Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Gæludýr, Dalasýsla

Undirritunardagur

19. september 2025

Útgáfudagur

3. október 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1040/2025

19. september 2025

SAMÞYKKT

um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalabyggð.

I. KAFLI Almennt.

1. gr. Gildissvið.

Samþykkt þessi gildir um hunda- og kattahald sem og annað gæludýrahald í Dalabyggð og sætir þeim takmörkunum sem getið er í samþykkt þessari. Þéttbýli sem um ræðir í samþykkt þessari er Búðardalur.

2. gr. Stjórnsýsla.

Heilbrigðisnefnd Vesturlands hefur eftirlit með framkvæmd samþykktar þessarar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Sveitarfélagið Dalabyggð fer með framkvæmd samþykktar þessarar í umboði heilbrigðisnefndar og getur ráðið sérstaka dýraeftirlitsmenn eða falið starfsmönnum sveitarfélagsins hlutverk eftirlitsaðila.

Eftirlitsaðilar geta leitað aðstoðar heilbrigðisnefndar, Matvælastofnunar og lögregluyfirvalda, ef og þegar þörf krefur, t.d. ef gæludýr er að mati eftirlitsins hættulegt umhverfi sínu, vörsluaðili dýrsins tálmar starfi eftirlitsaðila samkvæmt samþykkt þessari eða þegar nauðsynlegt er vegna almannahagsmuna, dýravelferðar eða heilbrigðis- og öryggissjónarmiða, að leita atbeina lögreglu við að fjarlægja dýr.

3. gr. Dýravelferð og dýravernd.

Um almennan aðbúnað og velferð gæludýra sem og um ræktun, verslun, geymslu og leigu hunda, katta eða annarra gæludýra í atvinnuskyni gilda ákvæði laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016.

Samkvæmt lögum um velferð dýra, nr. 55/2013, fer Matvælastofnun með eftirlit og framkvæmd þeirra laga.

II. KAFLI Skyldur aðila.

4. gr. Skyldur sveitarfélagsins.

Í kjölfar skráningar ber sveitarfélaginu að afhenda forráðamanni hunda og katta staðfestingu á að dýrið hafi verið skráð í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið hefur aðgengilegan lista yfir skráða hunda og ketti á vefsíðu sveitarfélagsins þar sem fram kemur leyfisnúmer dýrs, heimilisfang og nafn.

Sveitarfélagið er með hópvátryggingu fyrir leyfða hunda og ketti. Gjald fyrir ábyrgðartryggingu er innifalið í árgjaldi og skal sveitarfélagið upplýsa umráðamenn um efni samningsins, sbr. ákvæði IX. kafla laga um vátryggingarsamninga, nr. 30/2004.

Sveitarfélagið skal tryggja að til staðar séu dýrageymslur sem hafa tilskilin leyfi skv. 24. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016, til vörslu hunda og katta sem þarf að fanga vegna brota á samþykkt þessari.

Sveitarstjórn getur ákveðið að merkja ákveðin svæði þar sem ekki má vera með gæludýr, svo sem á fólkvöngum og útivistarsvæðum. Einnig getur sveitarstjórn ákveðið að láta afmarka ákveðin svæði þar sem sleppa má gæludýrum lausum undir eftirliti. Svæði þessi skulu auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins og kynnt sérstaklega fyrir eigendum gæludýra og almenningi.

Sveitarstjórn getur ákveðið að óheimilt sé að halda hunda, ketti og önnur gæludýr í húsnæði sem sveitarfélagið á.

5. gr. Skyldur eftirlitsaðila.

Dýraeftirlitsmenn Dalabyggðar skulu halda og uppfæra skrá yfir hunda og ketti í sveitarfélaginu. Í skránni skulu koma fram allar upplýsingar er varða skráð dýr sem dýraeftirlitsmaður telur skipta máli þ.m.t. hvenær dýrin hafa verið ormahreinsuð og öll afskipti sem eftirlitsaðilar hafa haft af dýrum og eigendum þeirra.

