Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Strandabyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Byggingarmál, Mannvirki, Strandasýsla

Undirritunardagur

17. desember 2025

Útgáfudagur

7. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1624/2025

17. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir byggingarleyfis-/heimildar-, framkvæmda-, skipulags- og þjónustugjöld í Strandabyggð.

1. gr. Almenn ákvæði.

1.1 Við útgáfu byggingarleyfis/heimildar, framkvæmdaleyfis eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um.
1.2 Tekjum sveitarfélagsins skv. gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.

2. gr. Byggingarleyfis-/heimildargjöld.

Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið í gjaldinu byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar. Fyrir byggingarleyfi skv. 9. gr., sbr. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, skal greiða gjöld sem hér segir:

2.1 Íbúðarhúsnæði: Kr.
  Einbýlishús 228.938
  Parhús, tvíbýlishús eða raðhús á einni hæð, pr. íbúð 192.792
  Raðhús á fleiri en einni hæð eða fjölbýlishús með þremur íbúðum, pr. íbúð 164.180
  Fjölbýlishús, tvær hæðir, með fjórum íbúðum eða fleiri, pr. íbúð 139.157
  Fjölbýlishús, þrjár hæðir og hærri með fjórum íbúðum eða fleiri, pr. íbúð 117.913
2.2 Atvinnu- og þjónustuhús og stofnanir:  
  Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með   
  íbúðum, gólfflötur allt að 500 m² 228.938
  Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum, gólfflötur stærri en 500 m²
309.067
2.3 Ýmis hús og hvers konar viðbyggingar:  
  Frístundahús stærri en 50 m² 228.938
  Frístundahús 25-50 m² 114.469
  Frístundahús 15-25 m² 57.234
  Smáhýsi frá 1-15 m² (aukahús við frístunda- og íbúðarhús) 17.213
  Sólstofur, bílageymslur, geymslur og viðbyggingar að 20 m² 57.234
  Sólstofur, bílageymslur, geymslur og viðbyggingar að 20-100 m² 114.469
  Viðbyggingar stærri en 100 m² bera sömu gjöld og nýbyggingar  
  Vélageymslur/korngeymslur allt að 300 m² 129.205
  Fjárhús, fjós og hesthús eða sambærileg hús allt að 300 m²,  
  ef stærra en 300 m², gildir það sama og atvinnuhúsnæði 129.205
  Gróðurhús allt að 300 m² (ef stærra en 300 m², gildir það sama  
  og atvinnuhúsnæði) 129.205
  Gjald vegna húsa s.s. sumarhúsa sem flutt eru inn á svæði Strandabyggðar fullbúin og sett á undirstöður
114.469

3. gr. Þjónustugjöld.

Vegna annarrar þjónustu sem skipulags- eða byggingarfulltrúi veitir skal greiða gjöld sem hér segir:

3.1 Vegna annarrar þjónustu sem skipulags- eða byggingarfulltrúi veitir skal greiða gjöld sem hér segir:
      Kr.
  3.1.1 Afgreiðslugjald 29.894
  3.1.2 Endurskoðun aðaluppdrátta 19.710
  3.1.3 Breytt notkun á mannvirkjum að 60 m² 77.460
  3.1.3 Breytt notkun á mannvirkjum yfir 60 m² 77.460
  3.1.4 Áfangaúttekt/stöðuúttekt, skýrsla 50.779
  3.1.5 Úttekt vegna meistaraskipta eða byggingarstjóraskipta 50.779
  3.1.6 Úttekt vegna rekstrarleyfis 50.779
  3.1.7 Húsaleiguúttektir á íbúðar- eða atvinnuhúsnæði 50.779
  3.1.8 Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga 1-5 fastanúmer í húsi 50.779
  3.1.9 Viðbót vegna eignaskiptayfirlýsingar, hvert fastanúmer > 5 6.539
  3.1.10 Tímabundin stöðuleyfi 30.984
  3.1.11 Staðfestingargjald vegna lóðaúthlutunar, óendurkræft 39.762
  3.1.12 Breyting og gerð á nýjum lóðarsamningi 56.459
  3.1.13 Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs 30.984
  3.1.14 Aukaúttekt 17.902
  3.1.15 Aukamæling á útsetningu húss 87.788
  3.1.16 GPS-mæling/lóðauppdráttur (4-6 punktar) 77.460
  3.1.17 Stofnun lóðar 50.779
  3.1.18 Niðurrif mannvirkja 15.664
  Útprentun á gögnum, teikningum eða öðrum tilheyrandi skjölum fer eftir gjaldskrá skrifstofu Strandabyggðar. Þinglýsingarkostnaður vegna stofnskjala og lóðarleigusamninga bætist við innheimtu ef um slíkt er að ræða.

