Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg

Undirritunardagur

7. október 2026

Útgáfudagur

21. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1111/2026

7. október 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna efnistökusvæðis við Óseyrarnes.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 7. október 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 2. september 2026.

Í breytingunni felst að bætt er við punktmerkingu sem tekur til efnistöku úr Óseyrarnesi í Eyrarbakkafjöru. Engin breyting er gerð á skilgreindri heimild til efnistöku.

Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 7. október 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 21. október 2026

Tengd mál