Heilbrigðiseftirlit, lögregla og eftir atvikum aðrir starfsmenn sveitarfélagsins skulu tilkynna dýraeftirlitsmönnum um kvartanir og afskipti þeirra af hundum, köttum og öðrum gæludýrum í sveitarfélaginu.

Dýraeftirlitsmenn Dalabyggðar leggja til við heilbrigðisnefnd að eigendur dýra séu áminntir vegna brota á samþykkt þessari, sbr. 20. gr. samþykktarinnar, og halda skrá um þær tillögur.

6. gr. Almennar skyldur gæludýraeigenda.

Eigendum hunda og katta ber að skrá dýr sín hjá skrifstofu sveitarfélagsins.

Eigendum hunda, katta og annarra gæludýra ber að sjá til þess að umhirða dýra þeirra sé í samræmi við ákvæði laga nr. 55/2013, um velferð dýra. Einnig ber þeim að fylgja ákvæðum annarra laga, reglugerða og samþykkta sem um gæludýrahald kunna að gilda.

Eigendur hunda og katta skulu færa dýr sína árlega til ormahreinsunar hjá dýralækni. Sveitarfélagið upplýsir um hvenær árleg ormahreinsun fer fram og er eigendum hunda og katta skylt að mæta á tilsettum tímum með dýr sín. Ef eigandi dýrs getur af einhverjum ástæðum ekki mætt á tilsettum tíma skal hann afhenda sveitarfélaginu staðfestingu frá dýralækni um að ormahreinsun hafi farið fram.

Eigendum hunda, katta og annarra gæludýra er skylt að ábyrgðartryggja sig gegn tjóni sem dýr þeirra kunna að valda mönnum, dýrum, gróðri og munum og skulu árlega framvísa til sveitarfélagsins staðfestingu frá viðurkenndu tryggingafélagi þar um, falli dýr ekki undir hóptryggingu sveitarfélagsins sem innifalin er í árgjaldi.

Eigendur hunda og katta skulu árlega greiða gjald fyrir hunda sína og ketti samkvæmt gjaldskrá sem sveitarfélagið setur í samræmi við ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Eigendum og umráðamönnum hunda, katta og annarra gæludýra ber, eftir því sem framast er unnt, að sjá svo um að dýr þeirra valdi ekki hávaða, ónæði, óþrifnaði eða óhollustu.

Ef hundur, köttur eða annað gæludýr veldur nágrönnum eða öðrum ítrekuðu ónæði, óþrifum eða tjóni, þá ber eiganda eða umráðamanni dýrsins að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt.

Óheimilt er að hleypa hundum, köttum og öðrum gæludýrum inn á tiltekin svæði sem tilgreind eru í 43. gr. reglugerðar um hollustuhætti, nr. 903/2024, nema að um það sé sérstaklega getið í greininni eða að fengnu leyfi heilbrigðisnefndar. Einnig er óheimilt að hleypa dýrum inn í húsnæði matvælafyrirtækja, sbr. reglugerð nr. 103/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli, og inn í húsnæði vatnsveitna, sbr. reglugerð nr. 536/2001 um neysluvatn.

III. KAFLI Hundahald.

7. gr. Skráningarskylda.

Allir hundar í þéttbýli eru skráningarskyldir hjá sveitarfélaginu.

Hundar sem notaðir eru við búrekstur á lögbýlum eru undanþegnir skráningar- og árgjaldi, en skylt er að framvísa til sveitarfélagsins númeri örmerkingar svo og árlegu vottorði um ormahreinsun.

Skylt er að sækja um skráningu innan tveggja vikna frá því að hundur er tekinn inn á heimili. Hvolpa skal skrá eigi síðar en þegar þeir ná þriggja mánaða aldri. Hund skal skrá á nafn og heimili lögráða einstaklings sem hefur lögheimili í sveitarfélaginu. Viðkomandi einstaklingur er skráður eigandi hundsins og skal hundurinn haldinn á heimili eigandans. Útgefin skráning er óframseljanleg. Óheimilt er að skrá fleiri en tvo hunda á sama heimili. Beiðni um undanþágu, til að vera með frekari fjölda hunda á heimili, skal fylgja rökstuðningur s.s. um ástæður, aðbúnað, færni umsjónaraðila til frekara hundahalds o.s.frv.

