Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál, Gullbringusýsla, Reykjanesbær, Grindavík, Vestmannaeyjar, Suðurnesjabær

Undirritunardagur

12. desember 2025

Útgáfudagur

17. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1395/2025

12. desember 2025

GJALDSKRÁ

HS Veitna hf. fyrir heitt vatn.

I. KAFLI

1. gr.

HS Veitur hf. selja afnot af heitu vatni úr veitukerfum þeim, sem gerð hafa verið og verða gerð, eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari.

2. gr.

HS Veitur hf. láta hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til fullrar hitunar, enda séu ofnar hússins nægilega stórir, að mati HS Veitna hf.

Vatnsrennsli að húsinu verður mælt með þar til gerðum magnmælum eða af sérstökum ástæðum, að mati HS Veitna hf, takmarkað með magnhemli.

II. KAFLI

3. gr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal húseigandi á Suðurnesjum greiða samkvæmt magnmæli:

  án vsk m. 11% vsk m. 24% vsk  
Til húshitunar (80°C frá dælustöð) 183,50 203,69   kr./m³
Til húshitunar (90°C frá dælustöð) 201,87 224,08   kr./m³
Til annarra nota 183,50   227,54 kr./m³
Til iðnaðar* 155,96   193,39 kr./m³

* sem verulegur hluti framleiðslukostnaðar.

Ef ekki er talið hægt að innheimta eftir magnmæli skal greiða samkvæmt magnhemli:

  án vsk m. 11% vsk  
Húshitun l/m á ári (80°C frá dælustöð) 65.368,00 72.558,00 kr. kr.
Húshitun l/m á dag (80°C frá dælustöð) 179,09 198,79 kr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal húseigandi í Vestmannaeyjum greiða samkvæmt orkumæli:

Til íbúða húshitunar án vsk m. 11% vsk  
VM5 m³ 190,62 211,59 kr./m³
VM5 kWh 10,24 11,37 kr./kWh

Orkustofnun hefur umsjón með niðurgreiðslum, sjá nánar á vef Orkustofnunar: https://www.os.is/.

Til húshitunar annars en íbúða án vsk m. 11% vsk  
VM6 m³ 190,62 211,59 kr./m³
VM6 kWh 10,24 11,37 kr./kWh

4. gr.

Fastagjald fer eftir stærð mælis/hemils og skal greitt jafnhliða gjaldi fyrir vatnsnotkun og er fyrir hverja veitu sem hér segir á Suðurnesjum:

  án vsk m. 11% vsk m. 24% vsk  
Mælir eða hemill allt að 20 mm 12.231,00 13.576,00 15.166,00 kr./ár
Mælir eða hemill allt að 20 mm 33,51 37,19 41,55 kr./dag
Mælir allt að 25-50 mm 24.510,00 27.206,00 30.392,00 kr./ár
Mælir allt að 25-50 mm 67,15 74,54 83,27 kr./dag
Mælir 65 mm og stærri 48.970,00 54.356,70 60.723,00 kr./ár
Mælir 65 mm og stærri 134,16 148,92 166,36 kr./dag

Fastagjald fer eftir stærð mælis og skal greitt jafnhliða gjaldi fyrir vatnsnotkun og er fyrir hverja veitu sem hér segir í Vestmannaeyjum:

Flokkur og stærð mæla án vsk m. 11% vsk  
MV1 Fyrir mæla 20 mm og minni 48.538,00 53.877,00 kr./ár
MV1 Fyrir mæla 20 mm og minni 132,98 147,61 kr./dag
MV2 Fyrir mæla 25-50 mm 96.711,00 107.349,00 kr./ár
MV2 Fyrir mæla 25-50 mm 264,96 294,11 kr./dag
MV3 Fyrir mæla 65 mm og stærri 193.864,00 215.189,00 kr./ár
MV3 Fyrir mæla 65 mm og stærri 531,13 589,56 kr./dag

5. gr.

Hitaveitugjöld skv. 3. og 4. gr. má krefja mánaðarlega. Gjalddagi hitaveitugjalda er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Sé reikningurinn ekki greiddur við fyrstu sýningu, ber gjaldanda að greiða hann, þar sem HS Veitur hf. ákveða. Það eru vanskil ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 15 daga frá gjalddaga.

6. gr.

Heimæðargjald skal greitt fyrir hverja heimæð er tengir hús við veitukerfi HS Veitna hf. Heimæðargjald skal greitt þegar lagningu heimæðar er lokið.

Heimæðargjald skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

  án vsk m. 11% vsk  
DN 20 mm heimæð 411.079 456.298 kr.
DN 25 mm heimæð 542.361 602.021 kr.
DN 32 mm heimæð 689.552 765.403 kr.
DN 40 mm heimæð 782.377 868.438 kr.
DN 50 mm heimæð 1.790.186 1.987.106 kr.
Bráðabirgðatenging, t.d. vinnuskúrar 46.413 51.518 kr.

Kostnaðarverð stærri heimæða en 50 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik.

2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra umfram 50 metra (20 metra innan lóðamarka )

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðst 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar en fyrir heimæðar 50mm og stærri er kostnaðarverð reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik.

  án vsk m. 24% vsk  
Púlsmerki frá mæli 24.907 30.885 kr.
Ídráttarrör fyrir rafmagnsheimtaug og fjarskipti 43.516 53.960 kr.

III. KAFLI

7. gr.

Öll gjöld skal samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki á kostnað húseiganda.

8. gr.

HS Veitur hf. hafa rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Heimilt er að loka vatnsrennsli að húsi, sem hitaveitugjöld eru vangreidd af.

Fyrirætlun um að loka, ber að tilkynna með minnst 5 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá, sem vanskilum veldur hverju sinni.

  án vsk m. 24% vsk  
Opnunargjald 9.575 11.873 kr.

9. gr.

Eftirlitsmanni HS Veitna hf. skal hvenær sem er frjáls aðgangur að öllum hemlum, mælum, hitagjöfum og vatnsæðum sem eru í sambandi við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.

10. gr.

Virðisaukaskattur, 11,0% bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, nema á sölu vatns og heimæða til annars en húshitunar og opnunargjaldi þar sem virðisaukaskatturinn er 24,0%.

Í gjaldskránni er ekki tekið tillit til 2,0% orkuskatts á smásöluverð.

IV. KAFLI

11. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af stjórn HS Veitna hf. staðfestist hér með samkvæmt orkulögum, nr. 58/1967, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt er úr gildi felld gjaldskrá sama efnis, nr. 464/2025.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 12. desember 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild — Útgáfudagur: 17. desember 2025

Tengd mál