4. gr. Framkvæmdaleyfisgjald og gjald fyrir skipulagsvinnu.

4.1 Fyrir framkvæmdaleyfi og skipulagsvinnu ákveður sveitarstjórn gjald eftir umfangi framkvæmdar sem hér segir: Að meginreglu skal sá sem óskar eftir nýju deiliskipulagi eða breytingu á gildandi aðal- eða deiliskipulagi greiða þann kostnað sem verkið hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.
4.2 Umhverfis- og skipulagsnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum er yfirstandandi eða fyrirhuguðu á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.
4.3 Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald vegna umfangs verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa sem er 18.061 kr./klst. eða gjald skv. reikningi.

Kostnaður vegna skipulagsvinnu:

4.4 Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga: Kr.
  Afgreiðslugjald, greitt við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi  
  eða skipulagsbreytingu 29.894
  Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga,  
  skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald pr. klst. 18.061
  Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. 464.761
  Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. 310.938
4.5 Kostnaður vegna nýs deiliskipulags:  
  Afgreiðslugjald 29.894
  Nýtt deiliskipulag, sbr. 38. gr. skipulagslaga,  
  skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald pr. klst. 18.061
  Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. 206.561
4.6 Kostnaður vegna verulegra breytinga á deiliskipulagi:  
  Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr.,  
  skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald pr. klst. 18.061
  Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. 206.561
4.7 Kostnaður vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi:  
  Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr.,  
  skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald pr. klst. 18.061
  Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. 68.840
4.8 Kostnaður vegna grenndarkynningar:  
  Grenndarkynning 68.840
  Grenndarkynning, minniháttar 30.124
  Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.  
4.9 Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu framkvæmdaleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins.  
4.10 Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra en sem nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning leyfisins og eftirlit sem skylt er að framkvæma.  
4.11 Vegna aðkeyptrar vinnu við framkvæmdaleyfi sem nauðsynleg er vegna útgáfu þess skal innheimta sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni.  
4.12 Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins vegna þeirrar vinnu hluti af útlögðum kostnaði þess við útgáfu framkvæmdaleyfisins.  
4.13 Fyrir framkvæmdaleyfi skal greiða gjöld sem hér segir:  
  Afgreiðslugjald 28.894
  Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir sem falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald
124.560
  Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, skv. útlögðum kostnaði,  
  viðmiðunargjald 55.533
  Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi 18.061
  Umsýsla og yfirferð gagna 21.811
  Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar 29.894
  Áfangaúttekt 56.243

5. gr. Gjalddagi, lögveð.

5.1 Gjalddagi afgreiðslugjalda er við afgreiðslu umsókna.
5.2 Gjalddagi leyfisgjalda er við útgáfu leyfis.
5.3 Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis.
5.4 Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, byggingarleyfi falli úr gildi eða umsókn sé dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endurgreidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis.
5.5 Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur. Byggingar- og framkvæmdaleyfisgjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi.

6. gr. Verðlagsbreytingar.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í október 2025 sem er 125,8 stig, grunnur 2022 og breytist 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni.

7. gr. Gildistaka o.fl.

Gjaldskrá þessi sem er samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025 er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá nr. 1184/2024 fyrir byggingarleyfis-/heimildar-, framkvæmda-, skipulags- og þjónustugjöld í Strandabyggð.

Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025.

Strandabyggð, 17. desember 2025.

Þorgeir Pálsson oddviti.

B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026

Tengd mál