Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Alþingi
Undirritunardagur
28. ágúst 2026
Útgáfudagur
31. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 92/2026
28. ágúst 2026
FORSETABRÉF
um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 8. september 2026.
Forseti Íslands
gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 8. september 2026.
Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni er hefst kl. 13.30.
Gjört á Bessastöðum, 28. ágúst 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Kristrún Frostadóttir.
A deild — Útgáfudagur: 31. ágúst 2026