Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seltjarnarneskaupstaður
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Seltjarnarnes
Undirritunardagur
15. september 2012
Útgáfudagur
31. október 2012
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 900/2012
15. september 2012
GJALDSKRÁ
Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita.
1. gr.
Af öllum fasteignum í Seltjarnarneskaupstað, sem liggja við vegi eða opin svæði, þar sem holræsalagnir liggja, skal greiða árlegt fráveitugjald til bæjarsjóðs Seltjarnarneskaupstaðar.
2. gr.
Álagningarstofn fráveitugjalds skv. 1. gr. skal vera 0,120% af fasteignamati allra húsa og lóða skv. lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 með síðari breytingum.
Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekkert fráveitugjald.
3. gr.
Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.
Skráður eigandi fasteignar skv. matsskrá Fasteignamats ríkisins eða skráður umráðandi ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.
4. gr.
Húseigandi og lóðarhafi, lóðareigandi, ef um eignarlóð er að ræða bera ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds, og er gjaldið tryggt með lögveði í lóð og mannvirkjum.
5. gr.
Við álagningu árlegs fráveitugjalds getur sveitarstjórn með einfaldri samþykkt sinni nýtt sér heimild í 2. mgr. 87. gr. vatnalaganna, sbr. lög nr. 137/1995, um niðurfellingu eða lækkun til tekjulítilla elli- og örorkulífeyrisþega.
6. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samin er samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar um álagningu fráveitugjalds frá 12. september 2012 skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu og skv. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, öðlast gildi 1. nóvember nk. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1168/2010 með síðari breytingum.
Seltjarnarnesi, 15. september 2012.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 31. október 2012