Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

26. nóvember 2024

Útgáfudagur

28. nóvember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1344/2024

26. nóvember 2024

REGLUR

um birtingu upplýsinga um varfærniskröfur samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um birtingu fjármálaeftirlitsins á upplýsingum um varfærniskröfur samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Birting upplýsinga.

Um birtingu fjármálaeftirlitsins á upplýsingum skv. 107. gr. i laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, fer eftir reglugerð (ESB) nr. 650/2014, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 650/2014 frá 4. júní 2014 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar snið, uppbyggingu, innihaldslista og árlega birtingardagsetningu upplýsinganna sem lögbær yfirvöld skulu birta í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðuninni.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/912 frá 28. maí 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 650/2014 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar snið, uppbyggingu, innihaldslista og árlega birtingardagsetningu upplýsinganna sem lögbær yfirvöld skulu birta í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2020 frá 7. febrúar 2020.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/796 frá 4. mars 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla sem mælt er fyrir um í framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 650/2014 að því er varðar upplýsingarnar sem lögbær yfirvöld skulu birta í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 212/2024 frá 23. september 2024.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 650/2014, 2019/912 og 2024/796 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32014R0650, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 185, þann 25. júní 2014, bls. 1-50;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32019R0912, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 146, þann 5. júní 2019, bls. 3-56;
  3. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R0796, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2024/796, þann 8. mars 2024.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 9. tölul. 1. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 887/2022 um birtingu upplýsinga um varfærniskröfur samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.

Seðlabanka Íslands, 26. nóvember 2024.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2024

Tengd mál