Hundar sem sótt er um skráningu fyrir skulu örmerktir af dýralækni samkvæmt reglugerð nr. 80/2016, um velferð gæludýra, og skal númer merkis skráð við skráningu hundsins. Eigandi ber ábyrgð á og kostnað af örmerkingu.

Dvelji hundur tímabundið en lengur en tvær vikur í sveitarfélaginu skal skrá hann, en slík skráning skal þó ekki gilda lengur en í þrjá mánuði og er þá gjaldfrjáls. Skráning skal fara fram sem fyrst og ekki seinna en innan tveggja vikna frá því að hundur kom inn í sveitarfélagið. Um gestkomandi hunda sem skráðir eru tímabundið sem og óskráða hunda gilda öll ákvæði þessarar samþykktar.

Við skráningu hunds getur sveitarstjórn leitað umsagnar lögreglu, Matvælastofnunar, annarra sveitarfélaga og heilbrigðiseftirlitssvæða telji það ástæðu til.

8. gr. Gögn sem þarf að framvísa við skráningu hunda.

Umsókn um skráningu hunds skal berast á skrifstofu Dalabyggðar og skulu eftirfarandi gögn lögð fram við skráningu:

  1. Upplýsingar um heiti, fæðingardag, kyn, tegund og önnur einkenni hunds.
  2. Mynd af hundinum.
  3. Vottorð frá dýralækni um einstaklingsmerkingu hunds, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra og 11. gr. reglugerðar nr. 80/2016, um velferð gæludýra.
  4. Vottorð frá dýralækni um ormahreinsun hundsins.

Þegar sótt er um leyfi til að halda hund í fjöleignarhúsi gilda ákvæði laga um fjöleignarhús, nr. 26/1994.

Skilyrði fyrir skráningu hunds er að gögn skv. 1. mgr. hafi verið lögð fram af hálfu umsækjanda og skráningargjald greitt samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins.

Eigandi hunds skal tilkynna sveitarfélaginu skriflega innan mánaðar um aðsetursskipti eða dauða hunds.

Óheimilt er að halda hund í húsnæði þar sem enginn er búsettur.

Sveitarfélaginu er heimilt að hafna beiðni um skráningu hunds ef umsækjandi hefur áður ítrekað gerst brotlegur við samþykkt um hundahald í sveitarfélaginu eða annars staðar.

Umsækjandi getur skotið synjun sveitarfélagsins um skráningu hunds til heilbrigðisnefndar Vesturlands.

9. gr. Bannaðar hundategundir.

Bannað er að halda hunda af þeim tegundum sem óheimilt er að flytja til landsins samkvæmt ákvörðun ráðherra svo og blendinga af þeim, sbr. reglugerð nr. 935/2004, um innflutning gæludýra og hundasæðis. Enn fremur er bannað að halda blendinga af úlfum og hundum.

10. gr. Skyldur eigenda og umráðamanna hunda.

Aðeins er heimilt að tjóðra hunda utandyra í undantekningartilvikum og þá einungis undir eftirliti í stuttan tíma í senn, sbr. reglugerð nr. 80/2016, um velferð gæludýra. Þegar hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að þeir sem eiga réttmætt erindi inn á lóðina geti óhindrað farið um lóðina.

Hundar skulu ávallt bera ól með plötu um hálsinn með ágreyptu leyfisnúmeri og símanúmeri eiganda.

Hundur skal aldrei ganga laus utan svæða sem eru þar til ætluð, heldur vera í taumi í fylgd með aðila sem hefur fullt vald yfir honum eða vera í tryggu gerði innan lóðar. Ef hundur sleppur skulu umráðamenn þegar gera ráðstafanir til að handsama hann.

Utan þéttbýlis er heimilt að sleppa hundi lausum undir eftirliti umsjónarmanns, ef viðkomandi hefur leyfi landeiganda. Sé hundur laus ber umsjónarmanni að tryggja að hann valdi ekki öðrum ónæði, skapi ekki hættu eða óöryggi og hlýði innkalli. Lausir hundar mega ekki vera á íþróttaleikvöngum, leikvöllum eða útisamkomum. Þá mega lausir hundar ekki vera á skíðasvæðum þegar þau eru notuð sem slík. Bannað er að fara með hunda á brennur eða flugeldasýningar.

