Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
24. júní 2026
Útgáfudagur
9. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 786/2026
24. júní 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir gegn netárásum, nr. 795/2019.
1. gr.Almenn ákvæði.
2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr. kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
2. gr.Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
1.2 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1079 frá 11. maí 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2019/797 um þvingunaraðgerðir gegn netárásum sem ógna Sambandinu eða aðildarríkjum þess, sbr. fylgiskjal 1.2.
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 68/2023.
3. gr.Viðurlög.
6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.
4. gr.Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 24. júní 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild — Útgáfudagur: 9. júlí 2026