Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

3. desember 2024

Útgáfudagur

4. desember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1415/2024

3. desember 2024

REGLUR

um eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að teljist kerfislega mikilvæg hér á landi á grundvelli 86. gr. e laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sbr. d-lið 13. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, og viðhalda skulu eiginfjárauka vegna kerfislegs mikilvægis skv. 86. gr. c laga um fjármálafyrirtæki.

Eiginfjáraukanum skal viðhaldið á samstæðu- og einingargrunni, eftir því sem við á, sbr. 83. gr. d laga um fjármálafyrirtæki.

2. gr. Hlutfall eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki.

Kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki skulu viðhalda eiginfjárauka vegna kerfislegs mikilvægis sem nemur 3% af áhættugrunni, sbr. 86. gr. d laga um fjármálafyrirtæki.

3. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 86. gr. c laga um fjármálafyrirtæki, hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd og öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 324/2020, um eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki.

Seðlabanka Íslands, 3. desember 2024.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Haukur C. Benediktsson
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 4. desember 2024

Tengd mál