslegan auð, sem bannað er að gera aðgengilegan samkvæmt þessari reglugerð, aðgengilegan aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a- eða b-lið þessarar málsgreinar.“
7) Í stað 11. gr. a kemur eftirfarandi:
„11. gr. a
1. Sérhver aðili, sem um getur í c- eða d-lið 17. gr., skal, við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, eiga rétt á hvers kyns beinum eða óbeinum skaðabótum, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar sem sá aðili, eða lögaðili, rekstrareining eða stofnun, sem er í eigu eða undir stjórn aðila sem um getur í d-lið 17. gr., stofnar til vegna krafna sem aðilar, rekstrareiningar og stofnarnir, sem um getur í a- eða b-lið 1. mgr. 11. gr., leggja fram hjá dómstólum í þriðju löndum í tengslum við samning eða viðskipti sem hafa orðið fyrir áhrifum af ráðstöfunum, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð, að því tilskildu að viðkomandi aðili hafi ekki virkan aðgang að úrræðum í viðkomandi lögsögu. Heimilt er að sækja slíkar skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a- eða b-lið 1. mgr. 11. gr., sem lögðu fram kröfur hjá dómstólum í viðkomandi þriðja landi, eða frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru í eigu eða undir stjórn þessara rekstrareininga eða stofnana.
2. Með fyrirvara um 1. mgr. skal sérhver aðili, sem um getur í c- eða d-lið 17. gr., við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, eiga rétt á hvers kyns beinum eða óbeinum skaðabótum, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar sem sá aðili, eða lögaðili, rekstrareining eða stofnun sem er í eigu eða undir stjórn aðila sem um getur í d-lið 17. gr., stofnar til vegna lögbanns, úrskurða, úrræða, dóma eða annarra dóms- eða stjórnsýsluákvarðana sem teknar eru í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi, og leita fullnustu dóma sem staðfesta kröfur sem um getur í 1. mgr., að því tilskildu að viðkomandi aðili hafi ekki virkan aðgang að úrræðum í viðkomandi lögsögu. Heimilt er að sækja slíkar skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem leita, eða hafa samstarf um, fullnustu dóma sem staðfesta kröfur sem um getur í 1. mgr. í þriðja landi, öðru en Rússlandi, eða frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru í eigu eða undir stjórn þessara rekstrareininga eða stofnana, að undanskildum lögfræðingum þeirra og dómurum og að undanskildum aðilum sem um getur í c- eða d-lið 17. gr., eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru í eigu eða undir stjórn aðilanna sem um getur í c- eða d-lið 17. gr., sem dómur hefur verið kveðinn upp gegn vegna staðfestingar krafna sem um getur í 1. mgr.“
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 23. apríl 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. RAOUNA
(1) Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 16, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/145(1)/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 6, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/269/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/504 frá 23. apríl 2026 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2026/504, 23.4.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/504/oj).
(4) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/833/oj).