Hundar á lögbýlum mega ganga frjálsir á landareign eigenda sinna og þegar verið er að nota þá til vinnu s.s. smölun eða veiðar. Að öðru leyti skulu þeir hundar háðir ákvæðum samþykktar þessarar.

Eiganda eða umráðamanni hunds er skylt að sjá til þess að hundur hans valdi ekki hættu, óþægindum, óþrifnaði, óöryggi eða verði mönnum til óþæginda á annan hátt, t.d. með stöðugu eða ítrekuðu gelti eða ýlfri. Eiganda eða umráðamanni hunds er ávallt skylt að fjarlægja saur eftir hundinn.

Hafi eigandi eða umráðamaður hunds vitneskju um eða ástæðu til að ætla að hundurinn sé grimmur eða varasamur skal hann ávallt hafa hundinn mýldan utan heimilis.

11. gr. Lausaganga hunda.

Hunda sem ganga lausir á almannafæri er heimilt að handsama og færa í dýrageymslu á vegum sveitarfélagsins. Lesið skal af einstaklingsmerkjum og þegar gera ráðstafanir til að hafa uppi á eigendum hundanna.

Sé hundur ekki skráður í sveitarfélaginu er óheimilt að afhenda hann fyrr en hann hefur verið skráður í samræmi við 7. gr. samþykktarinnar. Að aflokinni skráningu og gegn framvísun á staðfestingu greiðslu skráningar- og handsömunargjalds auk annars áfallins kostnaðar vegna brotsins, sbr. gjaldskrá sveitarfélagsins, getur eigandi hundsins fengið hann afhentan.

Sé skráður hundur handsamaður skal strax tilkynna eiganda um það og upplýsa hann um hvað vanræksla á að vitja hundsins getur haft í för með sér. Ef umráðamaður vitjar ekki dýrsins innan viku frá því að tilkynnt var um handsömun þess eða ef umráðamaður finnst ekki innan tveggja vikna er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa dýrinu eins og um hálfvillt dýr sé að ræða, sbr. ákvæði 24. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra. Áfallinn kostnaður greiðist af skráðum eiganda.

Hundur sem ekki er einstaklingsmerktur í samræmi við 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, telst vera hálfvillt dýr. Komi til handsömunar á slíkum hundi er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa honum til nýs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta, þegar liðnir eru sjö sólarhringar frá handsömun.

Sé hundur handsamaður sem ekki er skráður í sveitarfélaginu er óheimilt að afhenda hann fyrr en búið er að greiða handsömunargjald auk annars áfallins kostnaðar, sbr. gjaldskrá sveitarfélagsins. Skrá skal hundinn skv. 3. mgr. 7. gr. ef hann dvelur lengur en tvær vikur í sveitarfélaginu.

12. gr. Grimmir, varasamir og hættulegir hundar. Aflífun.

Hafi hundur bitið mann, skepnu eða gæludýr sem og ef hundur telst hættulegur, getur tjónþoli eða sveitarfélagið krafist þess að hundurinn verði aflífaður eða honum fundin önnur úrræði.

Samþykki skráður eigandi hunds ekki aflífun né að honum séu fundin önnur úrræði skal heilbrigðisnefnd taka ákvörðun um hvort fallist verði á kröfuna. Óski hundaeigandi þess getur hann lagt fram álit sérfróðs aðila, dýralæknis eða hundaþjálfara sem heilbrigðisnefnd viðurkennir, áður en ákvörðun um afdrif hunds er tekin.

Meðan mál hunds er í skoðun er eiganda skylt að hafa hundinn í samþykktri dýrageymslu. Eigandi getur þó sótt um til heilbrigðisnefndar að fá að hafa hundinn á heimili sínu meðan málið er í skoðun gegn skuldbindingu um að hafa hundinn ávallt mýldan þegar hann er utandyra.

