Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Heilbrigðisráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar
Undirritunardagur
1. apríl 2026
Útgáfudagur
8. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 335/2026
1. apríl 2026
REGLUGERÐ
um (8.) breytingu á reglugerð nr. 760/2021, um styrki vegna hjálpartækja.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á fylgiskjalinu „Hjálpartæki Sjúkratrygginga Íslands“ með reglugerðinni:
- Í stað „18 mmHg“ þrýsings í 1. málsl. í flokki 0406 Hjálpartæki til blóðrásarmeðferðar kemur: 23 mmHg.
- Í stað liðar „0690 Bæklunarskór.“ í fylgiskjali með reglugerðinni kemur:
0690 Bæklunarskór.
Sjúkratryggingar hafa gert samninga við tiltekin fyrirtæki um smíði og sölu á bæklunarskóm og sérgerðum skóinnleggjum. Verð skólausna samanstendur af greiðsluhluta Sjúkratrygginga annars vegar og greiðsluhluta einstaklinga hins vegar. Styrkupphæðir stofnunarinnar eru tilgreindar í samningum. Greiðsluhlutur einstaklinga í bæklunarskóm miðast við innkaupaverð á góðum skóm fyrir börn og fullorðna samkvæmt verðkönnun. Styrkupphæðir eru birtar á vef Sjúkratrygginga ásamt skilgreiningu á góðum skóm.
Greiðsluþátttaka er veitt þegar um er að ræða miklar varanlegar aflaganir á fótum sem valda færniskerðingu og viðeigandi skólausn stuðlar að aukinni færni. Greiðsluþátttaka er einnig veitt ef þörf er á tilbúnum bæklunarskóm yfir spelkur. Styrkir eru ekki greiddir þegar um minni aflaganir er að ræða, s.s. tábergssig, flatfótur (pes planus/plano valgus), breiðir fætur, hælspori, hallux valgus, snúningur á sköflungi (torsio tibia) og genu recurvatum.
Styrkur er veittur fyrir að hámarki tvennum pörum af skóinnleggjum, bæklunarskóm eða breytingum á bæklunarskóm samanlagt á hverju 12 mánaða tímabili fyrir börn og á hverju 18 mánaða tímabili fyrir fullorðna.
Sérsmíðuð skóinnlegg: Helstu tilefni eru vaxandi flatfótur (Progressive Collapsing Foot Deformity, PCFD) sem hefur náð a.m.k. 20° valgus í afturfæti, eftirmeðferð vegna klumbufótar, sykursýki með verulegri skynskerðingu og sárahættu, slæmt hælbrot (t.d. minnkað Böhlershorn), holfótur (pes cavus), virk liðagigt í fótum, aflögun vegna taugasjúkdóma (t.d. spasticitet og dystonia), eftir aðgerð vegna PCFD. Að öllu jöfnu er ekki greiddur styrkur vegna innleggja fyrir börn með lina ökkla.
Tilbúnir bæklunarskór (verulegar aflaganir): Helstu tilefni eru metatarsus varus (adductus), holfótur (pes cavus) ef sérsmíðuð innlegg duga ekki, klumbufótur, sykursýki með verulegri skynskerðingu og sárahættu, slæmt hælbrot (t.d. minnkað Böhlershorn) ef sérsmíðuð innlegg duga ekki, virk liðagigt í fótum, yfir ökklaspelkur ef hefðbundnir skór duga ekki, aflögun vegna taugasjúkdóma (t.d. spasticitet og dystonia) ef sérsmíðuð innlegg duga ekki. Skóinnlegg teljast hluti af tilbúnum bæklunarskóm.
Sérsmíðaðir hálftilbúnir skór (miklar aflaganir): Helstu tilefni eru alvarlegar afleiðingar sykursýki, s.s. Charcot klumbufótur, virk liðagigt í fótum, aflögun vegna taugasjúkdóma (t.d. spasticitet og dystonia) ef tilbúnir bæklunarskór duga ekki. Skóinnlegg teljast hluti af sérsmíðuðum hálftilbúnum skóm.
Sérsmíðaðir skór (mjög miklar aflaganir): Helstu tilefni eru klumbufótur, alvarlegar afleiðingar sykursýki, s.s. Charcot virk liðagigt í fótum, aflögun vegna taugasjúkdóma (t.d. spasticitet og dystonia) ef sérsmíðaðir hálftilbúnir bæklunarskór duga ekki. Ætíð skal athuga hvort einfaldari skólausn sé nægjanleg áður en farið er út í sérsmíði. Skóinnlegg teljast hluti af sérsmíðuðum skóm. Ekki er greitt fyrir breytingar á sérsmíðuðum skóm enda falla þær að jafnaði undir aðlögun sem eru innifaldar í innkaupsverði samkvæmt samningi stofnunarinnar við seljendur.
