Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál, Skagafjörður

Undirritunardagur

10. desember 2025

Útgáfudagur

15. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1366/2025

10. desember 2025

GJALDSKRÁ

Skagafjarðarveitna. Hitaveita.

I. KAFLI

1. gr.

Skagafjarðarveitur – hitaveita, kt. 681212-0350, í gjaldskrá þessari hér eftir nefndar SKV-hitaveita, selja afnot hitaorku úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi sveitarfélagsins Skagafjarðar og hafa umráðarétt yfir þeim eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð um Skagafjarðarveitur – hitaveita. Á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast virðisaukaskattur og önnur gjöld samkvæmt gildandi lögum og reglum á hverjum tíma.

2. gr.

SKV-hitaveita skal láta hverju húsi, sem tengt er við vatnsæðar veitnanna, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. SKV-hitaveita lætur setja rennslismæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selda orku við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. SKV-hitaveita ræður gerð rennslismæla og hemla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.

3. gr.

Einungis starfsmenn hitaveitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta. SKV-hitaveita breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrir árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1 mínútulítri. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum eða hálfum mínútulítra.

Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til SKV-hitaveitu. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal SKV-hitaveita greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða SKV-hitaveita, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

II. KAFLI

4. gr.

SKV-hitaveita rekur nú átta aðskilin hitaveitusvæði og dreifikerfi með vatni sem hefur mismunandi efnainnihald og hita. Þessi svæði eru á Sauðárkróki, í Varmahlíð, á Steinsstöðum, í Hjaltadal, á Hofsósi, á Hverhólum og við Langhús og Sólgarða í Fljótum. Gjöld fyrir eininguna af heitu vatni (m³ eða l/mín) verða því mishá eftir svæðum.

Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu heits vatns. SKV-hitaveitu er ekki skylt að veita afslátt af sölu heits vatns vegna lágs hitastigs þess á afhendingarstað enda geri SKV-hitaveita þær ráðstafanir sem má ætlast til af þeim til að halda hitastiginu í eðlilegu horfi, enda er gerð krafa til notenda að halda eðlilegu hitastigi á heimæð.

Fast verð er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli eða hemli. Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er háð stærð mælis/hemils. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

5. gr.

Gjöld fyrir afnot af heita vatninu eru sem hér segir:

Vatnsgjald á mánuði fyrir hvern mínútulítra í hámarksstillingu hemils.

Sauðárkróksveita: kr. 3.348  
Varmahlíðarveita: kr. 5.074  
Steinsstaðaveita: kr. 2.528  
Hjaltadalsveita: kr. 2.528  
Hofsósveita: kr. 3.863  
Sólgarðaveita: kr. 3.348  
Langhúsveita: kr. 5.369  
Hverhólaveita: kr. 3.348  

Fast gjald hjá þeim notendum, sem kaupa heitt vatn eftir hemli, skal vera kr. 1.313 pr. mánuð.

6. gr.

Gjald fyrir hvern rúmmetra vatns tekur mið af orkuinnihaldi vatns á hverju svæði og skal vera:

Sauðárkróksveita: kr. 142,11  
Varmahlíðarveita: kr. 215,75  
Steinsstaðaveita: kr. 107,33  
Hjaltadalsveita: kr. 107,33  
Hofsósveita: kr. 164,35  
Sólgarðaveita: kr. 142,11  
Langhúsveita: kr. 228,26  
Hverhólaveita: kr. 142,11  

Afsláttur er veittur til eftirfarandi húsveitna í eigu sveitarfélagsins:

Almenningssundlaugar, 90%, miðað við að sundlaug sé opin minnst tvo daga í viku.

Almenningsíþróttamannvirki, 50%.

Gerð er krafa um að rekstraraðilar sundlauga og almenningsíþróttamannvirkja innleiði viðeigandi orkusparnaðaraðgerðir:

Að yfirbreiðslur séu settar á öll laugakör, þar sem þeim verður við komið.

Að stýring búnaðar sé þannig útfærð að hámarksnýting náist á varma.

Að hitastigi sundlauga sé stillt í hóf.

Stærri notendur þar sem notkun er að lágmarki 100 þúsund rúmmetrar á ári, á einum og sama mæli og þar sem heitt vatn er notað sem beinn framleiðsluþáttur, geta sótt um að kaupa heitt vatn á allt að 50% afslætti. Gerður skal samningur til allt að 5 ára í senn um kaupin. Við gerð samnings og við eftirfylgni hans verður horft til nýtingar og meðferðar á orku við viðkomandi vinnslu. Meðal annars verður horft til eftirfarandi þátta:.

Að sem mest varmaendurnýting sé til staðar frá bæði vinnslu og frárennslishita vatnsins.

Að hitaelement séu þannig valin að hámarks nýting náist og frárennslishiti fari ekki upp fyrir 25°C.

Að stýring búnaðar sé þannig útfærð að hámarksnýting náist á varma frá nýtingu vatnsins.