Allur kostnaður vegna skapgerðarmats og vistunar hunds skal greiddur af skráðum eiganda.

Hafi hundur bitið eða valdið skaða tvisvar sinnum eða oftar getur það leitt til aflífunar. Í slíkum tilfellum skal hundurinn fjarlægður af heimili sínu tafarlaust og komið fyrir í samþykktri dýrageymslu á meðan málið er rannsakað og eiganda er veittur frestur til að andmæla ákvörðun um aflífun. Verði niðurstaða eftir rannsókn sú að aflífa eigi hundinn skal það gert án bóta og skal eigandi dýrsins að auki greiða útlagðan aflífunarkostnað. Allur kostnaður vegna skapgerðarmats, vistunar hunds og annað sem fellur til á rannsóknartíma skal greiddur af skráðum eiganda.

IV. KAFLI Kattahald.

13. gr. Skráningarskylda katta.

Allir kettir í þéttbýli eru skráningarskyldir hjá sveitarfélaginu.

Kettir í dreifbýli eru undanþegnir skráningar- og árgjaldi, en skylt er að framvísa til sveitarfélagsins númeri örmerkingar svo og árlegu vottorði um ormahreinsun.

Skylt er að sækja um skráningu kattar í þéttbýli, innan tveggja vikna frá því að köttur er tekinn inn á heimili. Kettlinga skal skrá eigi síðar en þegar þeir ná þriggja mánaða aldri.

Kettir sem sótt er um skráningu fyrir skulu örmerktir af dýralækni samkvæmt reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016, og skal númer merkis skráð við skráningu kattar. Eigandi ber ábyrgð á og kostnað af örmerkingu.

Kött skal skrá á nafn og heimili lögráða einstaklings sem hefur lögheimili í sveitarfélaginu. Viðkomandi einstaklingur er skráður eigandi kattarins og skal kötturinn haldinn á heimili eigandans. Útgefin skráning er óframseljanleg. Óheimilt er að skrá fleiri en tvo ketti á hvert heimili. Beiðni um undanþágu, til að vera með frekari fjölda katta á heimili, skal fylgja rökstuðningur s.s. um ástæður, aðbúnað, færni umsjónaraðila til frekara kattahalds o.s.frv.

Við skráningu kattar getur sveitarstjórn leitað umsagnar lögreglu, Matvælastofnunar, annarra sveitarfélaga og heilbrigðiseftirlitssvæða telji það ástæðu til.

14. gr. Gögn sem þarf að framvísa við skráningu kattar.

Umsókn um skráningu kattar skal berast á skrifstofu Dalabyggðar og skulu eftirfarandi gögn lögð fram við skráningu:

  1. Upplýsingar um heiti, fæðingardag, kyn, tegund og önnur einkenni kattar.
  2. Mynd af kettinum.
  3. Vottorð frá dýralækni um einstaklingsmerkingu kattar, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og 11. gr. reglugerðar um velferð gæludýra, nr. 80/2016.
  4. Vottorð frá dýralækni um ormahreinsun kattarins.

Þegar sótt er um leyfi til að halda ketti í fjöleignarhúsi gilda ákvæði laga um fjöleignarhús, nr. 26/1994.

Skilyrði fyrir skráningu kattar er að gögn skv. 1. mgr. hafi verið lögð fram af hálfu umsækjanda og skráningargjald greitt samkvæmt gjaldskrá sem sveitarfélagið hefur sett. Skráðum eiganda kattar ber að tilkynna sveitarfélaginu skriflega innan mánaðar um aðsetursskipti eða dauða kattar.

Sveitarstjórn er heimilt að hafna beiðni um skráningu kattar ef umsækjandi hefur áður eða ítrekað gerst brotlegur við samþykkt um kattahald í sveitarfélaginu eða annars staðar.

Umsækjandi getur skotið synjun sveitarfélagsins um skráningu kattar til heilbrigðisnefndar Vesturlands.

15. gr. Skyldur eigenda og umráðamanna katta.

Auk einstaklingsmerkingar skulu kettir bera hálsól með upplýsingum um heimilisfang eiganda og símanúmer.

