Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hvalfjarðarsveit
Undirritunardagur
28. júlí 2026
Útgáfudagur
12. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 890/2026
28. júlí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar vegna Eyrarlundar, frístundabyggðar og landbúnaðarsvæðis.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 28. júlí 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, sem samþykkt var í sveitarstjórn 27. ágúst 2025.
Í breytingunni felst að lóðin Eyrarlundur, sem er um 3,6 ha að stærð og innan skilgreindrar frístundabyggðar F11, verður skilgreind sem landbúnaðarsvæði L2 en á lóðinni er íbúðarhús. Frístundabyggð F11 minnkar sem þessu nemur.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 28. júlí 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 12. ágúst 2026