Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skatturinn
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
13. nóvember 2025
Útgáfudagur
27. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1228/2025
13. nóvember 2025
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum (CRS) vegna tekjuársins 2025, sbr. reglugerð nr. 1240/2015.
Fjármálastofnanir sem tilkynningarskyldar eru skv. 1. og 2. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála, skulu skila upplýsingum vegna ársins 2025 um CRS tilkynningarskylda reikninga til Skattsins eigi síðar en 20. janúar 2026. Tilkynningar- og upplýsingaskyldan tekur til tilkynningarskyldra reikninga (innlánsreikninga, vörslureikninga, vátryggingarsamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga auk eignarréttinda og skuldareignar í tilviki fjárfestingaraðila).
- Þegar áreiðanleikakönnun skv. III. kafla reglugerðarinnar leiðir í ljós að reikningshafi, þ.e. einstaklingur eða lögaðili, sé tilkynningarskyldur aðili skal skila m.a. eftirfarandi upplýsingum:
- Nafni, heimilisfangi og erlendri skattkennitölu sérhvers tilgreinds erlends reikningshafa (einstaklinga og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningarskyldan reikning. Ef reikningshafi er lögaðili sem ekki telst vera erlendur en áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri ráðandi aðila (e. controlling person), sem teljast erlendir aðilar, skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og erlenda skattkennitölu þeirra, sbr. 40. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015.
- Reikningsnúmeri eða ígildi þess.
- Reikningsstöðu í árslok 2025. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2025 skal tilkynna reikningsstöðu eða virði við lokun.
- Mynt allra fjárhæða.
- Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
- Sé um innlánsreikninga að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2025.
- Sé um vörslureikning að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra vaxta, arðs og annarra tekna, þ.m.t. sölu- og gengishagnað, sem myndast hefur vegna ávöxtunar þeirra eigna sem viðkomandi vörslureikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2025.
- Sé reikningshafi óvirkur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun, sbr. 42. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og skattkennitölur tilkynningarskyldra stjórnandi aðila.
- Tilkynningarskylda fjármálastofnana er óháð því hvort einhverjir reikningar hafi verið í eigu eða umráðum bandarískra aðila á almanaksárinu. Fylgja skal skilalýsingu upplýsingar um bandaríska eigendur og umráðamenn eftir því sem segir í auglýsingu þessari. Sé þeim ekki til að dreifa skal það staðfest eftir því sem við á og skilalýsing segir til um s.s. með núllfærslu í viðeigandi reiti.
Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef Skattsins á slóðinni: https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/crs/.
Allar fyrirspurnir um framangreind gagnaskil skal senda á netfangið: crs.fatca@skatturinn.is.
Auglýsing þessi er birt skv. 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, og öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 13. nóvember 2025.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 27. nóvember 2025