Kattaeigendum ber að sjá til þess að högnar séu geltir og að læður séu gerðar ófrjóar eða hafðar á getnaðarvarnarpillu. Hægt er að sækja um undanþágu fyrir ræktunarketti og þarf þá að skila inn staðfestingu dýralæknis á að viðkomandi uppfylli skilyrði og aðstæður til að sinna slíkri ræktun, sbr. lög um velferð dýra og reglugerð um velferð gæludýra.

Kattaeigendum og umráðamönnum ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma, eftir því sem tök eru á, m.a. með því að hengja bjöllur á hálsólar katta og halda þeim innandyra að næturlagi.

16. gr. Föngun katta.

Sveitarstjórn er heimilt að láta fanga ketti í eftirfarandi tilfellum:

  1. Ef köttur er ómerktur, hvort sem er án hálsólar og/eða örmerkis.
  2. Ef ítrekað er kvartað undan ágangi katta á tilteknu svæði.
  3. Ef köttur finnst innandyra hjá nágranna í leyfisleysi, á öðrum óheimilum stað, eða í fjöleignarhúsi, þar sem á skortir tilskilið samþykki annarra íbúðareigenda, sbr. 14. gr.

Kettir sem fangaðir eru skulu færðir í dýrageymslu sveitarfélagsins. Merktum köttum sem ekki er kvartað yfir en lenda í búrum skal þó sleppa lausum og skráðum eigendum tilkynnt um handsömun og ástæður hennar.

Ef merktir kettir eru teknir úr umferð skv. 2. og 3. tölulið 1. mgr. skal það tilkynnt skráðum eigendum. Komi ítrekað til handsömunar á merktum ketti vegna ónæðis telst það vera brot á samþykkt þessari. Ef umráðamaður vitjar ekki dýrsins innan viku frá því að tilkynnt var um handsömun þess eða ef umráðamaður finnst ekki innan tveggja vikna er sveitarfélagi heimilt að ráðstafa dýrinu eins og um hálfvillt dýr sé að ræða, sbr. ákvæði 24. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Köttur, sem hefur verið handsamaður ítrekað, skal færður í dýrageymslu og því aðeins afhentur eiganda að öll skilyrði fyrir kattahaldi skv. 14. gr. séu uppfyllt. Áfallinn kostnaður greiðist af skráðum eiganda.

Köttur sem ekki er einstaklingsmerktur í samræmi við 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, telst vera hálfvillt dýr. Komi til handsömunar á slíkum ketti er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa honum til nýs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta, þegar liðnir eru sjö sólarhringar frá handsömun.

Sé köttur ekki skráður í sveitarfélaginu er óheimilt að afhenda hann fyrr en hann hefur verið skráður í samræmi við 14. gr. samþykktarinnar. Að aflokinni skráningu og gegn framvísun á staðfestingu greiðslu skráningar- og handsömunargjalds auk annars áfallins kostnaðar vegna brotsins, sbr. gjaldskrá sveitarfélagsins, getur eigandi kattarins fengið hann afhentan.

Meiriháttar föngun hálfvilltra katta í þéttbýliskjörnum skal auglýsa á heimasíðu sveitarfélagsins með a.m.k. viku fyrirvara og með tilmælum um að skráðum köttum sé haldið innan dyra.

V. KAFLI Önnur gæludýr.

17. gr. Gæludýr önnur en kettir og hundar.

Eigendum og umráðamönnum gæludýra annarra en hunda og katta er skylt að koma í veg fyrir að dýr þeirra sleppi úr haldi. Gerist það skal þegar gera ráðstafanir til að handsama dýrið.

Eigendur og umráðamenn gæludýra sem haldin eru utandyra, svo sem nagdýra, skulu sjá til þess að dýrin valdi ekki nágrönnum ama svo sem með hávaða, skemmdum eða óhreinindum. Skulu þeir tryggja að dýrin geti ekki nagað sig út úr búri eða aðhaldi.

Kanínur skulu einstaklingsmerktar skv. 1. mgr. 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Ómerktar kanínur eru skilgreindar sem hálfvillt dýr, við handsömun er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa hálfvilltum kanínum til nýs eiganda, selja fyrir áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta, þegar liðnir eru sjö sólarhringar frá handsömun.

