Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
26. júní 2025
Útgáfudagur
3. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 20/2025
26. júní 2025
AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerðir öðluðust gildi hér á landi með reglugerð nr. 760/2025 um (57.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1085 frá 22. maí 2025 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1200 frá 12. júní 2025 um breytingu á V., XIII. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Esvatíní, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum, nýju kjöti af nautgripum, öldum og villtum hóf- og klaufdýrum sem eru veiðidýr og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994 og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. júní 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Svava Pétursdóttir.
C deild — Útgáfudagur: 3. júlí 2025