Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. júní 2025
Útgáfudagur
27. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 714/2025
12. júní 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 60/2019 um meistaranám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað „BS-prófi“ í d-lið 2. mgr. 5. gr. reglnanna kemur: BS-gráðu.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglnanna:
- Í stað „BS-prófi“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: BS-gráðu.
- Í stað „BS-prófi“ í 5. málsl. 1. mgr. kemur: BS-gráðu.
- 1. málsl. b-liðar I. kafla orðast svo: Ef sótt er um meistaranám í ljósmóðurfræði þarf viðkomandi að hafa lokið BS-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands eða annarri sambærilegri gráðu.
- Í stað „MS-próf“ í 1. málsl. 2. töluliðar II. kafla kemur: MS-gráða.
- Í stað orðanna „sambærilegt próf“ í 1. málsl. 2. töluliðar II. kafla koma orðin: sambærileg gráða.
- Í stað orðanna „háskóla. Lágmarkseinkunn: 7,25“ í 1. og 2. málsl. 2. töluliðar II. kafla koma orðin: háskólum með lágmarkseinkunn 7,25.
- 3. málsl. 2. töluliðar II. kafla orðast svo: Aðgangur að náminu er auk þess háður því að umsækjandi hafi verið ráðinn til starfa hjá Landspítala – háskólasjúkrahúsi sem lyfjafræðingur í launað sérnám í klínískri lyfjafræði, sem og reglum um fjöldatakmarkanir sem háskólaráð samþykkir hverju sinni.
- Í stað „BS-próf“ í 1. málsl. a-liðar V. kafla kemur: BS-gráða.
- Í stað orðanna „sambærilegt próf“ í 1. málsl. a-liðar V. kafla koma orðin: sambærileg gráða.
- Í stað orðanna „loknu BS-prófi“ í 2. málsl. a-liðar V. kafla koma orðin: lokinni BS-gráðu.
- Í stað „cand. odont.-próf“ í 1. málsl. VI. kafla kemur: cand. odont.-gráðu.
- Í stað „BS-próf“ í 1. málsl. VI. kafla kemur: BS-gráðu.
- Í stað orðanna „sambærilegt próf“ í 1. málsl. VI. kafla koma orðin: sambærileg gráða.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur orðið: meistaragráðu.
- Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur orðið: meistaragráðu.
- Í stað orðsins „prófi“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur orðið: prófgráðu.
- Heiti a-liðar II. kafla skal vera: Meistaranám í lyfjafræði (120 einingar).
- Stafliður a II. kafla orðast svo í heild sinni: Af 120 einingum meistaranámsins eru 40 einingar rannsóknarverkefni sem nemandi vinnur að jafnaði á seinna námsári. Umfang rannsóknarverkefnisins samsvarar að lágmarki 20 vikna fullri vinnu af hálfu nemanda.
- Heiti b-liðar II. kafla skal vera: Meistarapróf í klínískri lyfjafræði (90 einingar).
- Stafliður b II. kafla orðast svo í heild sinni: Námið er skipulagt sem starfstengt nám á Landspítala – háskólasjúkrahúsi og er 90 einingar. Námið tekur þrjú ár miðað við 50% starfsnám. Hámarksnámstími er fimm ár. Námið er staðnám og fer að mestu fram á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
- Í stað orðsins „loknu“ í 4. málsl. IV. kafla kemur orðið: lokinni.
- Í stað „cand. odont.-prófi“ í 4. málsl. IV. kafla kemur: cant.odont-gráðu.
4. gr.
Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 2. málsl. 11. gr. reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „meistarapróf“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur orðið: meistaragráðu.
- Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur orðið: meistaragráðu.
- Í stað orðanna „sambærilegu prófi“ í 2. málsl. 2. mgr. koma orðin: sambærilegri gráðu.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglnanna:
- Heiti greinarinnar skal vera: Námsmat.
- Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur orðið: meistaragráðu.
- Í stað orðsins „meistarapróf“ í 3. mgr. kemur orðið: meistaragráðu.
- Í stað orðanna „standast próf“ í 1. málsl. I. kafla koma orðin: ljúka gráðu.
- Orðin og greinarmerkið „, meistaranámi í“ í 1. málsl. I. kafla falla á brott.
- Á eftir orðinu „lyfjafræði“ í 1. málsl. I. kafla kemur orðið: og.
- 2. málsl. I. kafla verður 3. málsl. I. kafla.
- 3. málsl. I. kafla verður 2. málsl. I. kafla.
7. gr.
Í stað orðsins „Meistarapróf“ í 1. málsl. 15. gr. reglnanna kemur orðið: Meistaragráða.
8. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. júní 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025