Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
16. apríl 2026
Útgáfudagur
4. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 432/2026
16. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Norður-Nýjabæjar, nýrrar íbúðarbyggðar.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun staðfesti 16. apríl 2026 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. mars 2026.
Í breytingunni felst að 25 ha landbúnaðarland á hluta landareignar Norður-Nýjabæjar verður skilgreint sem íbúðarbyggð ÍB38 þar sem heimilaðar eru 16 íbúðarlóðir og 1 þjónustulóð. Íbúðarlóðir eru um 1,1 ha að stærð og heimilt verður að reisa íbúðarhús, gestahús og hesthús eða geymslu á einni hæð eða allt að 6 hús á lóð. Einnig er heimilt að reka gistiþjónustu fyrir allt að 10 gesti á lóð og dýrahald er leyfilegt. Þjónustulóðin er 3,4 ha að stærð, sem nýtist sem þjónustureitur fyrir hverfið, en hús geta verið á 1-2 hæðum. Nýtingarhlutfall allra lóða á svæðinu er 0,05.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 16. apríl 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 4. maí 2026