Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sjávarútvegur, Byggðamál

Undirritunardagur

11. mars 2026

Útgáfudagur

17. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 256/2026

11. mars 2026

AUGLÝSING

um (2.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Húnabyggð (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda í byggðarlagi og/eða á Skagaströnd, niðurfelling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Blönduóss með eftirfarandi breytingum:

  1. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu 1. september 2025 til 31. ágúst 2026 í Blönduóshöfn og/eða í Skagastrandarhöfn.
  2. Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  3. Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.
  4. Veitt verði undanþága frá löndun til vinnslu sem fram kemur í ákvæði 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar. Fiskiskipum verði eftir sem áður skylt að landa í Blönduóshöfn og/eða Skagastrandarhöfn.

Húnaþing vestra (breyting á viðmiðum um úthlutun, löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Hvammstanga með eftirfarandi breytingum:

  1. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
    1. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 1270/2025, um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa. Við skiptingu þessa 50% byggðakvóta Húnaþings vestra, til ofangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
    2. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga. Skiptingunni verður háttað með þeim hætti að hvert fiskiskip sem uppfyllir framangreind ákvæði hlýtur að lágmarki 30 tonn og eftirstöðvum úthlutað miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2024/2025.
    3. Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skilyrðum.
  2. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
  3. Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  4. Í stað orðanna „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: telst hafa verið landað til vinnslu.

Súðavíkurhreppur (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun).

Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Súðavíkur með eftirfarandi breytingum:

  1. Ákvæði a-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hafa leyfi til frístundaveiða, skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, við lok umsóknarfrests.

Sveitarfélagið Hornafjörður (breyting á viðmiðun úthlutunar).

Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Hafnar með eftirfarandi breytingum:

  1. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 15% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 85% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.

Sveitarfélagið Ölfus (breyting á viðmiðum um úthlutun).

Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Þorlákshafnar með eftirfarandi breytingum:

  1. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 35% byggðakvóta Þorlákshafnar skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar en 65% byggðakvótans í Þorlákshöfn skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 11. mars 2026.

Eyjólfur Ármannsson.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

B deild — Útgáfudagur: 17. mars 2026

Tengd mál