Afsláttarkjörin ná ekki til forgangsvatns og gilda einungis þar sem nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Skagafjarðarveitna. Sprotafyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki sem vilja nýta heita vatnið sem beinan framleiðsluþátt geta einnig sótt um tímabundin 50% afslátt á heitu vatni. Um afslætti til sprotafyrirtækja gilda sömu kröfur um orkusparandi aðgerðir og um er getið hér að ofan.

Mælaleiga/fastgjald fyrir hvern mánuð skal vera sem hér segir:

Fyrir mæla 15-20 mm kr. 1.427 pr. mánuð
Fyrir mæla 25-40 mm kr. 3.394 pr. mánuð
Fyrir mæla 50 mm kr. 4.580 pr. mánuð
Fyrir mæla 65 mm kr. 9.666 pr. mánuð
Fyrir mæla 80 mm kr. 9.666 pr. mánuð
Fyrir mæla 100 mm kr. 9.666 pr. mánuð
Fyrir mæla 125 mm og stærri kr. 9.666 pr. mánuð

7. gr.

Hitaveitugjöld samkvæmt 5. og 6.gr. verða krafin hvern mánuð og myndast greiðslukrafa í heimabanka notanda. Gjalddagi er fyrsti virkur dagur hvers mánaðar og eindagi 15 dögum síðar, ef krafa er ekki greidd þá er hún send til innheimtu 10 dögum eftir eindaga.

8. gr.

Heimæðargjald SKV-hitaveitu fyrir heitt vatn skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í þéttbýli:

Innra þvermál heimæðar Heimæðargjald, kr. Lengdargjald, kr./m
≤ DN 20 mm 348.544 5.511
DN 25 mm 567.892 6.336
DN 32 mm 857.996 8.156
DN 40 mm 1.506.454 8.844
DN 50 mm 2.791.380 11.847

Ef um sverari heimæðar er að ræða skal greitt samkvæmt raunkostnaði.

Gjaldskrá þessi gildir í skipulögðum hverfum innan lögsagnarumdæmis Skagafjarðar.

Auk heimæðargjalds sem að framan greinir, skal greiða lengdargjald fyrir hvern lengdarmetra lagnar innan lóðarmarka umfram 25 m.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks aukagjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrir fram.

Fyrir stækkun á heimtaug skal greiða samkvæmt raunkostnaði.

Heimæðargjald SKV-hitaveitu fyrir heitt vatn skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í dreifbýli fyrir íbúðarhús og sumarhús:

Innra þvermál heimæðar Heimæðargjald, kr. Lengdargjald, kr./m
≤ DN 25 mm 791.328 4.821
DN 32 mm 1.195.519 5.593
DN 40 mm 2.098.978 6.750

Heimæðargjald fyrir aðrar byggingar en íbúðarhús og sumarhús:

Þéttbýli.

Einungis skal leggja eina heimæð (eitt inntak) að skemmum og öðrum slíkum byggingum. Er vatni svo deilt frá heimæð á mismunandi notendur ef um fleiri en einn aðila er að ræða. Fyrir heimæðina er greitt samkvæmt raunkostnaði. Fyrir hverja tengingu frá heimæðarinntaki, ber notandi/eigandi raunkostnað auk 10% gjalds af heimæðargjaldi gjaldskrár.

Dreifbýli.

Fyrir skemmur og útihús gilda sömu ákvæði og í þéttbýli. En leyfilegt er að tengja aðrar byggingar inn á heimæðarinntak. Fyrir hverja tengingu frá heimæðarinntaki, ber notandi/eigandi raunkostnað auk 10% gjalds af heimæðargjaldi gjaldskrár.

Smáhýsi.

Fyrir smáhýsi sem ekki eru byggingarleyfisskyld, er greitt samkvæmt raunkostnaði auk 10% gjalds samkvæmt gjaldskrá.

Auk heimæðargjalds sem að framan greinir, skal greiða lengdargjald fyrir hvern lengdarmetra frá stofnlögn umfram 100 m.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks aukagjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrir fram.

Fyrir stækkun á heimtaug skal greiða samkvæmt raunkostnaði.

Þessi gjaldskrá nær ekki til þeirra bygginga sem stofnkostnaður á nýjum veitusvæðum byggist á.

III. KAFLI

9. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda, sbr. 31. gr. reglugerðar fyrir Skagafjarðarveitur – hitaveita og 79. gr. orkulaga, nr. 58/1967.

10. gr.

SKV-hitaveita hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara, sbr. 2. mgr. 28. gr. reglugerðar fyrir SKV-hitaveitu.

Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er. Gjaldið skal vera það sama og mánaðarleiga á 65 mm mæli samkvæmt. 6. gr. gjaldskrár þessarar í hvert skipti og gjald fyrir mælaálestur (aukaálestur) skal vera það sama og mánaðarleiga á 25–40 mm mæli samkvæmt 6. gr. þessarar gjaldskrár.

Eftirlitsmanni SKV-hitaveitu skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Skagafjarðar, 16. október 2025, staðfestist hér með samkvæmt orkulögum, nr. 58/1967, til að öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt er úr gildi felld gjaldskrá sama efnis nr. 1679/2024.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 10. desember 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild — Útgáfudagur: 15. desember 2025

Tengd mál