Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
17. maí 2024
Útgáfudagur
24. febrúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 70/2024
17. maí 2024
AUGLÝSING
um fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Mið-Ameríkuríkjanna.
Hinn 7. júlí 2014 var norska utanríkisráðuneytinu afhent fullgildingarskjal Íslands vegna fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Lýðveldisins Kostaríka og Lýðveldisins Panama (Mið-Ameríkuríkjanna) sem gerður var í Þrándheimi 24. júní 2013. Alþingi hafði með ályktun nr. 28/143 hinn 14. maí 2014 heimilað ríkisstjórninni að fullgilda samninginn. Samningurinn öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 5. september 2014.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Viðauka við samninginn og nánari upplýsingar um hann má nálgast á vef utanríkisráðuneytisins.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 17. maí 2024.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
Anna Jóhannsdóttir.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
C deild - Útgáfud.: 24. febrúar 2025