Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

9. desember 2024

Útgáfudagur

20. desember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1560/2024

9. desember 2024

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 155/2011 um val nemenda til náms í tannlæknisfræði og tannsmíði við tannlæknadeild Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað orðanna „taka til náms“ í 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglnanna koma orðin: taka inn í BS-nám.

2. gr.

Fyrirsögn a-liðar í 6. gr. reglnanna skal vera: BS-nám í tannlækningum.

3. gr.

Fyrirsögn a-liðar í 7. gr. reglnanna skal vera: BS-nám í tannlækningum.

4. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar með heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 9. desember 2024.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 20. desember 2024

Tengd mál