Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Barðastrandarsýslur

Undirritunardagur

11. maí 2026

Útgáfudagur

27. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 556/2026

11. maí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna Króksfjarðarness og Geiradals.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 11. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. mars 2026.

Í breytingunni felst skilgreining tveggja nýrra verslunar- og þjónustusvæða, VÞ13 og VÞ14, á Króksfjarðarnesi auk þess sem svæði VÞ12 minnkar lítillega. Gert er ráð fyrir allt að 630 gistirúmum á svæðum VÞ12 og VÞ14 til samans. Svæðin taka til um 21 ha samanlagt. Einnig eru skilgreind tvö svæði fyrir íbúðarbyggð ÍB3 og ÍB4 fyrir samtals allt að 90 íbúðir á um 14 ha. Í Geiradal er skilgreint tæplega 7 ha athafnasvæði AT7 fyrir þrifalega athafnastarfsemi. Landbúnaðarsvæði L1 minnkar sem ofangreindum breytingum nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 11. maí 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 27. maí 2026

Tengd mál