Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Siglingar - skip
Undirritunardagur
14. desember 2016
Útgáfudagur
30. desember 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1219/2016
14. desember 2016
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 474/2007 um vernd skipa og hafnaraðstöðu.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, sem verður stafliður d og orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/462 frá 30. mars 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 324/2008 um endurskoðaðar verklagsreglur um framkvæmd skoðana framkvæmdastjórnarinnar á sviði siglingaverndar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 193/2016 frá 23. september 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, 13. október 2016, bls. 806-811.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um siglingavernd, nr. 50/2004 með síðari breytingum og 4. mgr. 1. gr. laga um eftirlit með skipum, nr. 47/2003, öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 14. desember 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016