Breytingar á tilbúnum bæklunarskóm: Helstu tilefni eru þegar tilbúnir skór duga ekki án breytinga (þörf á sérhæfðari eiginleikum en tilbúnir bæklunarskór hafa). Nær ekki til upphækkunar á skóm.
Breytingar á hefðbundnum skóm: Helstu tilefni eru þegar þörf er á riflás í stað reima vegna notkunar á ökklaspelkum og veltisóla eða rennilás á stígvél/skó til að verða sjálfbjarga.
06 90 02 Skóinnlegg, sérsmíði (FO) (innlegg), 90%, sbr. þó hámark samkvæmt samningi. 06 90 03 Tilbúnir bæklunarskór, greiðsluhlutur einstaklinga í skópari er skv. verðkönnun. Greitt er sérstaklega fyrir upphækkun á tilbúnum bæklunarskóm (meira en 2 cm). 06 90 06 Sérsmíðaðir skór, greiðsluhlutur einstaklinga í skópari er skv. verðkönnun. Breytingar sem gera þarf á sérsmíðuðum skóm eru innifaldar í tilgreindri fjárhæð. 06 90 09 Breytingar á hefðbundnum skóm, 90%, sbr. þó hámark samkvæmt samningi. Ekki er veittur styrkur fyrir skónum. Kostnaður við breytingar má ekki vera hærri en sem nemur verði tilbúinna bæklunarskóa. 06 90 12 Hækkun á skóm, a.m.k. 2 cm, 90%. Styrkupphæð miðast við verðkönnun. Hægt er að veita undanþágu um lægri hækkun fyrir börn. Ef fótleggjamunur er leiðréttur er heimilt að lækka skó sem áður hafa verið upphækkaðir með styrk frá Sjúkratryggingum. Þegar magn er ákveðið skal horft á þann fjölda sem samþykktur var síðustu tvö ár. Að hámarki getur það numið 4 pörum. 06 90 15 Misstórir hefðbundnir skór, 50%, styrkupphæð miðast við verðkönnun fyrir skópar. Mest er greitt fyrir tvö skópör á ári, þannig að fáist eitt nothæft skópar. Að lágmarki þarf tveggja skónúmera mun á skóm til að styrkur sé veittur. 06 90 16 Misstórir tilbúnir bæklunarskór, 90%, hámarksupphæð styrkja fyrir skópar er samkvæmt verðkönnun. Að lágmarki þarf tveggja skónúmera mun á skóm til að styrkur sé veittur. 06 90 18 Sérsmíðaðir hálftilbúnir skór, greiðsluhlutur einstaklinga í skópari er skv. verðkönnun. Greitt er sérstaklega fyrir upphækkun sem fer yfir 2 cm. 06 90 21 Breytingar á tilbúnum bæklunarskóm, 90%. Heildarstyrkur við breytingar er ekki hærri en 70% af verði tilbúinna bæklunarskóa. 06 90 24 Viðgerðir á tilbúnum bæklunarskóm. Ef slit á skóm er ótvíræð afleiðing sjúkdómsástands, t.d. hjá einstaklingum með spastískt göngulag er heimilt er að greiða 90% kostnaðar við viðgerðir. Hámarksupphæð styrkja er skv. verðkönnun. Að hámarki er greitt fyrir fjórar viðgerðir á ári. 06 90 27 Viðgerðir á sérsmíðuðum hálftilbúnum og sérsmíðuðum skóm. Ef slit á skóm er ótvíræð afleiðing sjúkdómsástands, t.d. hjá einstaklingum með spastískt göngulag er heimilt er að greiða 90% kostnaðar við viðgerðir. Hámarksupphæð styrkja er samkvæmt verðkönnun. Að hámarki er greitt fyrir fjórar viðgerðir á ári.
- Flokkur 0909 Hjálpartæki til að klæða sig í og úr fellur brott.
- Flokkur 1203 Stafir/hækjur fellur brott.
- Í stað 2. mgr. í flokki 1231 Hjálpartæki við flutning fólks, kemur ný mgr., svohljóðandi: Sjúkratryggingar Íslands veita styrki fyrir snúningslökum og snúningsmottum til að auðvelda umönnun þeirra sem eru með mikla hreyfihömlun vegna sjúkdóma sem valda alvarlegri lömun eða hrörnun.
- Í flokknum 2227 Viðvörunarhjálpartæki verður eftirfarandi breyting:
22 27 15 Rafstýrð dagatöl 50%. 22 27 16 Minnishjálpartæki 50%.
- 1. mgr. í flokknum 2421 Tæki til framlengingar fellur brott.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 1. apríl 2026.
Alma D. Möller.
Guðríður Bolladóttir.
B deild — Útgáfudagur: 8. apríl 2026