Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ísafjarðarbær
Málaflokkur
Gæludýr, Ísafjarðarbær
Undirritunardagur
30. september 2025
Útgáfudagur
3. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1295/2025
30. september 2025
GJALDSKRÁ
fyrir hunda- og kattahald í Ísafjarðarbæ.
1. gr.
Af hundum og köttum í Ísafjarðarbæ skal Ísafjarðarbær innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd 9. gr. samþykktar um kattahald í Ísafjarðarbæ, nr. 907/2013, og 10. gr. samþykktar um hundahald í Ísafjarðarbæ, nr. 906/2013.
2. gr.
Við umsókn um skráningu hunds skal innheimta gjald sem hér segir og er það jafnframt árgjald það árið:
| Fyrsta leyfisveiting | 3.000 kr. |
| Hlutfallslegt eftirlitsgjald við leyfisveitingu | 1.000 kr. á mánuði |
3. gr.
Af leyfðum hundum skal innheimta árlega eftirlitsgjald sem hér segir:
| Einn hundur | 12.000 kr. |
Ekki skal innheimta eftirlitsgjald sama ár og dýr er skráð.
4. gr.
Fyrir hverja handsömun kattar eða hunds, sem er á flækingi og veldur ónæði, skal eigandi hans greiða handsömunargjald til að fá dýrið afhent aftur.
Við afhendingu skal innheimta handsömunargjald sem hér segir:
| Fyrsta afhending | 18.900 kr. |
| Önnur afhending | 37.700 kr. |
| Þriðja afhending | 56.500 kr. |
| Fyrsta afhending hunds án leyfis | 37.700 kr. |
Óheimilt er að afhenda hunda án leyfis nema gengið verði frá leyfisveitingu við afhendingu. Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna fæðis, geymslu, auglýsinga og ferðakostnaðar handsamaðs hunds.
5. gr.
Innifalið í leyfisgjaldi hunda er greiðsla fyrir ábyrgðartryggingu, heilbrigðisskoðun dýralæknis og árleg ormahreinsun.
6. gr.
Gjalddagi samkvæmt 3. og 4. gr. er 1. mars og eindagi 1. apríl ár hvert. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.
7. gr.
Hafi leyfishafi lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi viðurkenndu af Ísafjarðarbæ lækka gjöldin samkvæmt 3. gr. gjaldskrár þessarar um 30%.
Skilyrði fyrir því að leitarhundur sé undanþeginn leyfisgjaldi er að viðkomandi hundur hafi að minnsta kosti B-viðurkenningu útgefna af viðurkenndum leiðbeinanda og skal ljósrit af viðurkenningu afhendast við umsókn um niðurfellingu leyfisgjalda. Heimilt er að ógilda niðurfellingu leyfisgjalda sé viðkomandi hundur ekki lengur á skrá sem leitarhundur samkvæmt skilgreiningu þessari.
8. gr.
Gjaldskrá þessi sem er samin og samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, er sett samkvæmt heimild í 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, samanber samþykkt um kattahald í Ísafjarðarbæ, nr. 907/2013, og samþykkt um hundahald í Ísafjarðarbæ, nr. 906/2013, til að öðlast gildi 1. janúar 2026.
Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Ísafjarðarbæ, nr. 1244/2024.
Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 30. september 2025.
Ísafirði, 30. september 2025.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 3. desember 2025