VI. KAFLI Ýmis ákvæði.

18. gr. Gjaldtaka.

Sveitarstjórn er heimilt að innheimta skráningar- og eftirlitsgjöld í samræmi við gjaldskrá sem sveitarfélagið setur skv. 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 og lætur birta í B-deild Stjórnartíðinda.

Skráningargjald skal í fyrsta sinn greitt við skráningu dýrs og síðan árgjald eftir það.

Gjöldunum er ætlað að standa undir kostnaði sveitarfélagsins við hunda- og kattahald og framkvæmd samþykktar þessarar. Í gjaldskránni skal koma fram hvað er innifalið í skráningargjaldi og upphæð handsömunar- og vörslugjalds vegna dýra sem ganga laus eða eru tekin í vörslu sveitarfélagsins vegna brota á samþykkt þessari.

Hundar sem notaðir eru við búrekstur á lögbýlum og kettir í dreifbýli eru undanþegnir skráningar- og árgjaldi, en skylt er að framvísa til sveitarfélagsins númeri örmerkingar svo og árlegu vottorði um ormahreinsun.

Sveitarstjórn getur fellt niður eða ákveðið lægra gjald fyrir hunda sem notaðir eru til löggæslu- eða björgunarstarfa og minkahunda svo og fyrir hunda sem að læknisráði eru notaðir til aðstoðar fólki með fötlun. Skal sú ákvörðun koma fram í gildandi gjaldskrá hverju sinni.

19. gr. Þvingunarúrræði og afturköllun leyfa.

Um valdsvið og þvingunarúrræði vísast til XVII. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 .

Eigendur eða umráðamenn gæludýra sem brjóta gegn ákvæðum samþykktar þessarar skulu jafnan sæta skriflegri áminningu af hálfu heilbrigðisnefndar og gefinn hæfilegur frestur til úrbóta.

Dalabyggð er heimilt að afturkalla skráningu hunda eða katta ef vanhöld verða á ormahreinsun, greiðslu skráningar- eða árgjalda sem og ef eigandi hunds eða kattar hefur brotið gegn samþykkt þessari. Jafnframt getur sveitarfélagið, telji það og héraðsdýralæknir brýna þörf á, bannað eða takmarkað hunda- og kattahald í dreifbýli.

Eiganda er skylt að greiða kostnað sem leiðir af brotum á samþykkt þessari.

20. gr. Viðurlög og kæruheimild.

Um viðurlög vegna brota á samþykkt þessari fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Brot gegn samþykkt þessari varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi laga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

Um kæruheimildir fer samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

21. gr. Gildistaka.

Samþykkt þessi staðfestist hér með skv. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til þess að öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt um hundahald í Dalabyggð, nr. 26/2003.

Ákvæði til bráðabirgða.

I.

Þeim sem halda fleiri hunda en tvo þegar samþykktin tekur gildi er skylt að skrá þá innan þriggja mánaða og hafa þeir þá leyfi til að halda þá hunda á heimili sínu á meðan þeir lifa. Skal eigandi skila inn gögnum sem um beiðni um undanþágu væri að ræða, til að vera með frekari fjölda hunda á heimili, skal fylgja rökstuðningur s.s. um ástæður, aðbúnað, færni umsjónaraðila til frekara hundahalds o.s.frv.

II.

Þeim sem halda fleiri ketti en tvo þegar samþykktin tekur gildi er skylt að skrá þá innan þriggja mánaða og hafa þeir þá leyfi til að halda þá ketti á heimili sínu á meðan þeir lifa. Skal eigandi skila inn gögnum sem um beiðni um undanþágu væri að ræða, til að vera með frekari fjölda katta á heimili, skal fylgja rökstuðningur s.s. um ástæður, aðbúnað, færni umsjónaraðila til frekara kattahalds o.s.frv.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. september 2025.

F. h. r.

Erla Arnardóttir.

Trausti Ágúst Hermannsson.

B deild — Útgáfudagur: 3. október 2025

Tengd mál